Árbók Reykjavíkurbæjar - des. 1941, Blaðsíða 204
190
máta það fé“, sem faðir hans „neyddist til, sök-
um langvarandi heilsuleysis að fá úr fátækra-
sjóði 2 eða 3 siðustu árin, sem hann lifði“.
5. Verðlaunasjóður H. Th. A. Thomsen.
Sjóðurinn er stofnaður með skipulagsskrá
dags. 12. jan. 1883. Stofnféð var kr. 500,00, gefn-
ar af H. Th. A. Thomsen í tilefni af því, að 25
ár voru liðin frá þeim tíma, að hann fékk borg-
araréttindi sem kaupmaður í Reykjavík. Vöxtun-
um af fénu skal árlega varið til verðlauna í
barnaskólum Reykjavíkur fyrir framúrskarandi
ástundun við námið eða frammistöðu við próf.
6. Minningarsjóður Ingibjargar Hansen.
Sjóðurinn er stofnaður með skipulagsskrá,
dags. 4. jan. 1921, en staðfest af ráðherra eftir
konungsboði 2. febr. s. á. Stofnféð var kr. 3000,00
gefnar af Morten Hansen skólastjóra, til minn-
ingar um móður hans, Ingibjörgu Jóhannsdóttur
Hansen. Féð skal ávaxta í aðaldeild Söfnunar-
sjóðs Islands. Af vöxtunum komi árlega kr. 50,00
til útborgunar, sem og helmingur þess af vöxt-
unum, sem er umfram kr. 50, en hinn hluti
vaxtanna leggist við höfuðstólinn. Fé því, sem
kemur til útborgunar, skai verja til að „styrkja
fátæk börn, sem ganga í barnaskóla Reykjavík-
urbæjar, einkum til að fá sér nauðsynlegan
fatnað og þá einnig skófatnað". Úthlutunina
annast stjórn sjóðsins í samráði við kennara
skólanna. Stjórnina skipa borgarstjóri og for-
stöðumenn barnaskólanna, og sé borgarstjóri
formaður.
7. Sjóður Alþýðulestrarfélags Reykjavíkur.
Sjóðurinn er stofnaður með skipulagsskrá,
dags. 1. okt. 1924. Stofnféð var kr. 300,00, aðal-
lega peningar, er tilheyrðu Alþýðulestrarfélagi
Reykjavíkur, þegar það var sameinað Alþýðu-
bókasafninu 1923, en að nokkru leyti gjöf „til
stofnsetningar ofannefndum sjóði", frá formanni
og féhirði Alþýðuiestrarfélagsins, þeim Sighvati,
frv. bankastjóra, og jÞorleifi H. Bjarnas. yfir-
kennara, er afhentu sjóðinn og undirskrifuðu
skipulagsskrána. Féð skal ávaxta í aðaldeild
Söfnunarsjóðs Islands. Vextirnir leggist allir við
höfuðstólinn, og standi sjóðurinn óhreyfður,
þangað til hann er orðinn kr. 100000,00. „Þá
getur bæjarstjórn Reykjavíkur með samþykki
dómstjóra æðsta dömstóls landsins ákveðið að
verja megi allt að % hluta vaxtanna til Alþýðu-
lestrarfélags i Reykjavík, er hún gengst fyrir að
setja á fót með því fyrirkomulagi, er hún álítur
hentugast. En þriðja hluta vaxtanna, að minnsta
kosti, skal jafnan leggja við höfuðstól."
8. Barnahælissjóður Thorvaldsensfélagsins.
Sjóðurinn er stofnaður með gjafabréfi, dags.
19. nóv. 1925. Stofnféð var kr. 50000,00 gefnar
af Thorvaldsensfélaginu í tilefni af 50 ára af-
mæli þess. — Skilyrði fyrir gjöfinni voru: „1.
Reykjavikurbær láti reisa barnahæli með öllum
nauðsynlegum nýtízku útbúnaði, sem taki að
minnsta kosti 30 börn og sé byrjað á hælinu
innan tveggja ára frá afhendingu framannefndr-
ar gjafar. 2. Bamahælið beri nafnið: Bamahæli
Thorvaldsensfélagsins. 3. Stjórn hælisins skipi:
Borgarstjóri Reykjavíkur, sjálfkjörinn. Tveir
fulltrúar kosnir af bæjarstjóm Reykjavíkur og
tvær félagskonur, kosnar af Thorvaldsensfélag-
inu. 4. Thorvaldsensfélagið ráði vali 5 barna á
hælinu og standi straum af þeim þar.“ — Bæjar-
stjórn fékk frestinn til að byggja hælið fram-
lengdan í 5 ár, en veitti gjöfinni móttöku með
þeim skilyrðum, sem sett voru að öðru leyti.
Tafðist málið af þeim ástæðum. Félagið afhenti
gjöfina 21. des. 1926. 1 okt. 1930 veitti félagið,
samkv. ósk bæjarstjórnar, vegna kostnaðar við
kaup á Grund við Kaplaskjólsveg fyrir starf-
semi barnaheimilisins „Vorblómið", enn 4 ára
frest til að byggja barnahælið. Félagið setti þó
það skilyrði fyrir frestuninni, að lóð yrði ákveð-
in fyrir barnahælið á næsta ári í samráði við
það. — 1 sambandi við fjárhagsáætlun fyrir árið
1936 ákvað bæjarstjórn, að hefja á árinu undir-
búning að byggingu barnahælis í samráði við
stjórn Thorvaldsensfélagsins, og verja til þess fé
Barnahælissjóðs Reykjavikur og Barnahælis-
sjóð's Thorvaldsensfélagsins. Veitti bæjarstjórn
borgarstjóra heimild til að taka lán til bygging-
arinnar í samráði við bæjarráð. Úr frekari fram-
kvæmdum varð þó ekki. Á árinu 1938 hafði
bæjarstjórn enn á prjónunum áform um að reisa
bamahæli á því ári. Var helzt í ráði að reisa
hælið í Breiðholtslandi. Til framkvæmda kom
heldur ekki að því sinni, og hefir málið ekki
verið tekið upp síðan.
9. Gjafasjóður Sighvats Bjarnasonar frá 1929.
Sjóðurinn er stofnaður með skipulagsskrá,
dags. 25. jan. 1929. Stofnféð var kr. 1000,00,
gefnar af Sighvati Bjamasyni fyrv. bankastjóra
á sjötugs afmæli hans. Tilgangurinn með stofn-
un þessa sjóðs er sá sami og sjóðsins frá 1890,
enda tildrögin hin sömu. Féð skal og ávaxta á
sama hátt og mælt er fyrir í skipulagsskrá þess
sjóðs, og standi sjóðurinn óhreyfður þangað til
hann er „með vöxtum og vaxtavöxtum orðinn
að minnsta kosti 2000000 — tvær milljónir —
króna að upphæð."
10. Afmælissjóður Reykjavíkurkaup-
staðar frá 1936.
Sjóðurinn er stofnaður með gjafabréfi, dags.
18. ágúst 1936. Stofnfé kr. 10057,26, gefnar af
borgara í Reykjavík, sem ekki vildi láta nafns
sins getið, í tilefni af 150 ára afmæli kaupstað-
arins. Um ráðstöfun fjárins voru engin fyrir-