Byggingarlistin - 01.01.1960, Blaðsíða 15

Byggingarlistin - 01.01.1960, Blaðsíða 15
svipað mun vera og á miðöldum. Því má með töluverðum rökum teija skál- ann írá miðöldum og tengja hann minningu hinna miklu og sögufrægu höfðingja, sem hér hafa búið, eins og að framan greinir. Gengið er fyrst í gömlu húsin inn í bæjardyr, sem önd kallast. Bæjar- dyrnar skipta skálanum í tvennt með þili, dyraumbúnaði og hurðum. Um vesturhluta skálans er gengið til stofu, en austurhluti er notaður fyrir búr. Bæjardyrnar eru að lengd 3.35 m, breidd 2.30 m og hæð frá hellugólfi upp í bita 1.75 m. Lengd skálans er um 13.70 m, breidd 3.50 m og hæð frá moldargólfi upp í bita 1.80 m. Viðir eru ákaflega gildir, stoðirnar upp í 85 sm ummáls. Þilj- urnar í bæjardyrunum eru breiðar og þykkar, um 25x6 sm, stallaðar í gróp á þiljum og syllum; gróp eru líka á stoðum í vesturhluta skálans, sem bendir til, að hann hafi verið þiljaður og máske hólfaður að einhverju leyti. Bitar og þiljur allar eru strikaðar í öll- um skálanum. Elztu viðirnir eru harðir, rauðir og efnisgóðir. Þekkjast þeir af því, að rúmlega 1 sm breitt rákastrik hefur verið gert, að því er virðist fríhendis með lokarhefli, nærri brúnum á þilj- um og syllum, hornum á sperrum og bitum að neðan og til hliða. Vandað efni og smíð valinna manna. Tré- grindin er frístandandi, öll negld með trénöglum. Reisifjöl er á öllum skálan- um, nema á smáherbergi yfir bæjar- dyrum, þar er skarsúð. Ofan á reisi- fjölinni er hella, sem nær út á veggja- palla. Svo vel er gengið frá henni, að hvergi lekur þekjan, enda hefðu viðir og munir þeir, sem geymdir hafa ver- ið í bænum, ekki staðizt lengi, ef lekið hefði. Risið á skálanum er meira en kross- reist. Loft er yfir vesturhluta skálans og bæjardyrum. Allur skálinn, veggir og gaflhlöð, eru úr grjóti. A næstsíð- ustu öld voru dyr gerðar á vesturgafl- inn til inngöngu í baðstofu, er byggð var við vesturenda skálans. Það var vorið 1932, að við vorum að grafa fyrir safnþró. Vissum við þá ekki fyrr til en við pompuðum niður. Var hér bersýnilega um jarðgöng að ræða, sem smjúga mátti talsvert eftir til beggja hliða. Var þjóðminjaverði gert viðvart um fund þennan. Lét hann grafa göngin fram úr varpanum beinustu leið. Moldargöng þessi eru á milli 20 og 30 m og ná inn að skála- vegg fyrir neðan gólfið, rétt við glugg- ann. Má komast eftir þeim alla leið. Eru þau nú hlaðin úr grjóti að framan og gert yfir þau víðast hvar, halda stoðir uppi yfirgerðinni, með dyrastöf- um og hurð fremst. Leynigöng voru nokkuð algeng í forn- öld og fram yfir Sturlungaöld, er allt logaði í ófriði og enginn var óhultur. Hafi leynigöngin verið gerð til öryggis af ófriðarhættu, eins og eðlilegast er að álykta, þá er engin ástæða til að ætla, að þau séu yngri en frá Sturl- ungaöld, og mætti þar af marka nokk- uð aldur skálans. En hvort þau eru eldri en frá Sturlungaöld, eða hver gerði þau, verður nú ekkert um sagt, þó að nafn Hálfdanar Sæmundssonar á Keldum sé helzt nefnt í sambandi við þau. Tekið úr bæklingi Guðmundar Skúlasonar um Keldur á Rangárvöllum, með leyfi höfundar. 13

x

Byggingarlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.