Byggingarlistin - 01.01.1960, Page 16
Suðurhli'ð Ncskirkju
Neskirkja
Arkitekt: Ágúst Pálsson
Smátt og smátt er mönnum að skiljast,
að kirkjubyggingar hafa á seinni ár-
um tekið algjörum stakkaskiptum 'til
samræmis við félagslegar og bygging-
artæknilegar breytingar. Kirkjum er
ekki lengur einungis ætlað að vera
tákn um dul Guðs eða tign, heldur
einnig og öllu fremur hagkvæm hús
þar sem guðsþjónustur og félagsstarf
safnaða fara fram, og af því mótast
form þeirra og útlit.
Nútímabyggingarlist hefur komið til
móts við þessar nýju kröfur og skapað
á grundvelli þeirra ýmis sérstæð og
nýstárleg verk. Slík sjónarmið hafa
ekki átt upp á pallborðið hjá ráða-
mönnum íslenzks þjóðfélags, og því
er ekki von að almenningur sé vel á
vegi staddur í þessum efnum, enda
lætur hann óspart ginnast til fíflsku-
verka á borð við Háteigskirkju og
Hallgrímskirkju.
Neskirkja mun er fram líða stundir
verða talin tímamótaverk í íslenzkri
listasögu (ég skýt því hér inn í svo öll-
um sé ljóst: að ég tel húsagerð til list-
ar, góðrar eða slæmrar eftir atvikum)
einmitt vegna þess að hún er uppreisn
gegn afkára-skap og afdalamennsku.
Höfundur hennar er brautryðjandi
nýrra heilbrigðra og skynsamlegra
sjónarmiða í íslenzkri byggingarlist,
ekki sízt varðandi byggingu guðs-
húsa, og það sem meira er um vert:
hann sýnir okkur þau í verki. Hann
hefur sjálfur gert ágætlega grein fyrir
viðhorfum sínum:
,,Jeg hefi hagað lögun kirkjunnar fyrst
og fremst með tilliti til þess, að hljóm-
flutningur og áhrif birtu fái sem best
14