Byggingarlistin - 01.01.1960, Síða 30
Fréttir
Einangrun búin til úr plastefnum hefur nú rutt sér mjög til rúms sökum
ótvíraeðra kosta fram yfir önnur einangrunarefni.
REYPLAST hefur mun meira einangrunargildi en flest önnur einangrunar-
efni, sem hingað til hafa verið notuð.
REYPLAST tekur nálega ekkert vatn í sig og heldur einangrunargildi sínu,
þó svo að raki eða vatn komist að því.
REYPLAST fúnar ekki né tærist og inniheldur enga næringu fyrir skordýr
eða bakteríugróður.
REYPLAST er léttast einangrunarefni og hefur mestan styrkleika miðað
við þyngd sína.
REYPLAST er hreinlegt, auðvelt og ódýrt í uppsetningu. Það má líma á
steinveggi með steinsteypu og múrhúða án þess að nota vírnet.
REYPLAST er venjulega til í mörgum þykktum og hægt er að framleiða
það með mismunandi styrkleika eftir ósk kaupenda.
REYPLAST hefur það mikið einangrunargildi fram yfir önnur einangrunar-
efni, að þar sem þörf er fyrir mjög mikla einangrun, svo sem í frystihúsum,
kæliklefum og víðar, má komast af með verulega þynnri einangrun, og
vinnst þannig aukið rúm.
Reyplast einangrunarplötur eru framleiddar af REYPLAST H.F.
Grensásveg 14.
SÖLUUMBOÐ:
J. Þorláksson & Norðmann hf.
Bankastræti 11 — Skúlagötu 30 — sími 11280.
Hörpu silki
Innan- og utanhússmálning
Nýir litir
Harpa hf. Skúlagötu 52 . Einholti 8 . Símar
Byggingarþjónusta Arkitektafélags
Islands
Arkitektafélag Islands hefur sett á
stofn byggingarþjónustu til aðstoðar
við almenning og fræðslu um bygg-
ingarmál og byggingarlist. Hefur hún
í þessu augnamiði með höndum sýn-
ingu byggingarefna og fleira, sem
síðar verður nánar að vikið hér í rit-
inu.
Skólar
Undanfarin ár hafa verið reist allmörg
skólahús í Reykjavík og úti um land.
Hinir svokölluðu „paviliong''-skólar
munu hér í meirihluta, í stað tveggja
og þriggja hæða hliðarganga-skól-
anna, sem áður voru almennastir.
Enn er of snemmt að dæma um
reynslu þessara skóla hér á landi, en
þeir eiga vaxandi vinsældum að
fagna erlendis.
í Reykjavík eru í smíðum eða teiknun
skólar við Réttarholtsveg, Dunhaga,
Hamrahlíð og Laugalæk. Þá er hafin
bygging kennaraskóla við Stakkahlíð.
Skriðmót — háhús — háskólabíó
Síðan haustið 1956 hafa verið reist í
Reykjavík nokkur háhús, en svo nefn-
ast hús sem hærri eru en 6 hæðir, oft-
ast 8 hæðir eða meira. Samtímis hafa
verið tekin í notkun við húsabygging-
ar svokölluð skriðmót, en af þeim
hafði áður fengizt nokkur reynsla hér-
lendis við byggingu súrheysturna.
Með þessari aðferð hafa nú verið
byggð nokkur fjögurra til fjórtán hæða
íbúðarhús, auk Háskólabíósins sem
er að verða fullsteypt þegar þetta er
ritað. Sú nýjung var þar viðhöfð að
burðarbitar þaksins — sem eru eins
konar „gittersperrur”, logsoðnar sam-
an úr flatjárni —- voru settir saman á
jörðu niðri, en síðan var allri burðar-
grind þaksins lyft með skriðmótunum
jafnóðum og salarveggir voru steypt-
ir. Var þetta um 80 tonna þungi, auk
þunga mótanna og þess er þeim fylg-
ir. Talið er, að með þessu sparist 400
—500 þúsundir króna.