Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Síða 51
BÓKMENNTIR
45
sem því líður, hefur Sigurður 0. Björnsson
rekið slyðruorðið af prentiðn Norðlendinga.
Sumar þeirra bóka, sem hann hefur prentað
á síðari árum, eru meðal fegurstu og vönduð-
ustu bóka, sem nokkru sinni hafa verið út
gefnar á íslandi. Nefni ég þar einkum til þessa
bók Olafs Jónssonar og rit Kristjáns Eldjárns,
Kuml og haugfé úr heiðnum sið.
Jónas Kristjánsson
Dægurfluga
Loftur Guðmundsson: Jónsmessunœturmar-
tröð á fjallinu helga. Bókaforlag Odds Björns-
sonar, 1957. Skáld sem setja saman órímuð
Ijóð, eða málarar seiu líkja ekki eftir því sem
gefur að líta í ríki náttúrunnar, eru stundum
grunaðir um að kunna ekki að sveigja list
sína undir sama ok sem fyrri tíðar menn.
Ekki er heldur öllum sögumönnum léð sú list
að færa frásögn sína í þann búning sem lengi
hefur verið í hávegum hafður og nefnist róm-
an eða skáldsaga. En þegar höfundur brýtur
lögmál skáldsögunnar vitandi vits, má gruna
hann um að velja þann kostinn vegna þess
að liann sé ekki fær um að setja saman
ósvikna skáldsögu.
Bók Lofts Guðmundssonar, Jónsmessunæt-
unnartröð á fjallinu helga, hefur jafnan verið
kölluð skáldsaga og metin samkvæmt því. En
þetta er ekki réttmætt. Höfundur reynir ekki
að búa til skáldsögu, enda alls óvíst að hann
sé þess megnugur. Ef menn hafa þetta í
liuga, munu þeir skilja betur vinnubrögð höf-
undar og dómarnir verða mildari. (Bókin hef-
ur að vísu hlotið mikið og nær einróma lof
1 dagblöðunum, — en hver tekur mark á
því? í daglegu tali manna virðist mér kveða
yið annan tón.) Höfundur gefur hugarflugi
siuu lausan taum, en reynir ekki að aga hugs-
un sína og fella hugarórana saman í heild.
Bókin er algerlega „frjáls og óbundin fantasí“,
eins og Gröndal mundi sagt hafa. Henni hef-
ur og verið jafnað til Heljarslóðarorustu
Gröndals. Ekki mun þó vera um bein áhrif
að ræða. enda höfundarnir harla ólíkir að
niörgu leyti. En báðum er áskapað hugmynda-
Aug, sem er „fjörugt og rífandi“. „Hugmynd-
^rnar veltast stundum svo ótt inn á mig að
eg hef ekki við og missi helminginn af þeim,“
segir Gröndal, og ef til vill liefur Loftur Guð-
mundsson reynt eitthvað svipað, þegar hann
skrifaði Martröð sína. Þó er Martröðin engin
Iíeljarslóðarorusta í nýjum stíl. Iíöfundurinn
á ekki ritleikni Gröndals og þolir því ekki að
láta móðan mása á sama hátt sem hann. Hug-
urinn svífur hátt og víða, en gáfurnar eiga
fullt í fangi með að fylgja honum á fluginu.
Og I.oftur Guðmundsson á ekki þann brunn
þekkingarinnar sem Gröndal situr yfir og eys
af á báða bóga.
Bók Lofts Guðmundssonar svipar til gaman-
samra leikþátta sem gerðir eru til að skop-
ast að fólki og fyrirbærum samtímans. Sjálfur
mun hann áður hafa samið ýmsa slíka skop-
þætti sem leiknir hafa verið í útvarp og ef
til vill víðar. Slíkir þættir eru ekki ætlaðir
til langlífis, allt sem gerist á leiksviðinu
er tákn einhverra hluta sem áhorfand-
inn kannast við í veruleikanum. Höfundur
Martraðarinnar skapar ekki sjálfstæða veröld
innan umgjörðar bókarinnar, og því hljóta
atburðir hennar að gleymast, persónur henn-
ar — og skrímsli — að deyja, þegar tímar
líða fram og sambandið við veruleikann rofn-
ar: Drekinn marghöfðaði í Rauðuskógum
verður að engu, þegar við gleymum því að
liann jarteiknar Sovétríkin í raun og veru.
Höfundur vill vera fyndinn, en kann ekki til
fullnustu að hvessa skeyti sín. Góðum hug-
myndum er spillt með langdregnum vaðli;
bókin hefði verið hálfu betri, ef hún hefði ver-
ið háll'u styttri. Þetta á að vera íslenzk þjóð-
félagsádeila — og jafnvel heimsádeila á köfl-
um. En ádeiluefnin eru hversdagsleg og við-
horf höfundar ófrumlegt; hann áfellist ein-
mitt þá hluti sem menn heyrast nöldra um
á hverjum degi: amerísk áhrif, línudans
kommúnista, kvennasýningar, spillt skemmt-
analíf, skattpíning stjórnarvalda, athafna-
leysi alþingis o. s. frv. o. s. frv. En það skal
viðurkennt, að hugarsýnir höfundar eru oft
býsna frumlegar og lýsingar hans broslegar.
Og ef við lítum á bókina sem hverja
aðra dægurflugu, og heilsum kunnuglega því
sem þar er sýnt í spéspeglinum, þá getum
við brosað að fáránlegu hugarflugi höfundar,
og ef til vill öðlazt nokkra heilsubót við að sjá
brot af sjálfum okkur í þessum æðisgengna
draumi.
Jónas Kristjánsson