Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Blaðsíða 36

Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Blaðsíða 36
30 HELGAFELL Gamli kirkjugarðurinn við Trinitatiskirkju. Undir stein- stéttinni. einhversstaðar, er Arni Magnússon grafinn. skipulag á slökkvistarfið. General Major Arnholt kommanderar á Kaupmangaranum, Statsadjunkt Barfod í Gottersgötunni, en sjálfur „Printzenn'' niður með ströndinni, andspænis Kristjánshöll. Jafnvel matrósarn- ir, sem Hólmsins aðmíráll hafði kallað hundspott nóttina áður og skipað að passa fleyturnar meðan staðurinn brann, voru nú sendir til að slökkva, og það „under lýf- straff". „Stodu menn þar so þyckt sem gardur med ströndenne, og rette hver ödrum vatned úr ströndenne, og breiddu vota segldúka á húsenn. Var þá hver madur tekenn fyrer utan allt manngreinarálit.'' Undir laugardagsmorguninn tekst svo að hefta meginbrunann, þótt enn logi á stöku stað (og raunar allt fram að jólum), enda, segir Jón, „var nú gamla Kaupenhöfn mest öll afbrunnenn". „f þessum bruna er sagt brunned hafe 60. edur 61. gata, og i þeim 1700 ibudarhús og nær þvi halft þridia 1000 ef allar Woningar [þ. e. íbúðir] eru reikn- adar ... Hier i stadnum voru fyrre 82. brugg- arar. nú epter 22." Eftir að eldurinn var slökktur og útgenginn mýgrútur af próklamötum um eitt og annað, svo sem bann við því að „baka nema gott Rúgbrauð, enn eckert delicat braud edur smábraud", bann til bruggara að brenna brennivín, fyrr en „grant" hefðu verið „rann- sakadar þeirra pönnur" og annað slíkt, fór sá kvittur að ganga staflaust um borgina, að ekki væri einleikið um eldsuppkomuna. Þarf ekki að efa að slíkar hviksögur hafi farið rökustu boðleið um brúnarústir Kaupin- hafnar, því það er mannlegur breyskleiki að þykja þau kaun léttbærri sem öðrum verða kennd: „A þessum dögum var margt talad um mordbrennara, ad þeir være i stadnum. Kendu sumer þad Hamborgurum. Sögdu þeir hefdu tilsett og tilkeypt heimulega einhvern stóran mann hier i stadnum til ad brenna hann af, og boded gulltunnu fyrer hvert horn edur 4dung stadarens, sem af yrde brent, og frá honum være útsender aller þesser brennevargar. Þetta skyllde vera hefnd fyrer forboded þad i fyrra, ad versla vid þá pen- ingum." Það er gömul saga, að pyromania eða eldsýki fylgi eftir flestum stórbrunum, og stafar annarsvegar af biturleik þeirra sem misst hafa eigur sínar, en hinsvegar af ein- skærri sturlun, sem gat á tíðum orðið að múgæði. Nefnir Jón nokkur dæmi slíks, svo sem: „24. stack einn Danskur granater (ad sagt var) ellde i Schwalbergaaren, sem er skamt frá Nicolaikyrkiu og þad um há- messutima. Reid Printzen epter hönum med ödrum, og náde sialfur ofan i kollenn á honum á Hallandsás” [þar sem nú er Kóngs- ins Nýjatorg]. Aðra hefur gripið ógnarleg eldhræðsla, svo sem skiljanlegt er eftir aðrar eins ham- farir: „Fólked liet og furdu rádlauslega af litlum edur aungvum rökum, ad þar edur þar være elldur uppe, þá þad var stundum eige annad enn glampe af skyum á hús- þökum.edur liós birte út um glugga." Það voru svo sem aðrir hafðir að blóra- bögglum en Hamborgarar einir. Kaupmanna- hafnarbúar hafa einnig kunnað þá klass- isku list, að kenna gyðingum um sjálfskap-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.