Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Síða 52
46
HELGAFELL
FYLGIZT MEÐ UNGU SKÁLDUNUM
„ANDLIT í
SPEGLI
DROPANS"
eftir Tlior VUhjálmsson
Bókin er skrifuð af afburða leikni
og þekkingu á máli og stíl
FYLGIZT MEÐ UNGU SKÁLDUNUM
„NÓTTIN Á HERÐUM
OKKAR"
Nýtt Ijóðasajn eftir Jón Óslcar
Áhrifamikill og seiðmagnaður
skáldskapur. Við iill kvæðin
eru teikningar eftir Kristján
Davíðsson, einn snjallasta list-
málara yngri kynslóðarinnar.
Ur einu í annaö
Niðurgreiðsla afurða af ýmsu tagi.
Upplýst þjóðfélag, eins og það sem við flest
teljum okkur búa í, leggur ekki áherzlu á það
eitt, að veita þegnum sínum eins fullkomið
hugsana- og athafnafrelsi og frekast er kostur
og sem jafnastan aðgang að andlegum auðlind-
um sínum, heldur vill það tryggja þeim mann-
sæmandi ytri afkomu. Slíkt þjóðfélag verður að
sjálfsögðu að grípa víða inn í daglegt líf fólks
og athafnir, en þó í því augnamiði einu að fá
því sem mest jafnrétti og örva til frjórra athafna
og sköpunar.
Eitt er það fyrirbæri í íslenzkum þjóðarbú-
skap, sem mjög hefur þótt orka tvímælis, en
það er niðurgreiðsla ýmissa afurða okkar og
jafnvel innfluttra vara, í því skyni að jafna
metin milli ríkra og fátækra eða til þess að
halda niðri vísitölu framfærslukostnaðar. Þann
mikla kost hefur þó þessi aðferð óneitanlega,
að félítið fólk, sem jafnt og aðrir þarf þessara
vara með til að lifa mannsæmandi lífi, getur nú
fremur veitt sér þann munað að kaupa þær, og
til þess er leikurinn gerður.
Ein þeirra stofnana, sem við höfum komið á
fót til höfuðs þeim hættum, sem stafa frá hömlu-
lausu framtaki óprúttinna manna, er Menning-
arsjóður, og þá einkum sú deild hans, er fæst
við bókaútgáfu. Til hennar var á sínum tíma
stofnað með tvenns konar markmið fyrir aug-
um. Að gera — með stuðningi ríkissjóðsins —
kleift að gefa hér út ýms þýðingarmikil verk,
sem varla mundu með öðrum hætti sjá dagsins
ljós, og að koma út til almennings í landinu,
einkum hinna dreifðu byggða, við sem allra
lægstu verði, úrvalsverkum innlendra og er-
lendra höfunda, sem nauðsynleg eru hverju
heimili, einkum þar sem hin nýja kynslóð, sem
mæta verður harðari andlegum kröfum en fyrir-
rennararnir, er að komast á legg. Þessar hug-
myndir voru mjög þakkarverðar og enginn virt-
ist sjá eftir nokkru fé úr sameiginlegum sjóði
þegnanna í þessu skyni. Og þó allmikill mis-
brestur hafi tíðum orðið á efndum loforða þeirra
manna, er stofnuninni stjórnuðu hverju sinni,
hefur sjóðurinn mjög mörgu góðu komið til leið-
ar fyrr og síðar, þó að það verði ekki talið hér.
En þessum mönnum er mikill vandi á höndum
eins og öðrum, sem hafa ríkissjóðinn að bak-
hjarli. í kapphlaupi við hina almennu þegna
hafa þeir aðstöðu, sem hinir geta ekki tryggt
sér og gerir þann gæfumun, sem úrslitum veldur