Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Side 43

Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Side 43
Á RÚSTUM KAUPMANNAHAFNAR 37 Þess er vel að gæta, að miklu minni munur var á dönskum og íslenzkum nafnvenjum a 18. öld en nú. Þessi eru hin helztu, sem hafa orðið fyrir mér: Simon Sibjörnsen, timburmaður á Hólmin- um 266/38. Nafnið Sibjörn (Sigbjörn?) eða því líkt kemur aðeins fyrir á einum stað öðrum í manntalinu, þ. e. í nafninu: Torchild Siöbiönsen, sem er talinn húseig- ctndi 291/162. Hans Guttormsen, kalkleskir 291/162. Ég hef aðeins fundið Guttormsnafnið á einum stað öðrum. Sivert Markussön, háseti 61/156. Ekki var oalgengt að Sigurðar tækju upp Sivertsnafn í Danmörku, sbr. hinn kunna íslenzka öldur- niann gullsmíðagildisins Sivert Thorsteinson. Allmikið er enn af nöfnum sem gætu virzt ís- lenzkuleg, en ástæðulaust er að álíta íslenzk nema annað komi til. Þau eru til dæmis: Andres Eiörnesen, Gunder Thorstensen, Peder Kolbiörnsen, Torgier Torgiersen, Even Jonsen, Toer Torbiörnsen, Aslach Gunder- sen og Kristen Tormundsdatter, „hvis Mand <3aar í Bremmerholms Jem". Því miður er ekki gert manntal á Brimar- hólmi, þeim stað sem íslendingar þekktu bezt og gistu trúlegast. Það liðu ekki mörg ár frá brunanum mikla, þar til Kaupmannahöfn var aftur staðin upp úr rústunum. Hlykkjóttar göturnar vom teknar beint, og langhliðum húsanna snúið fram í stað gaflanna áður. Borgarskapurinn spásseraði á nýjan leik með maddömur sínar ofan eftir Kaupmangaranum, hafandi blúnduverkin fram úr ermunum, iðnaðar- menn hengdu út nýfægð skiltin sín og öld- urhúsin nefndu sig eftir tízkunni: I de tre Parykker fiin, Kiöber man Ö1 og Brændeviin. Aftur glóði spíra Vorfrúarkirkju yfir Latínu- hverfið. Svona stássleg reis Kaupmannahöfn upp á ný. Og hún hefur lítið hirt um að telja það pund, sem fáfróður bóndinn í Hreppunum eða tómthúsmaðurinn á Hofsósi höfðu nudd- að sama í þessi herlegheit. Og enn má á stöku húsi í Kaupmannahöfn sjá áletrun frá þessum gömlu dögum, meðan Kóngurinn sat einn yfir fólkinu, en yfir Kóng- inum sat aðeins Guð: Jeg blev i aske lagt Ved ildens store magt, Men Gud min beste Ven Har reist mig op igjen. Teikningamar í greininni em eftir Axel Nygaard.

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.