Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Qupperneq 53
ÚR EINU í ANNAÐ
41
hvor kapphlaupið vinnur. En heilbrigð sam-
keppni er ein öruggasta driífjöður frjáls mann-
lífs.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur undanfarin
ár verið í svo smáum stíl, að hennar hefur lít-
ið gætt. Þó hefur hún gefið út nokkrar bækur,
þýddar skáldsögur og sögur innlendra höfunda,
sem fæstir mundu telja ástæðu til að greiða
niður úr ríkissjóði, og hefur það verið látið
óátalið af þeim, sem að lokum borga brúsann,
vegna þess eins að þeir hafa ekki haft neina
hugmynd um þessi viðskipti. En ef útgáfan verð-
ur verulega aukin eins og líkur benda til með
auknum fjárframlögum, verður vitanlega að
hafa með því eftirlit að slíkt sé því aðeins gert
að til liggi ástæður, sem réttlæta það.
Fyrir skömmu ákvað eitt kunnasta bókafor-
lag landsins að veita ungum rithöfundi verðlaun
fyrir skáldverk af einhverju tagi og tókst jafn-
framt á hendur að útbreiða það meðal meðlima
sinna. Að öðru leyti yrðu verðlaunin veitt kvaða-
laust en þau voru ákveðin 25—50.000 krónur
auk ritlauna. Skömmu síðar kemur sjálfur ríkis-
sjóður með yfirboð, býður 75.000,00 fyrir sömu
verkin, ritlaun raunar innifalin, en setur til við-
bótar þau skilyrði að þau séu gefin út af rikinu,
°g að það eigi jafnvel forkaupsrétt að öllum öðr-
um verkum er berast kunna frá keppendum.
Það er út af fyrir sig mjög ánægjulegt að ríkis-
sjóður hefur fé aflögu til lista, en slík sam-
heppni á jafnþröngum markaði og hér er, er
vægast sagt mjög hæpin ráðstöfun og skilyrðin,
sem sett eru fremur í anda þeirra, sem hyggj-
ast að leggja undir sig lönd en frelsa þau. Höf-
undar, sem falið hafa öðrum forlögum útgáfu
hóka sinna með meira og minna föstum samn-
ingum, en það gera nú flest skáld landsins,
eiga um það að velja að taka ekki þátt í sam-
keppninni, eða skipta um útgefanda. Hér eru
þó ekki á ferðinni neinir óprúttnir „braskarar“,
heldur höggur sá sem hlífa skyldi. Hætt er við
að með þessu verði margir beztu höfundarnir
útilokaðir frá keppni, og er þá illa farið. Mennta-
uiálaráði er því aðeins samboðið að veita verð-
laun, að allir hafi jafna aðstöðu til að keppa um
Þau. Hvers vegna ekki að verðlauna beztu bók,
er út kemur á þessu árii? Tilgangur ráðsins hlýt-
Ur að vera að efla íslenzkar bókmenntir, en ekki
aðeins bókaútgáfufyrirtæki Menningarsjóðs.
r.
Upinher áróður gegn höfuðskáldum.
Sagt er, að þeir, sem að jafnaði hlusti á Út-
varp Reykjavík, telji margir „12. september"
mesta tónskáld veraldar og Hauk Mortens list-
^ænasta söngvarann. Og vitað er að þeir, sem
FYLGIZT MEÐ UNGU SKÁLDUNUM
„FJALLIÐ"
eftir Jökul Jakobsson
spennandi og stórbrotin skáld-
saga. Vafasamt er hvort jafn-
atliyglisverð skáldsaga hefir
áður verið skrifuð hér af jafn
ungum manni
+ —■■—»—■■—■■—■■—■■—■■—■■—■■—■■—■>—■■—*■—*■—*■—4
+ —■■—■■—■>—■■—■■—■■—■■—■*—■■—■■—■■—■■—■”—■"—— +
I
í
FYLGIZT MEÐ UNGU SKÁLDUNUM I
„BORGIN HLÓ"
fyrsta Ijóðabók ungs skálds,
Mattliíasar Johannessen.
Matthías er einn þekktasti og list-
rænasti blaðamaður okkar og hafa
ljóðin fengið mjög góða dóma, jafn-
vel verið skipað á bekk með ljóð-
um stórskáldanna.
+