Byggingarlistin - 01.01.1960, Blaðsíða 34
Búnaðarbanki Islands
Austurstræti 5 Reykjavík
Sími 18200
Austurbæ j arútibú
Laugavegi 118 . Sími 14812
Miðbæjarútibú
Laugavegi 3 . Sími 14810
Útibú á Akureyri
Bankinn er sjálístæð stofnun undir
sérstakri stjórn og er eign ríkisins
I aðalbankanum eru geymsluhólf til leigu
Trygging fyrir innstæðufé er ábyrgð
ríkisins auk eigna bankans sjálfs
Bankinn annast öll innlend
bankaviðskipti. Tekur á móti fé í
sparisjóð og hlaupareikning
Arborite
Plastplötur á borð og veggi.
Fjölbreytt litaúrval og minstur.
Gæðin þau beztu sem þekkjast í dag.
Einkaumboð:
H. Benediktsson, hí.
Stjórnarráðshúsið nýja
Fyrir nokkrum árum voru fjórir arki-
tektar ráðnir til að teikna nýtt stjórn-
arráðshús í Reykjavík. Augljós er þörf
stjórnarvaldanna á að hafa stjórnar-
stofnanirnar í sem nánustum tengsl-
um við hverja aðra undir sama þaki,
í stað þess að hafa þær dreifðar í
leiguhúsnæði víða um bæ, og var því
vænzt, að skjótlega yrði sýnilegur á-
rangur þessa samstarfs.
Byggingarlistinni er ekki kunnugt, hve
langt verkinu hefur miðað.
Islenzk byggingarlist í bókum
A síðastliðnu sumri gaf Almenna
bókafélagið út bókina Islenzk íbúðar-
hús undir ritstjórn Harðar Bjarnason-
ar, húsameistara ríkisins. Bókin er
fyrst og fremst safn mynda af íbúðar-
húsum í Reykjavík og nágrenni, aðal-
lega einbýlishúsum. Getur þar að líta
mjög glöggt yfirlit þess, sem efst hefur
verið á baugi í húsagerð og híbýla-
prýði seinustu árin. Væri æskilegt, að
á eftir færi bókaútgáfa um íslenzka
húsagerðarlist á fleiri sviðum: skóla.
'kirkjur, verzlanir, skrifstofuhúsnæði,
iðnaðarbyggingar o. s. frv.
Hörður Bjarnason skrifar ágætan for-
mála, þar sem hann vekur athygli á
skyldum arkitekta sem ráðunauta
húsbyggjenda og ræðir hvað það er,
sem húsbyggjandi kaupir, þegar hann
ræður sér arkitekt. Einnig eru þar at-
hyglisverðar athuganir um bygging-
arlist, sérstaklega nútíma íbúðabygg-
ingar íslenzkar.
Ritstjóri hefur samið myndatexta, en
Pétur Thomsen tekið myndirnar að
nokkrum undanskildum, sem Andrés
Kolbeinsson hefur tekið. Atli Már sá
um uppsetningu bókarinnar, sem er
prentuð í Lithoprent h.f. Höfundar
annarra greina í bókinni eru: Helgi
Hallgrímsson, Jón A. Bjarnason, Jón
Sigurðsson og Sveinn Torfi Sveinsson.
Bókaútgáfan Norðri hefur gefið út bók-
ina íslenzk bygging, er fjallar um verk
Guðjóns Samúelssonar, fyrsta húsa-
meistara ríkisins. Þar eru myndir af
flestum opinberum og hálfopinberum
byggingum eftir Guðjón, einnig nokkr-
um íbúðarhúsum, sem reist voru eftir
fyrirsögn hans.
32