Nýtt S.O.S. - 01.07.1960, Page 11
fjölda sveil: angan af ilmvötnum, sem blandaðist tjöruangan, lakk- og
málningarlykt. Hljómsveitin lióf nú að leika marz fyrir þetta skrautbúna
fólk.
Farþegar á þessu lúksusskipi voru nær einvörðungu forríkir Banda-
ríkjamenn, sem voru nú að konra úr skemmtiferð til \ estur-Indíaeyja.
ROSY-DEMANTINN.
„Orðsending til hleðsluumsjónarmanns frá skipstjóra!“ kallaði Hack-
ney, annar stýrimaður á vakt í brúnni, í talrörið til léttadrengsins í
brúnni. Drengurinn, sem ávallt var viðbúinn því, að flytja skipanir
milli, endurtók orð stýrimannsins. Svo hljóp hann niður á neðra þilfar.
Fáeinum mínútum seinna stóð Morris, annar hleðslustjóri fyrir fram-
an skipstjórann á Morro Castle.
„Þessi herra er Senor Gonzales,'1 kynnti skipstjórinn ókunnan mann,
er stóð t ið hlið hans. „Senor Gonzales, sem er hér í umboði lafði Astor
með verðmætan gimstein, sem á að fara til New York.“
„Verðmæti tvær milljónir do]lara,“ bætti Gonzales \’ið rólega, eins og
hann ræri að tala unr vindlingapakka. „Eg hef keypt annan Rosy-gim-
steininn úr dánarbúi Gouldenfields auðkýfings, sem lézt hér í Havanna
í vetrarhöll sinni. Fyrir hve háa upphæð getið þér tryggt gimsteininn?"
Morris hugsaði sig um stundarkom. „Eg held varla yfir 100.000 doll-
ara. En ég skal athuga málið nánar.“
„Þér takið að minnsta kosti á móti steininum, Morris, og ábyrgist
hann,“ sagði \VTilmott skipstjóri. „Látið búa yður hvílu á dýrgripageymsl-
unni. Lafði Astor verður að fá steininn sinn. Var nokkuð annað, er þér
vilduð minnast á?“ bætti hann við, er hann leit spyrjandi augnaráð
mannsins.
Morris kinkaði kolli, en leit á farþegann, eins og hann vildi ekki hreyfa
máli sínu í nærveru hans.
W7ilmott rétti Gonzales höndina í kveðjuskyni.
„Þér getið verið öldungis áhyggjúlaus. Á Morro Castle er gimsteinn-
inn yðar í góðum höndurn.'1
Eftir að Kúbumaðurinn hafði gengið burt, hvíslaði Morris: „Eg heyrði
núna rétt áðan orðaskipti fyrir utan glugga annars loftskeytamanns. Al-
agna sagði, að hann ætti enga ósk heitari en þá, að þessi bölvaður dall-
ur, Morro Castle, flygi í loft upp. Þá fengju Wárd-herrarnir það, sem
þeir ættu skilið.“
11
Nýtt. S O S