Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Blaðsíða 29

Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Blaðsíða 29
Þeir sem lifandi sluppu úr þessu, fannst marga daga á eftir, að þeir heyrðu hið marrandi öskur stálsins, sem beit sig saman. Ef hvirfilvindurinn hafði áður verið helvíti, þá var árekstur skipanna neðsta þrep vítis, að minnsta kosti þar, sem yfirfjandinn ríkti. Nú hjálpaði ekkert að reyna að ríghalda sér lengur. Höggið var svc gífurlegt, að allir þeyttust til í skipinu hingað og þangað, og margir voru ekki það heppnir að geta hreyft sig aftur þaðan, sem þeir lentu. Bezt höfðu þeir sloppið, sem voru á þilfari eða í brúnum. Þeir höfðu séð á síðustu sekúndu, hvað var að ske, og voru því örlítið viðbúnir. En hinir, sem voru undir þiljum, í vélarrúmi, í matsölunum eða káetum,. voru alveg óviðbúnir. Á báðurn skipunum fór rafmagnið svo til sam- stundis, og myrkrið jók ringulreiðina enn meir. Úfið hafið gerði líka sitt til þess að auka glundroðann. „Þetta urðu endalokn," hugsaði Willbrook skipherra í brúnni, þegar Nýtt S O S 29

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.