Nýtt S.O.S. - 01.07.1960, Síða 15
„Hvað eruð þér að hafast að hérna niðri?'1 lnópaði yfirvélstjórinn.
Alagna horfði nokkrar sekúndur á Abott og augun, undir svörtum
brúnum hans skutu gneistum. Þá snéri hann sér að skipstjóranum, rétt
eins og Abott væri ekki til staðar..
„Hann var vinur minn. Þér hafið víst ekkert við það að athuga, Sir?“
„Hér niðri ræður Mr. Abott,“ svaraði Wilmott. „Yfirvélstjórinn hefur
kvartað yfir afskiptasemi yðar.“
„Vinur minn hefur hrapað vegna ofþreytu," sagði Alagna og var a.ll-
æstur. „Hann hefur vakað samfleytt tvo sólarhringa. Hvers vegna hafið
þér vanrækt að láta fagmenn gera við þessa bilun?“
„Þar mun nú vera komið inn á verksvið Mr. Abotts,“ svaraði Wil-
mott.
„Ef Mr. Abott þrælkar sína undirmenn, þá kenrur það líka skipstjór-
anum við!" svaraði Alagna.
„Haldið þér kjafti!" svaraði Wilmott, sem nú hafði misst stjórn á
skapi sínu. „Þér eruð hér um borð sem loftskeytamaður, en ekki neinn
fulltrúi vélamanna. Eg mun tilkynna agabrot yðar þegar við komum
til New York. Hafi nokkur maður staðið á rétti starfsliðsins á skipinu,
þá er það ég!“
„Vissulega, skipstjóri.“ Loftskeytamaðurinn, sem hafði beygt sig yfir
hinn látna, stóð nú uppréttur og höfði hærri en skipstjórinn. „Þess
vegna berum við líka allir fullt traust til yðar, herra skipstjóri. \rið
virðurn yður eins og góðan föður. Þess vegna segi ég yður afdráttarlaust
sannleikann um Mr. Abott."
„Það er ekki yðar hlutverk, Mr. Alagna. Með því brjótið þér á móti
skipsreglunum. Það get ég ekki þolað. Farið tafarlaust á yðar vinnustað.
Þér hafið ekkert að gera f vélarúminu!"
Alagna gekk fram hjá skipstjóranum án frekari orða og þaut upp
brattan stigann.
„Þér verðið að hafa vakandi auga á Alagna, skipstjóri!" sagði Mr.
Abott um leið og skipstjórinn fór.
George Rogers, fyrsti loftskeytamaður á Morro Castle, leit íhugandi á
stóra almanakið, sem stóð á vinnuborðinu hans.
„Miðvikudagur, 5. september 1934“ las hann og gerði athuganir sín-
ar um leið með blýanti. „Ef maður þyrfti nú ekki annað en rífa nokkra
daga af almanakinu og svo væru þeir liðnir,“ sagði hann og beindi máli
sínu til C-harles Maki, sem var þriðji loftskeytamaður á Morro Castle.
Nýtt S O S
15