Byggingarlistin - 01.01.1960, Blaðsíða 5

Byggingarlistin - 01.01.1960, Blaðsíða 5
lit með því, að það sé ekki brotið, fá- sinna ein. Þó að einstaklingar, sem nefndur lög- fræðingur og ráðherra, líti lögin þess- um augum, geta meðlimir Arkitekta- félagsins það ekki, og við þessi málalok verður ekki unað. Árið 1955 hélt Alþjóða arkitektasam- bandið U.I.A. (norrænu arkitektasam- böndin mynda skandinavisku deild þess) IV. þing sitt í Haag. Til þings þessa komu fulltrúar frá 41 landi. Ein af veigamestu samþykktum þings þessa var samþykkt um störf arki- tekta: ,,Droits et Devoirs des Archi- tectes". I upphafsorðum þessarar samþykktar er skilgreint hugtakið arkitekt og staðfest þjóðfélagsleg þýð- ing arkitektsins. Því næst er vakin athygli á því, hvað það er, sem þjóðfélagið þarf að gera í þessum efnum. Það er í meginatriðum þetta: I. setja löggjöf, er skilgreinir hvaða kunnáttu og getu þarf til þess að rækja arkitektsstörf. II. að finna árangursríkustu kennslu- aðferðir og jafnframt meina að- gang að starfsgreininni þeim, sem ekki hafa nægan undirbúning til þess að rækja starfið, III. að setja reglur um starfsemi arki- tekta með það fyrir augum að tryggja sterka siðgæðisvitund þeirra, er slíka starfsemi stunda. IV. að hindra brot á samþykktum starfsgreinarinnar með því að setja reglur um refsingar við broti á samþykktunum. Norðurlöndin eru einu menningar- löndin, þar sem allir geta kallað sig arkitekt, án þess að vera sérlega til þess menntaðir. Slíkt veldur öryggisleysi meðal þeirra, sem byggja og hafa ekki sér- lega þekkingu á byggingarmálum, vegna þess að þeir haía enga trygg- ingu fyrir því, að arkitektsheitið feli f sér að sá, sem ber það, hafi öðlazt þekkingu og kunnáttu, er löggilt sé af því opinbera. Islenzk bygging er fyrsta bók sem gefin er út um íslenzka byggingar- list. Fjallar hún um ævi og starf Guðjóns Samúelsson- ar húsameistara ríkisins, en Guðjón skapaði fyrsta kaflann í íslenzkri byggingarsögu á steinsteypuöldinni. 200 ljósmyndir og teikningar prýða bókina. Bókaútgáfan Norðri ÞaS er þægilegt að verzla í Nesti hf. Maður situr kyrr í bifreiðinni og lætur rétta sér umbeðna vöru. Engin hlaup út í misjöfn veður. Engar áhyggjur af stöðumælum. Munið að Nesti hf. er alltaf á leið yðar þegar þér akið út úr bænum, því Nesti hf. er við Elliðaárvog og einnig í Fossvogi. Nesti hf. Fossvogi og við Elliðaárvog 3

x

Byggingarlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.