Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Side 35

Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Side 35
anna. Þegai liann gerði þa ðnú til að glöggva sig, brá honum svo mikið við, að honum lá við köfnun. Hvílík hræðileg sjón! Hvernig allt leit út hér! Stáltætur, brotið gler, bognir stólpar, uppvafðar plötur, tætt járn! Það var engu líkara en byrjað hefði verið að rífa skipið sundur úti á opnu hafinu. Hvað var þetta? Var þetta ekki lágt vein? Maðurinn bíður andspennt- ur og gleymdi eigin sársauka. Þarna var veinið aftur. Bölvað, að hann skyldi ekki hafa ljós. „Er þarna einhver?" kallaði hann hátt. „Ef þarna er einhver, þá svaraðu, félagi, svo að ég geti hjálpað þér!“ Ekkert svar, en hann heyrði á ný stunu, og í þetta skipti dálítið gxeinilegra. Drottinn minn, liljóðið virtist koma beint úr brakinu. Maðurinn lagðist á fjóra fætur, þó að liann héldi að sársaukinn ætlaði að gera út af við hann. Hann reyndi að hjálpa augunum með því að þreifa fyrir sér, en dofnar hendur hans höfðu ekki lengur neina skynjun. Fínu tauga- endarnir undir húðinni á, gómunum gáfu ekki lengur frá sér neinar upplýsingar til heilans, hann fann aðeins hvað hann greip um eftir lögun þess. „Svaraðu mér, félagi! “ kallaði maðurinn. „Annars get ég ekki fundið þig-“ Maðurinn ætlaði einmitt að fara að rétta sig aftur upp, þegar hendur hans fundu eitthvað, sem við nánari athugun handanna leiddi til vissu, að þarna var um mannsfót að ræða. Hann fann með munninum, að fót- urinn var heitur, en það var engin sönnun fyrir því að eigandi hans væri enn lifandi. En þegar katlavörðurinn æsingu tók í fótinn, fann hann að tærnar hreyfðust. Nú var hann ekkert að hugsa sig um lengur. Þar sem líf var, þar var líka alltaf eitthvað hægt að gera til björgunar, það var félagsleg sjómanns skylda. Ef bara hnn sjálfur hefði ekki kvalist svo og verið1. svona illa kominn, eða ef hann hefði getað kallað aðra til hjálpar. Maðurinn gat. ekki vitað, að niðri, þaðan sem hann hafði komið, leit miklu ægilegar út en þar sem hann var nú. Hér var að vísu allt brotið og brenglað, en niðri var allt í einni óskiljanlegri bendu, hreint helvíti. Þar stritaði hver hönd, sem yfirleitt gat sig enn hrært. Ljós — ljós! Katlavörðurinn vildi gefa nokkur ár af lífi sínu, bara ef hann gæti fengið svolítið ljós augnablik. Já, einmitt — hann hlaut að Nýtt S O S 35-

x

Nýtt S.O.S.

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.