Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Qupperneq 9

Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Qupperneq 9
nvtt 1. HEFTI III. ÁRG. JANÚAR—APRÍL Bls. 3 Forspjall: Neikvæð kosningaúrslit, Asgrímshús 8 Kristján Karlsson: Oll bess; gæði (Fjórar sögur frá Manhattan I.) 13 Jóhann S. Hannesson: Til læknis- ins vinar mins 14 Kristján Albertsson: Þú skalt ekki (Bréf til Helgafells) 22 Sir John Suckling: Söngur 23 Björn Th. Björnsson: A rústum Kaupmannahafnar 38 Undir skilningstrénu 39 Bókmenntir eftir Kristján Karlsson og Jónas Kristjánsson 46 Úr einu í annað RITSTJÓRN: Tómas Guðmundsson Ragnar Jónsson ábm. Kristján Karlsson Jóhannes Nordal NEIKVÆÐ KOSNINGAÚRSLIT Fáir munu neita því, að vér búum í þjóðfélagi, sem er margbrotið og torskilið, og farsæl stjórn þess krefst úrlausnar margra viðfangsefna, sem ekki verða skýrð né skilin til neinnar lilítar nema af íáeinum sérfræðingum hverjum á sínu sviði. Það virðist vissulega í nokkru ósamræmi við þetta, að vér skulum búa við þjóðskipulag, sem felur æðsta úrskurðarvaldið í hendur alls almennings á þann hátt, að mönnum gefst kostur á því á nokkurra ára fresti að setja kross fyrir framan nöfn frambjóðenda, sem til þess hafa verið valdir af foi-sjón stjórnmálaflokkanna. Sízt er að undra þótt á þennan hátt fáist ekki skýrlega úr því skorið, hver sé hinn raunverulegi vilji kjósenda varðandi lausn hinna fjölmörgu vandamála þjóðarbúsins, sé yfirleitt um slíkan vilja að ræða. Hefur af þessu viljað skapast mikil óvissa og deilur um þann boðskap, sem kosninga- úrslit hafa að færa, sem hvorki hefur stuðlað að styrkri né framsýnni stjórnarstefnu. Ýmsum vitrum mönnum hefur orðið starsýnt á þennan veikleika lýðræðisins. Á það hefur verið bent, að þingræðisstjórnarfar væri betur til þess fallið að koma í veg fyrir harðstjórn og gerræði en að tryggja farsæla og skynsamlega meðferð þjóðmála. Þetta liggur í rauninni í hlutarins eðli.

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.