Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Síða 16

Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Síða 16
10 HELGAFELL „Er það satt“, sagði konan með talsverðri nmhyggju, „myrtuð þér mann?“, en Smolenski tók að gera sér í hugarlund, hvað Bern- stein myndi gefa fyrir þessa eyrnalokka. Varla innan við tíu dollara. Að svo búnu mat hann í huganum armband konunnar og hálsfesti á fimm dollara hvort í pant. Það var engin nýlunda, að fínt fólk kæmi yfir á Third avenue til að drekka í friði, og það eru til fínir barir á Third avenue, sem lítið ber á. En venjulega kom það ekki með skartgripi sína inn á staði eins og Kellys-bar; það tók þá ofan á leiðinni sakir hæversku eða varúðar. „Eyrnalokkarnir eru ekta,“ sagði konan, „en hvorki festin né armbandið. Þér hafið kannske myrt til fjár?“ „Iívað?“ spurði Smolenski. „Fyrirgefið þér, en ég liefi dálítið vit á gulli.“ Hann sagði þetta með höfðinglegum virðuleik eins og þjónn í ódýrri búð að tala við útlending (Smolenski hafði reyndar einu sinni verið búðarþjónn í skartgripaverzlun sem gengur inn í vegg við hliðargötu milli Sixth avenue og Broadway), og bjó sig jafnharðan undir, af gömlum vana, að segja henni langdrenga og dálílið íburðarmikla sögu um reynslu sína af dýrgripum. Honum var náttúrlegt að skýra mál sitt í þaula, hann hafði glöggt auga fyrir aukaatriðum ef svo má segja, og langvistir á ýmsum börum á Third avenue, þar sem dagarnir eru allir á breiddina, en eiga hvorki lengd né dýpt, höfðu fært honum heim sann- inn um gildi þess að kunna að teygja lopann. „Faðir minn var gimsteinasali í Pét- ursl)org“, ætlaði hann að byrja til að sjá hvern- ig úr rættist. En konan ókyrrðist. „Jæja“, sagði hún, „mig langaði til að spila lag á vélina. Ekki eigið þér víst fimm sent?“ Smolenski rétti henni peninginn og hún gekk yfir að lagakistunni. Þar með hafði þessi ókunna kona höggvið skarð í hina dýrmætu upphæð, sem Smolenski hafði fengið hjá Izzy Bernstein um morguninn, en ætlað til ann- ars, og hann tekið að binda fé sitt í órannsakanlegum fyrirætlunum hennar á Third avenue, svo að bráðum varð ekki snúið til baka. Kelly kom og lét hallast fram á barinn móti Smolenski. Ilann hafði verið inni í eld- húsinu á bakvið, þar sem hann geymdi ævin- lega pottflösku af góðu rúgviský handa sjálf- um sér. Um þá flösku vissu engir með vissu, nema Smolenski. Kelly áleit, að sér myndi veitast örðugra að halda aga á bar sínum, ef gestirnir stæðu hann að því að drekka. Hann þótti siðastrangur, einkum við ókunnuga, og orð fór af, að hann gæti verið mjög illvígur við óeirðarmenn. Hann átti svarta kylfu ekki ósvipaða þeim, sem lögreglumenn bera, og geymdi hana á vísum stað bak við þvotta- skálina undir barnum. Hann var stór maður og dálítið þrútinn með blóðhlaupin augu. Þeir Smolenski voru vinir. Margoft hafði Smolenski setið hjá vini sínum í eldhúsinu eftir lokun og drukkið með honum síðustu löggina úr flöskunni. Enginn nema Smol- enski vissi, að Kelly hataði gesti sína og taldi þá standa á lægra tilverustigi en kakka- lalckana, sem heimsóttu bai-inn í tugþúsunda tali þegar búið var að slökkva. „Þeir eru að þrífa til eftir hinar skepnurnar“, sagði Kelly og gnísti tönnum. Það var kækur hans eftir lokunartíma. En kæti hans var sízt minni þá. A liinn bóginn vissi enginn nema Kelly, að höfuðkúpa Smolenskis, en ekki fætur hans, hafði laskazt af sprengjubroti í stríð- inu (enda þótt ilsig bagaði hann líka). Smol- enski hélt þessu leyndu fvrir öðrum, af því að hann kærði sig ekki um að vera talinn bilaður í höfðiuu. Ilann treysti Kelly og bar- maðurinn brást ekki trausti hans. Þeir voru vinir. „Hún ætlar sér þig,“ sagði Kelly og rétti Smolenski staup af viský með bjórnum. „Henni lízt vel á þig.“ „Hver er hún?“ spurði Smolenski, „þekk- irðu hana?“ „Þau,“ sagði Kelly, „þau. Líturðu ekki í kringum þig? Hún er ekki ein.“ Smolenski lét ekki ginnast til þess að svip- ast um á nýjan leik, en yppti öxlum. Honum líkaði ekki tónn vinar síns. Kerskni var hon- um ekki að skapi, og hann þóttist finna, að Kelly væri drukknari en hann átti vanda til

x

Nýtt Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.