Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Blaðsíða 44

Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Blaðsíða 44
cS HELGAFELL UNDIR SKILNINGS TRÉN U ________________________________________ Leið oss ekki í freistni íbúar við Skipholt og Nóatún hafa skrifað bæjarráði þar sem þeir mótmæla rekstri veit- ingahúss í nágrenninu. Alþbl. 1. 3. ’58. Svo er verið að kalla Þjóðviljann óþjóðlegan! En í samanburði við þýddan leirburð er ís- lenzkur leirburður vissulega dýrlegur. Þjóðviljinn 13. 2. ’58. Skortur á sjálfsafneitun Síðari hluti bókarinnar er þýdd ljóð. Kenn- ir þar margra grasa og margra góðra, en skáld- inu er furðu ósýnt um að velja og hafna erlend- um viðfangsefnum. Tímarit Máls og menningar, marz, ’58. Er draummaður Helga Sæm óánægður kostgangari á Skjaldbreið? Laust fyrir klukkan hálf-tólf á laugardags- kvöld vissu stúlkur, sem voru við vinnu sína í eldhúsi Hótels Skjaldbreiðs, ekki fyrr til en þrjú byssuskot lentu ofarlega á glugga í þvottakrókn- um. í gærkvöld hafði lögreglan enn ekki haft upp á þeim sem staðið hafði fyrir skothríðinni. Frétt í dagblöðum. En barneignir innan lijónabands? Þegar sleppt er smásyndum svo sem bameign- um utan hjónabands og brennivínsdrykkju í sæmilegu hófi, . . . Þorsteinn Jónsson, Mbl. 13. 2. ’58. Auðlegð andans Þennan fagra sautjánda júnímorgun, eins og andríkir menn mundu orða það, var gott að lenda báti við klappirnar á Straumnesi. Jólablað Tímans, ’57. Allur er varinn góður Mér er næst skapi (sic) að halda, að mjög fáir menn verði mikil skáld eða snjallir rithöf- undar án þess að fá auk meðfæddrar gáfu, nokkur skilyrði til þess, að svo megi verða. Þorsteinn Jónsson (Þórir Bergsson) Eftirmáli við Sögur, 1956. Kúlupokahnýtingar að ágerast? Einnig vinna bæði kynin að kúlupokahnýting- um . . . Að söngæfingu lokinni gafst okkur tæki- færi til að sjá nemendur við kúlupokahnýting- ar . . . Við kúlupokahnýtingar fá nemendur greidda þá poka sem þeir hnýta umfram það, sem þeim er sett fyrir hverju sinni. Tíminn 11. 3. ’58. Öðru vísi en Helgafell Það er sannarlega hrikaleg staðreynd, að hjá því fólki, sem þótzt hefur vera einhver mesta bókaþjóð í Norðurálfu skuli nú tuttugu slúður- tímarit og framhaldsreyfarar vera gleypt með svo mikilli áfergju, að gefa verður út marzheftið áður en febrúar er liðinn.... Þjóðv. 13. 2. ’58. (Leturbr. Helgafells) Uss! Voltaire horfði á Saint-Lambert gegnum tár- in og sagði hógvær og hryggur: „Ó, vinur minn, þú hefir drepið hana fyrir mér.“ Svo bætti hann við og réð sér nú ekki fyrir bræði: „Ó, guð minn góður. Hvernig datt þér í hug að fara að barna hana?“ Tíminn, 2. 3. ’58. Já, en má þá treysta því, að þau hafi ekki verið gift? Reykvíkingar óvarpa hunda. Sveitakona gekk í humátt á eftir ungum reyk- vískum hjónaleysum á götu í Reykjavík. Varð þá á vegi þeirra hundur í bandi. Hinn vörpu- legi sveinn ávarpaði hundinn kompánlega svo segjandi: „Hæ, daddý!“ Hundurinn rak þá upp lítils háttar bofs. Ung- mærin hrökk í kút og hrópaði: „Almáttugur; Er hann mannýgur?" Frjáls Þjóð. Hættulega áberandi [Kópavogskirkja] Líkan af kirkjunni var til sýnis á safnaðarfundinum. Mönnum bar saman um, að húsameistara hefði tekizt mjög vel að leysa verkefni þetta, sem er nokkrum vand- kvæðum bundið. Er það aðallega hve kirkjan stendur hátt og sést vítt að, en henni hefur ver- ið valinn staður á hæð vestan Hafnafjarðarveg- ar, þar sem hún blasir daglega við sjónum margra. Er þar mjög fallegur staður. Vísir 12. 2. ’58. Þarf ekki gos Maður sem er 80 kg að þyngd, hefir ... 56 lítra af vökva til að þynna alkohólmagn sitt. Nýtt Helgafell. II, 4.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýtt Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.