Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Síða 13

Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Síða 13
FORSPJALL 7 líku líkt, heldur ber að svara áróðri með sannindum, æsingum með skynsamlegum fortölum og ofbeldi með réttlæti. ★ ★ ★ I* erfðaskrá sinni arfleiðir Ásgrímur Jóns- son íslenzku þjóðina að öllum eignum sínum, og er þar á meðal safn fjölda mynda frá öllum skeiðum listamannsferils hans. Hafa fáir synir íslands ASGRIMSHUS gkilað dýrmætari arfi j hendur þjóðar sinnar, og er ekki vanda- laust, hversu með skuli fara. Ásgrímur mælir svo fyrir, að málverkasafn það, er ríkið erfir, skuli varðveitt í húsi hans Berg- staðastræti 74, unz byggt hefur verið lista- safn, þar sem myndasafni hans verði ætl- að svo mikið rúm, að unnt sé að fá gott yfirlit um það. Gjöf Ásgríms ætti að verða íslending- um ný og öflug hvatning til að ráðast hið fyrsta í að reisa fullkomið hús fyrir lista- safn ríkisins. Hins vegar er augljóst, að það hljóta að líða mörg ár, áður en því stór- virki er til leiðar komið, jafnvel þótt all- ir séu af vilja gerðir. Á meðan yrði safn Ásgríms að mestu íalið, því að heimili hans er lítið og stofur þröngar, og er enginn kostur að hafa myndir hans til sýnis þar, svo að menn fái notið þeirra. Þennan vanda mætti leysa á hinn ákjós- anlegasta hátt með því að byggja sýning- arskála á lóð Ásgríms, en nægilegt rúm er fyrir sunnan og vestan hús hans til að byggja hóflegan skála. Má grafa hann að nokkru leyti í jörð, svo að hann falli vel í umhverfið. Hann þarf ekki að vera svo stór, að hægt sé að sýna þar allt safn Ásgríms samtímis heldur aðeins nokkurn hluta þess í einu. Þyrfti hann ekki að vera stærri en 80—100 fermetrar, og ætti slík bvgging varla að kosta nema 300 þúsund krónur; ef vel er á haldið. Skálann ætti að byggja þannig, að hann henti vel til að vera vinnustofa málara, enda væri ákveðið þegar í upphafi, að hann verði, ásamt íbúðarhúsi Ásgríms, gerður að heiðursbústað fyrir íslenzkan málara, þeg- ar búið er að koma myndum Ásgríms fyrir í væntanlegu listasafni. Bygging slíks sýningarskála er ekki meira verkefni en svo, að auðvelt ætti að vera að hrinda því í framkvæmd fljótlega. Engu að síður mundi það nægja til þess að tryggja það, að íslendingar geti hið fyrsta notið hinna fögru mynda, er hinn ástsæli snillingur hefur gefið þeim. Jafn- framt mundi svo um hnúta búið, að eign- ir Ásgríms yrðu að sem mestu notum fyrir þá málara, sem í framtíðinni munu halda hæst merki íslenzkrar listar, og má öruggt telja, að ekkert hefði verið hinum látna listamanni kærara.

x

Nýtt Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.