Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Page 33

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Page 33
ur að neðan, fínlóliærður á neðra borði. Stafurinn með óreglulega sam- vöxnum langsfellingum, og holrúmum, oftast gulhvítur (bleikur), k'læddur mjög fínni ló. Hæð 3—8 sm, og þvermál Iiattsins 1—5 sm. Gró- in sporbaugótt, 18—21 my á lengd. Allbreytileg tegund, sem lýst hefur verið undir ýmsum nöfnum. Islenzku eintökin eru flest smávaxin, um 3 sm á hæð, og hatturinn oft næstum reglulega söðullaga, og líkjast þau að því leyti H. barlae Boud. & Pat., sem Dissing telur samnefnda H. crispa. Dissing (1964) getur þess, að eintök frá Hveragerði líkist H. lactea Boud. sem er náskyld H. lacunosa en lóháralaus á ytra borði, og því auðþekkt frá H. crispa, enda þótt litir og vaxtarlag sé oft svipað. Sama er að segja um nokkur af mínum eintökum. Þó hef ég einu sinni fundið H. crispa (1951) sem var svipuð að stærð og vaxtarlagi þeim eintökum, sem algengust eru í Evrópu, og því er varla ástæða til að efast um að íslenzku eintökin eru af þessari tegund, og frábrigðin aðeins afleiðingar af kaldara loftslagi og öðrum stað- háttum hér. Helvella crispa er fyrst getið héðan af Dissing 1964, eftir eintökum, sem M. Lange safnaði við Tinda(fjall) í nágrenni Hveragerðis, 13. ágúst 1959. Óx hún jaar í mosa nálægt dýi við læk, eftir því sem Lange segir. Ég fann tegundina fyrst sumarið 1951, á Droplaugarstöðum í Fljóts- dal, í graslendi, í ágúst. Var þetta stórt og vel þroskað eintak, sem áður er um getið. Gerði ég af því lýsingu og teikningu, sem auðvelt er að þekkja tegundina eftir, og mun þetta hafa verið mín fyrsta sveppa- rannsókn, en ekki voru þá tök á að varðveita eintakið. Síðan hef ég fundið tegundina þama tvisvar aftur (1961, 6. sept. og 1963, 15. sept.), en þó í bæði skiptin í öðru gróðurlendi, þ. e. í þurru mólendi með rjúpnalaufi, móasefi og þursaskeggi, enda hefur ekkert þessara eintaka jafnast á við það sem ég fann fyrst að stærð og þroska. Hvergi hef ég fundið þessa tegund annars staðar. Erlendis vex H. crispa helzt í laufskógum, en hér hefur hún ekki fundizt í skógum, en virðist annars geta vaxið í margvíslegu gróður- lendi. í Evrópu er hún fremur suðræn tegund, og hefur enn ekki fund- izt norðan við 62 breiddargráðu í Skandinavíu, og á Grænlandi hefur hún ekki fundizt. Trúlega er hennar því helzt að leita um sunnanvert landið. 3. Helvella lacunosa Afz. ex Fr. Svarthnoðla. Hatturinn oftast meira eða minna hnakklaga, með tveimur eða fleiri, oftast óreglulega löguðum flipum, sem lafa niður með hliðum TÍMAKIT UM ÍSLF.NZKA GRASAFRÆÐI - FlÓra 31
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði
https://timarit.is/publication/1052

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.