Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Qupperneq 31
ur sagt nú, hvaða tegund það raunverulega er, því eintökin eru ekki
varðveitt. Auk þess nefnir Larsen tegundina Verpa digitaliformis í
fyrsta skipti héðan.
M. P. Christiansen (1941) telur Acetabula sulcata og Acetabula sp.
hvort tveggja án frekari lýsingar, og Helvella lacunosa. Eintök Christ-
iansens eru heldur ekki varðveitt, en vart mun ástæða til að efast um
réttmæti síðustu nafngreiningarinnar.
Þáttaskil verða í rannsóknum á þessum sveppaflokk, árið 1959, þeg-
ar danski sveppafræðingurinn Morten Lange kemur liingað til lands.
Þótt hann ferðaðist aðeins um lítinn hluta Suður- og Suðvesturlands,
var hann furðulega fundvís á Helvella-tegundir, og safnaði talsverðu
af þeim. Þetta safn Langes liggur þó að mestu ónafngreint þar til læri-
sveinn hans, Henry Dissing, tekur sig til og endurskoðar jrað, og birtir
niðurstöðurnar í grein í Botanisk Tidsskrift 1964. Telur Dissing þar
hvorki meira né minna en sjö tegundir, sem Lange hefur safnað, öll-
um í Hveragerði og nágrenni. Tegundirnar eru þessar:
1. Helvella acetabulum.
2. H. capucina (= H. albella).
3. H. costifera.
4. H. crispa.
5. H. lacunosa.
6. H. queleti.
7. H. philonotis.
Auk Jress getur Dissing um tegundina Helvella atra, sem hann telur
þó vera vafasama. Af áðurnefndum tegundum var ein sem lýst var í
fyrsta skipti í grein jDessari, nefnilega Helvella philonotis, en sú teg-
und hefur nú einnig fundizt í Skandinavíu.
Arið 1966 kom út mikið rit um evrópskar Helvella-tegundir eftir
Dissing. í riti Jaessu telur hann allar hinar sömu tegundir héðan, og
áður var getið, en ein tegund hefur bæzt við, Helvella corium og Hel-
vella atra er nú talin örugg. Eru íslenzku tegundirnar þá orðnar níu
talsins og Verpa sii tíunda.
Höfundur þessarar greinar byrjaði að safna hnyðlusveppum árið
1960, og hefur haldið því áfram síðan. Alls hafa safnazt um 25 eintök,
og eru þau varðveitt í grasasafni Náttúrugripasafnsins á Akureyri. Þeg-
ar ég fékk ritgerð Dissings í hendur tók ég mig til, og fór í gegnum
Jretta safn. Reyndist Jrað innihalda eitt eða fleiri eintök af öllum þeim
tegundum, sem Dissing getur um, nema Helvella atra og H. costifera.
H. corium er vafasamt hvort finnst þar.
TÍMARIT UM ÍSI.ENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓra 29