Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Page 42

Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Page 42
36 HELGAFELL Christian Povelsön Fyen, Jislands Kiöbmand. Hann á húseign við Vestergade 3/222, aðra við Studie Stræde 13/60 (skuldar raunar all- mikið í henni, þar af 800 rd. til Worms biskups), og enn á hann fjögur samliggjandi hús við St. Clemens Stræde 4/137. Mogens Christensön Jislands Kiöbmand, er fjárhaldsmaður barna sem eiga 400 rd. í húseign við Gammel Mynt. Hans er ekki getið að öðru leyti. 85/116. Til yfirlits má taka fólk það, sem nefnt er í manntalinu og íslandi er beint viðkom- andi, saman í þessa flokka: íslandskaupmenn .................. 39 Skipstjórar, stýrimenn ............ 9 íslandsfarar (Iszlands fahrer) ... 29 Hásetar, bátsmenn (Jszlands Matros, Iszl. Baadsmand)....... 20 Matsveinar (Jszl. Kock)............ 8 Vinnumenn v. íslandsverzlun (Iszlands(k) Arbejdskarl) ........ 21 Beykir (Iszlands Bödker) ......... 19 Aðrir viðriðnir íslandsverzl. ... 4 íslenzkir stúdentar................ 5 Aðrir íslandi viðkomandi....... 6 Alls 160 manns. Nú verða að sjálfsögðu ekki dregnar af þessu neinar ályktanir nema mjög almenns eðlis. Til þess eru forsendurnar allt of reik- ular. Séu tölur þessar hinsvegar íhugaðar, má vel gera sér í grun hina miklu hlutdeild sem íslandsverzlunin átti í athafnalífi Kaup- mannahafnar á þessum árum. í manntalinu eru alls nefndir 54363 íbúar í Kaupmanna- höfn, eða ámóta margir og byggja Reykja- vík í dag. íslandskaupmennirnir 39 eru marg- ir hverjir stórefnaðir menn, sem beina auði sínum út í ýmiskonar atvinnurekstur, sem er beint eða óbeint háður verzlun þeirra, svo sem bruggun, timburiðju, skipasmíði, að ógleymdri hinni umfangsmiklu dreifingu ís- lenzku afurðanna. Synir þessara manna og venzlamenn margir gerast og fjárafla- og athafnamenn með fjölskylduauðinn að bak- hjarli. Nú er alls ekki svo að skilja, að auð- ur þeirra þurfi nauðsynlega að vera frá ís- landsverzluninni runninn í upphafi. Hitt er fullt eins líklegt, að efnahagur þeirra hafi einmitt gert þeim kleift að komast í þá ein- okrunaraðstöðu, sem íslandsverzlun var á þeim tíma. Orsök og afleiðing verða hér seint sundurskilin. Eitt virðist þó liggja í augum uppi. Það er, að tala þeirra manna sem sagðir eru vinna við íslandsverzlunina í manntalinu, er í alls engu samræmi við tölu íslandskaupmann- anna, sem voru óumdeilanlega langsamlega mestu atvinnurekendur Danaveldis á 18. öld. Að minnsta kosti mundi slíkur stóratvinnu- rekstur teygja rætur sínar langt og víða um efnahags- og athafnalíf Reykjavíkur vorra daga. Það hefur löngum verið árátta íslendinga sem hafa grúskað í erlendum skjölum að hlusta vel eftir nöfnum, sem gætu skilað aftur týndum íslendingum. Sögu okkar er hver maðurinn mikils virði, og því verður að meta mér til vorkunnar þótt ég gerist nokkuð þunnheyrður. Fjöldi íslendinga hefur ráðizt í dönsku verzlunina, sumir sjómenn, sumir smiðir, vikadrengir og erfiðismenn, og eflaust hefur það verið báðuð aðilum í hag eins og á stóð: öðrum lífsbjörg á neyðartímum, hinum ódýr vinnukraftur. Margar íslenzkar konur hafa gifzt Dönum; um það höfum við heim- ildir. Vafalaust hefur verulegur hluti þessa fólks ílenzt í Kaupmannahöfn, samið sig að þarlendum siðum og sveigt nöfn sín til dönsku svo sem siður var. Stundum taka menn sér algerlega dönsk nöfn, svo þjóð- emi þeirra verður aldeilis ókennilegt, nema þá að öðrum leiðum. íslenzkur gullsmiður, Egill Marteinsson, heitir til dæmis Eilert Martin í skrám danska gullsmíðagildisins; Pétur Þorvaldsson heitir t. d. Peder Thorsen. í sambandi við manntalið hef ég þegar tekið upp nokkra, sem heita íslenzkulegum nöfnum, og mun enn bæta nokkrum við.

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.