Nýtt S.O.S. - 01.01.1960, Side 38
í Ijós, hafði hann strax við fyrsta áfallið, brotið hrygginn, sem .varð enn
verra þegar hann kastaðist á borðstokkinn. Hannleggir hans voru þess-
vegna orðnir máttlausir. En hann hélt fast í sundbelti stýrimanns með
tönnunum. Langan tíma, í hafi, sem hamaðist í brjálæðislegu æði. — Var
það ein eða tvær klukkustundir, sem liðu þar til þeir voru dregnir upp
á fleka? Eg veit það ekki. Hvirfilvindsnóttin kostaði um átta hundruð
ameríska sjómenn. lífið, og af Monaghan og Spence varð ekki 50 af
hverjum hundrað bjargað.
Hvað á ég enn að segja ykkur?“ sagði Kelloki. „Þeir, sem lifandi
voru í gúmmíbátunum og á flekunum björguðust í flugvélaskipið „Mon-
terry"! Fyrsti stýrimaður Monaghan var seinna skorinn upp og það tókst
að lækna hann nokkurn veginn. En það var ekki alveg eins einfalt með
bjargvætt hans. Brotinn hrygg.er nú einu sinni ekki hægt að gera aftur
sem nýjan.“
„Hvernig vitið.þér það, Sir?“ stamaði litli svertingjadrengurinn Jimmy.
„Einmitt þessa sömu sögu hefur faðir minn svo oft sagt mér.“
Óp heyrðist nú í litla hópnum: „Svindlaðu ekki, Jimmy!" hrópaði fram-
hleypinn hnokki. „Þinn gamli negrapabbi er útsmoginn!“
Kelloki varð eldrauður í framan, og hann sagði ef til vill svolítið
harneskjulegar en hann ætlaði:
„Hafið þið ekki veitt því athygli, að ég hef, fyrir utan skipsnöfnin
og nafn Willbrooks skipherra, varla nefnt nöfn? Nú, það er hægt að
bæta úr því. Fyrsti stýrimaðurinn á Monaghan, sem á katlaeftirlitsmann-
inum líf sitt að launa, heitir Kelloki, og stendur nú hér fyrir framan
ykkur. — En hetjan, sem bjargaði honum, þrátt fyrir eigin kvalir og lim-
lestingar, heitir Sam Woorker. Þú getur verið mjög stoltur af þínum
kæra góða föður, Jinnny, og þið hinir vitið vonandi í framtíðinni, áður
en þið byrjið að henda dár að Mr. Woorker, af hvaða orsökum það er,
að hann verður í dag að bera lífstykki og er orðinn krypplingur., Eg
vissi ekki einu sinni, að ég myndi hér, í ættborg minni, Adalko, finna
hann aftur. Eg fer nú til hans, og hver sá, sem vera vill mannsæmandi
drengur, kemur með!“ —
Og þar kom, að hinn mjög svo hlédrægi rnaður Sam Woorker, varð
með tárin í augunum að taka á móti hyllingarhrópum þeirra sömu
drengja, sem áður höfðu kallað á eftir honum smánarorð með ópum og
óhljóðum.
38
Nýtt S O S