Byggingarlistin - 01.01.1960, Blaðsíða 33
unum. Ennfremur útvegar kvikmynda-
þjónustan kvikmyndir að láni víðs
vegar að.
Síðast í skýrslunni er ýtarlega skýrt
frá stofnun Byggingartækniráðs i.M.
S.Í., en í því eiga sæti fulltrúar Hús-
næðismálastj órnar, Atvinnudeildar
Háskólans, Verkfræðingafélags ís-
lands, Iðnaðarmálastofnunar Islands,
Arkitektafélags íslands, Landssam-
bands iðnaðarmanna.
Hlutverk Byggingartækniráðs er:
1. Að annast undirbúning að og hafa
umsjón með stöðlun í samráði við
stofnunina, með því m. a.:
a) að fjalla um og gera tillögur um
verkefni, m. a. með hliðsjón af
erlendum stöðlunum,
b) að gera tillögur um val fulltrúa í
stöðlunarnefndir,
c) að samræma störf einstakra
stöðlunarnefnda og endurskoða
stöðlafrumvörp, sem frá þeim
koma.
2. Að stuðla að hagnýtingu tæknilegr-
ar þekkingar, rannsókna og athug-
ana á sviði byggingariðnaðar, með
því að beita sér fyrir útgáfu fræðslu-
rita og annarri fræðslustarfsemi.
3. Að vera I.M.S.Í. til ráðuneytis í
tæknilegum efnum á sviði bygging-
ariðnaðar.
Hefur þegar verið unnið mikið starf á
þessu sviði, og er stöðlunin orðin mjög
veigamikill þáttur í starfi stofnunarinn-
ar.
Ráðhúsið í Reykjavík
Síðan byggingarnefnd ráðhússins
sleit samningaviðræðum við Arki-
tektafélag íslands um tillögur að ráð-
húsi fyrir Reykjavík, hafa nokkrir arki-
tektar unnið að uppdráttum að ráð-
húsi.
í byrjun júlímánaðar voru uppdrættir
lagðir fram í ráðhússnefnd, og mun
þess ekki langt að bíða að þeir komi
fyrir almenningssjónir.
Tveir þeirra sex arkitekta, sem starfið
hófu fyrir tveimur árum, hafa látizt á
tímabilinu. Auk arkitektanna hafa
unnið að verkinu 5 teiknarar og tveir
módelsmiðir, auk framkvæmdastjóra
nefndarinnar.
VIKURFELAGID % C
Framleiðum og höfum venjulega
fyrirliggjandi:
Vikurplötur 50x50 cm 5,7 og 10 cm
þykkar til einangrunar og í
milliveggi.
Hleðsluholstein, tvær gerðir úr
vikurmöl og rauðamöl.
Garðhellur og gangstéttarhellur,
3 gerðir.
Milliveggjaholstein og
einangrunarholstein 45x20x9 cm.
Seljum eftirfarandi:
Malaða vikurmöl — malaða og ómalaða
rauðamöl — vikursand — pússninga-
sand úr Stafnesi og Þorlákshöfn.
Húsbyggjendur - Arkitektar
Útvegum og höíum íyrirliggjandi þegar leyfi fást:
Sandborinn þakpappa — Eikarparket — Gólfflísar úr
marmara og Vynil — Korkparket — Múrhúðunarnet —
og yfirleitt allt hugsanlegt byggingarefni.
Útvegum hljóðeinangrunarplötur frá flestum löndum:
t. d. Brasilíu — Hollandi — Englandi og fl. En leggjum
áherzlu á CELO TEX hljóðeinangrunarplöturnar, fram-
leiddar af THE CELOTEX CORP, CHICAGO, sem eru
stærstu framleiðendur í heiminum á þessu sviði og sú
ódýrasta miðað við gæði. — Leitið tilboða.
Fljót afgreiðsla. — Mest seldu hljóðeinangrunarplötur
á íslandi.
Oftast fyrirliggjandi:
Smíðafura — Birkikrossviður — Furukrossviður —
Beykikrossviður — Gaboon — Masonite — Húsgagna-
spónn o. fl. — Eikarparket — Plastveggflísar og lím —
Saumur — Allar fáanlegar málningavörur — o. fl.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 . Sími 10600 (5 línur)
31