Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Qupperneq 15
BERGÞÓR JÓHANNSSON
ÍSLENZK MOSATEGUNDASKRÁ
Þessi skrá nær yfir blaðmosana að undanteknum ættunum Sphagna-
ceae, Grimmiaceae, Bryaceae og Polytrichaceae. Hér eru aðeins taldar
þær tegundir, er ég hef séð eintök af. Undirtegundir og afbrigði hafa
ekki verið tekin á skrána. Ættum er raðað samkvæmt Reimers (1954),
en ættkvíslum er raðað í stafrófsröð innan ætta og sömuleiðis tegund-
um innan ættkvísla. Auk þess, er ég hef sjálfur safnað, hef ég yfirfarið
öll þau eldri söfn, er varðveitt eru á Náttúrufræðistofnun íslands og
Hesselbo rannsakaði, er hann vann að samningu ritgerðar sinnar um
íslenzka mosa (Hesselbo, 1918), og er safnenda getið í þeirri ritgerð
hans. Fyrir velvilja Kjeld Holmen hef ég fengið að láni til athugunar
nokkur eintök úr safninu í Kaupmannahöfn. Auk þessa hef ég haft til
athugunar nokkur nýleg söfn, og eru safnendur þessir: Steinn V. Magn-
ússon, Helgi Hallgrímsson, Ingimar Óskarsson, Dóra Guðjohnsen,
Hörður Kristinsson, Eyþór Einarsson, Arnþór Garðarsson, Steindór
Steindórsson, Baldur Johnsen, Ingólfur Davíðsson, Markús Á. Einars-
son, Björn Johnsen, Kristján Jóhannesson. Dr. Herman Persson, Stokk-
hólmi, hefur gert mér þann greiða að nafngreina fyrir mig fjögur sýn-
ishorn. Á Náttúrufræðistofnun Islands eru til eintök af öllum tegund-
um á skránni nema Ditrichum pusillum, Hedwigia ciliata og Orthothe-
cium intricatum.
A LIST OF ICELANDIC SPECIES OF BRYOPHYTES I.
The present list includes the mosses with the exception of the families Sphagna-
ceae, Grimmiaceae, Bryaceae and Polytrichaceae. I have seen specimens of all the
species listed. Neither subspecies nor varieties are listed. In the list the families are
arranged according to Reimers (1954), but genera and species are arranged alpha-
betically. In addition to my own collections, I have examined all the collections
preserved in the Museum of Natural History, Reykjavík, which were already in-
vestigated by Hesselbo during the preparation of his work on the Icelandic bryophy-
Bergþór Jóhannsson: Náttúrufræðistofnun íslands. Muscum of Natural History, Reykjavík.
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓra 13