Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Page 54

Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Page 54
48 HELGAFELL *----------------------------------„ FYLGIZT MEÐ UNGU SKÁLDUNUM „Kaupangur" eftir Stefáii Júlíusso7i. Hér cr um stórróman að ræða, gamansögu og ádeilusögu. Sagan gerist að mestu í New York á stríðsárunum. Bókin er mjög áhrifamikil. FYLGIZT MEÐ UNGU SKÁLDUNUM J SVÖRTUM KUFLI" Fyrsta Ijóðabók ungs skálds, Þorsteins Jónssonar frá llamri í Borgarfirði. Sérkennilegur og fallegur skáldskapur. +—------------------------------- lesa hinar tíðu skýrslur bókafulltrúa fræðslu- málaskrifstofunnar, trúa því ýmsir, að maddöm- urnar Elínborg og Guðrún frá Lundi séu uppá- haldsspámenn þess fólks, sem „í þúsund ár hef- ur setið við sögur og ljóð“. Það er þó ástæðu- laust að gera lítið úr þýðingu snillinga eins og „12. september" fyrir uppeldi æskunnar, enda mundi nöldur í þá átt hljóma illa í eyrum hinn- ar söngelsku þjóðar, sem gert hefur hann að menningarfulltrúa sínum. En ekki er það ótítt, að sú hugsun flögri að manni, að eitthvað sé bogið við þá andlegu forustu, er skilur eftir sig hjá þjóðinni slíkt mat á gildi lista. Og jafnvel erfitt að verjast þeirri ályktun að í henni fel- ist allþungur áfellisdómur yfir þeim, sem stofn- ununum stjórna. Til hvers eru skólar? í hvaða augnamiði eru reist félagsheimili og kirkjur? Hvert er hlut- verk ríkisútgáfu? Og í hvaða tilgangi er milljón- um króna varið til lista — og bókasafna? Þetta eru spurningar, sem fólk veltir því oftar fyrir sér sem harðar er gengið eftir fé til þess að framfleyta þessum þurftarfreku stofnunum. Er þeim ætlað það hlutverk eitt að kosta og hafa frumkvæði um almennt skemmtanalíf án mark- miðs, eða eiga þetta að vera æðri uppeldisstofn- anir á borð við háskóla og sinfóníuhljómsveit? Það er nauðsynlegt að allir geri sér grein fyrir þessu, og þó fyrr hefði verið. Hér skal í svipinn ekki farið langt út í þessa sálma, en skýrslur þær sem tvær þessara stofn- ana gefa út fyrir almenning, eru sannarlega ekki uppörvandi fyrir andlegt líf í landinu. Ekki verður því um kennt að útvarpið sé í höndum fégráðugra einstaklinga, og ekki verður því fremur með réttu haldið fram, að vondir bóka- útgefendur noti bókasöfnin til þess að auglýsa fyrir sig sorpbókmenntir sínar, og er því annað- hvort að hér er illa haldið á spilunum eða reynslan ætlar að fara að kenna okkur að vafa- söm trygging sé í því að menningarstofnanir séu einungis í höndum hins opinbera. Þannig er nýleg skýrsla bókafulltrúa fræðslumálaskrif- stofunnar römm auglýsing fyrir miðlungsbók- menntum og nálgast beinan áróður gegn menn- ingu og höfuðskáldum okkar. r. Hvaða höfundar eru mest lesnir? Mörgum hættir til að taka skýrslur bókafull- trúa fræðslumálaskrifstofunnar sem áreiðanleg- ustu upplýsingar um það, hvaða bækur séu mest lesnar á fslandi. En þetta er vitanlega af mörg- um ástæðum hin mesta fjarstæða. Áður en nú- verandi fulltrúi, Guðm. G. Hagalín, tók við starfi fulltrúans, voru mjög víða í bókasöfnum lands- ins alls engar bækur til eftir höfuðskáldin. Jafn- vel verk Davíðs voru ekki alls staðar til, hvað þá rit Gunnars, Laxness, Nordals, Þórbergs og ljóð Tómasar og Steins, svo ekki séu nefndir þeir sem yngri eru og minna þekktir. Það þarf hins vegar engum blöðum um það að fletta, hvaða höfundar eru mest lesnir hér á landi. Davíð og Laxness eru þar langfremstir. Og til gamans er hægt að upplýsa, að um 50.000 ein- tökum af „Svörtum fjöðrum“ hefur verið dreift á undanfömum árum um landið, og smám sam- an eru heildarútgáfur Davíðs og Laxness og fleiri höfuðskálda okkar að komast inná heim- ili landsins. Innan mjög fárra ára mun enginn maður leita á bókasöfn til að fá lánuð verk þeirra. Þau munu þá verða jafn sjálfsögð á hverju heimili og rafmagnið eða olían á stofu- lampann. r-

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.