Byggingarlistin - 01.01.1960, Síða 4
Gilbarco
Útvegum leyíishöfum hina heimsþekktu Gilbarco
olíubrennara
Stuttur afgreiðslutími
Ódýrastir
Beztir
OLÍUFÉLAGIÐ HF
Sími 24380
íslenzk íbúðarhús
fjallar um íslenzka húsagerð og byggingatækni
í bókinni er sýnt 31 íbúðarhús af öllum stærðum, frá
smáíbúðarhúsum upp í fjölbýlishús. Birtar eru ljós-
myndir utan húss og innan ásamt teikningu af grunn-
fleti húsanna og skýringum við þær. Ennfremur eru í
bókinni tæknilegar greinar er varða hvern húsbyggj-
anda, svo sem um eldhúsinnréttingar, einangrun og
upphitun húsa, lýsingu íbúða, liti og litaval, heilbrigði
og hollustuhætti og hlutverk húsameistarans við bygg-
ingu hússins.
íslenzk íbúðarhús er bók, sem lengi hefur verið beðið
eftir.
Almenna Bókafélagið
Skúli H. Norðdahl
Um notkun
starísheitisins arkitekt
Árið 1939 voru hér á landi sett lög, er
banna öðrum en þeim, sem til þess
hafa fengið löggildingu, að bera og
nota starfsheitið arkitekt, húsameist-
ari.
Til að öðlast nefnda löggildingu þarf
umsækjandi að hafa lokið háskóla-
námi og fullnaðarprófum í þeirri
grein, er nefnist húsagerðarlist eða
arkitektur við viðurkenndan tækni-
eða listaháskóla.
I vali þeirra skóla, sem viðurkenningu
hafa, hefur verið leitazt við að sjá svo
um, að þeir veiti sem líkastan undir-
búning undir starfið, hvað snertir
námsefni, námstilhögun og náms-
tíma.
Eins og er á öðrum starfssviðum, svo
sem meðal lögfræðinga og lækna t. d.,
er það hlutverk Arkitektafélags ís-
lands að fylgjast með því að lögum
þessum sé framfylgt.
Af þessum sökum m. a. var það, að
fyrir rúmum þrem árum kærði Arki-
tektafélagið til sakadómaraembættis-
ins vegna misnotkunar á arkitekts-
heitinu. Voru það tveir húsgagna-
teiknarar, er höfðu tekið sér arkitekts-
heiti og skrúðgarðaskipuleggjari, sem
einnig hafði tekið upp heitið arkitekt.
Svo furðulega vildi til, að fulltrúi saka-
dómara úrskurðaði menn þessa
sýkna af því að nota arkitektsheitið í
heimildarleysi. Málið var sent þáver-
andi dómsmálaráðherra, sem lagði
blessun sína yfir úrskurðinn og lét
málið þar með niður falla.
Með þeim furðulegu aðgerðum kom
dómsmálaráðherra í veg fyrir, að
hæstiréttur athugaði flausturslega af-
greiðslu sakadómaraembættisins, og
felldi dómsúrskurð um það veiga-
mikla atriði hvernig skilja beri lögin
um notkun starfsheitisins arkitekt.
Þess er að vænta að hægt verði áður
en langt um líður að taka þetta mál
upp til rækilegrar athugunar, ella er
lagaákvæðið tilgangslaust og þá hlut-
verk Arkitektafélagsins, að hafa eftir-