Byggingarlistin - 01.01.1960, Blaðsíða 32

Byggingarlistin - 01.01.1960, Blaðsíða 32
Hvað er Novopan plötur eru framleiddar úr spónum og límefni, sem gerir plöturnar mjög sterkar og vatns- þéttar. Novopan er framleitt í eftirfarandi stærðum og þykkt- um: Stærðir: 410x185 cm. (161,5"x72,8") Þykktir: 8-10-13-16-19-22-25-28 og 35 mm. Novopan er mjög hentugt í m. a.: Innréttingar alls kon- ar, s.s. veggklæðningar, loft, hurðir, dyraum- búnað, gluggakistur, skdpa, hillur, o. fl. bæði undir málningu og glært lakk. Einnig hús- gögn o. fl. o. fl. Novopan er nú framleitt í yfir 20 verksmiðjum í öllum helztu Evrópulöndum. Árleg framleiðsla er yfir 8000.000 Cub.m. Novopan er sterkt — Novopan er fallegt — Novopan vindur sig ekki. Stuttur afgreiðslutími, hagstætt verð. Allar upplýsingar gefur, Einkaumboðið Hannes Þorsteinsson & Co. Laugavegi 15 . Sími 2-44-55 Plast - þakgluggar (ovenlys) Gluggar þessir fást í eftirtöldum stærðum: 90x90 cm., 58,5x58,5 cm. Allar nánari upplýsingar gefa: Ludvig Storr & Co. milli Húsnæðismálastofnunarinnar annars vegar og Arkitektafélags ís- lands, Verkfræðingafélags Islands og Iðnfræðingafélags Islands hins vegar um samkeppni meðal fagmanna um húsateikningar, er Húsnæðismála- stofnunin mun síðar gefa almenningi kost á að kaupa við vægu verði. Verða veðlánateikningar gefnar út í bók til að auðvelda mönnum val á teikningum, en síðan verða seld heil „sett" af öllum teikningum, sem hafa þarf í höndum til að hægt sé að gera fullkomna efnisáætlun, pöntun og kostnaðaráætlun — og ekki sízt til að byggja megi skynsamlega, breytinga- og árekstralaust. Er vonandi, að þetta verði til að glæða skilning manna á kostum þess að láta sérmenntaða menn vinna þau verk, sem þeir hafa aflað sér meiri reynslu og þekkingar á en allur almenningur. Vonandi er einnig, að fólki verði nú ljóst, að ódýrara er að byggja vel hugsað og teiknað hús en vanhugsað og illa teiknað, jafnvel þótt greidd séu góð teiknilaun. Iðnaðarmálastofnun íslands Iðnaðarmálastofnun Islands sendi í júní s.l. frá sér skýrslu ársins 1958. Greinir þar frá margháttuðu starfi stofnunarinnar, svo sem tæknilegri upplýsingaþjónustu og aðstoð, sam- vinnu við erlendar stofnanir, fyrst og fremst framleiðsluráð Evrópu (EPA) um markaðsþjónustu, skattamál ís- lenzkra fyrirtækja og fleira. Einnig er getið samstarfs við Alþjóðasamvinnu- stofnunina (ICA), m. a. um að ljúka ís- lenzkri jarðvegslýsingu, athugun á framleiðslu íslenzks fosfatáburðar, framleiðslu og dreifingu sements, salt- vinnslu úr sjó, notkun geislavirkra efna í þágu iðnaðar, landbúnaðar og læknavísinda, umferðarmál og margt fleira. Þá er í skýrslunni greint frá tækni- bókasafni I.M.S.Í. Telur það nær 1500 skráð bindi um hagnýt vísindi. og framleiðslu, og hefur bókaskrá safns- ins verið gefin út. Stofnunin hefur með höndum kvikmyndaþjónustu og á um 60 kvikmyndir, þar af 40 með íslenzku tali. Eru þær lánaðar félögum og stofn- 30

x

Byggingarlistin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Byggingarlistin
https://timarit.is/publication/1048

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.