Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Síða 24
cin, hvað styrkleika snertir. Usninsýra er algengust allra fléttusýra og
kemur fyrir í fjölmörgum fléttutegundum, enda þótt hún hafi ekki
fundizt með vissu í fjallagrösum.
Margar aðrar fléttusýrur hafa við rannsókn reynzt vera bakteríu-
drepandi, og er stöðugt unnið að því að rannsaka þessa eiginleika hjá
fleirum. Fundizt hafa í fléttum samtals yfir 200 mismunandi fléttu-
sýrur, svo af nógu er að taka til þessara rannsókna.
Fumarprótósetrarsýra hefur verið einangruð úr fjallagrösum og
áhrif hennar á líkamann verið rannsökuð. Hún verkar á slímhúð mag-
ans og þarmanna og örvar vöðvasamdráttinn í veggjum þeirra. Einnig
hefur hún örvandi áhrif á aðalstöðvar taugakerfisins og stuðlar að fjölg-
un rauðu og hvítu blóðkornanna.
Hin hóstamildandi áhrif fjallagrasanna eru talin eiga rót sína að
rekja til hinna slímkenndu ljölsykringa þeirra. Fjallagrösin voru ekki
aðeins notuð til lækninga á íslandi, heldur meira og minna víða um
Evrópu. Ganga þau þar almennt undir nafninu „íslenzkur mosi“ og
eru enn seld víða í lyfjabúðum.
Fjölmargar aðrar fléttur voru notaðar víða um heim til að lækna
margvíslegustu sjúkdóma svo sem hitasóttir, flogaveiki, berkla, kíg-
hósta, hundaæði, nýrna- og blöðrusjúkdóma, lungnakvef, krampa,
asthma og einnig við húðsjúkdómum og til að sótthreinsa sár. Ekki er
þó sannað nema í sumum tilfellum að raunverulegur árangur þessara
aðgerða verði rakinn til áhrifa fléttnanna.
Fléttur sem dýrafóður. í norðlægum löndum, einkum í Norður-
Skandinavíu hafa fléttuheiðar mikla þýðingu sem beitilönd, einkum
fyrir hreindýr. Einkum eru þær þýðingarmiklar fyrir vetrarbeit, þegar
annar gróður er rýr. Það eru aðallega hinar svokölluðu hreindýraflétt-
ur (Cladonia alpestris, Cl. mitis, Cl. rangiferina, Cl. silvatica), sem
beitargildi hafa, enda þekja þær oft stór svæði. Aðrar fléttur slæðast
oft með en hafa minni þýðingu, þar sem þær koma ekki fyrir í eins
miklu magni, svo sem fjallagrasategundir (Cetraria), grábreyskingar
(Stereocaulon) og tröllagrös (Alectoria ochroleucd).
í Lappahéruðum þessara landa hefur tíðkazt að safna fléttum í
stórum stíl og þurrka þær eins og hey og nota til vetrarfóðurs handa
kúm og geitum. Fléttuheyið er notað með öðru fóðri, einkum þegar
illa árar, til að bægja frá fóðurskorti, en notkun þess að staðaldri þekkt-
ist einnig í vissum héruðum. Af Cladonia alpestris fengust af góðu landi
allt að 14—15 hestar á ferkílómetra. Ævinlega verður að skilja nokk-
urn hluta fléttnanna eftir til þess að flýta fyrir endurgræðingu lands-
ins. En þær vaxa hægar en allur annar jarðargróður, og geta liðið allt
22 Flóra - tímarit um íslenzka grasafræði