Nýtt S.O.S. - 01.07.1960, Blaðsíða 10
Fred Banbury, miljónamæringurinn ungi, liorfði sém snöggvast á eftir
grannvaxinni stúlku, sem smeygði sér gegnum mannfjöldann og hélt
beina leið inn í stóra salinn, sem veitti miklu ljósaflóði yfir þilfarið.
Þegar stúlkan var horfin stakk hann báðum höndum í vasana á ljósum
yfirfrakkanum og rölti hægtun skrefum á afturþiljur, eins og honum
kæmi ekki hið minnsta við allur þessi ys og liávaði. Nokkrar mínútur
stóð hann á tröppunum, sent lágu frá biyggjunni að II. farrými.
í þessum svifum bar að unga, ljóshærða stúlku, sem sýndi yfirþjóni
farseðilinn.
„Miss Lore Manz,“ las hann á kortinu. „Klefi nr. 272, til vinstri að
neðan, gjörið svo vel.“
„Við erum með líkkistu um borð,‘ sagði svartklæddur, lítill ná-
ungi við milljónamæringinn og leit rannsakandi á hann gegnum gler-
augun. „Líkkista! Getið þér sagt mér, hvar muni vera venja að geyma
líkkistur um borð í svona skipi?“
Banbury hristi höfuðið. „Hvað viljið þér með líkkistuna?“ spurði
hann áhugalaust. „Spyrjið hleðslustjórann."
„Það hef ég þegar gert,“ svaraði sá svartklæddi og kom nú méð munn-
inn fast upp að eyra Banburys. „Haldið þér, að mér hafi verið svarað?
Eg hef engan snuðrara hér á skipinu, svaraði hann mér. Líkkistan er
tóm.“
„Nú, livað viljið þér þá meira?“ Banbury reyndi að losna við þennan
litla karl.
„Þetta er nefnilega lýgi, svívirðileg lýgi,“ tuldraði sá litli og veifaði
regnhlífinni sinni í stórum boga. „Líkkistan liggur á ís. Hún er nefni-
lega ekki tóm. Eg finn það á mér, ef einhver er dauður, jafnvel þótt
hann sé langt frá mér.“
Banbury svaraði þessu engu, en yfirgaf manninn formálalaust og gekk
til afturlyftingar.
Enn voru farþegar að koma, svartir menn, sem báru farangur komu-
manna, voru allháværir, vélar og kranar skröltu án afláts. Enn streymdu
að frúr og ungfrúr í marglitum silkikjólum, sumar báru hvíta hreysi-
kattarpelsa á handleggnum, sem ætlaðir voru til notkunar á kaldari
breiddargráðum, gimsteinar og skínandi perlur glitruðu á höndum
þeirra og hálsi. Það fór ekki rnilli mála, að um borð í Morro Castle
var samansafnaður kjarninn úr auðborgarastétt Havanna og New York
borgar, Kúbu og Kalifomfu. Yfir þessum hávaðasama og glaða mann-
10
Nýtt S O S