Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Síða 34
stafsins og gróa við hann ofantil, oftast með fellingum, og' stundum
eins og samanhnuðluð tuska (sjá mynd), grábrúnn, grásvartur eða
svartur að lit á efra borði, en ljósari, grár, á neðra borði, hárlaus. Staf-
urinn margsamsettur af djúp-
um, meira eða minna sam-
vöxnum langsfellingum, sem
oft eru með mjórri rennu
framan á garðinum, grár eða
grábrúnn, oftast ljósari inni í
fellingunum og neðantil,
stundum nærri svartur, ber.
Stærðin mjög breytileg, oftast
2—8 sm á hæð og hattþvermál
1—3 sm. (Eitt eintak úr Lauf-
ásskógi mældist 16 sm á hæð,
sjá mynd.)
Eins og sjá má af lýsingu
þessari, er H. lacunosa mjög
breytileg tegund, enda vantar
það ekki, að tilraunir hafa
verið gerðar til að skipta
henni niður, og er samnefna-
grúinn mjög mikill.
Tegundin H. sulcata Afz.
hel'ur til þessa verið talin að-
greinanleg frá H. lacunosa, á
því m.a. að hafa reglulega söð-
ullaga hatt. Dissing kemst hins
vegar að þeirri niðurstöðu, að
tegundirnar séu ekki aðgrein-
anlegar, enda sé þetta hatt-
form algengt hjá ungum eða
lítt þroskuðum eintökum H.
lacunosa. Samkvæmt þessu er H. sulcata aðeins samnefni við H. lacu-
nosa, og fellur því burt sem tegund úr íslenzku hnyðlusveppaflórunni.
Helvella lacunosa er fyrst getið héðan af M. P. Christiansen (1941),
frá Laugarvatni (5. 8. 1935). Samkvæmt Dissing hefur hún þó fundizt
hér löngu fyrr, eða 1896 af Ostenfeldt, bæði í Dýrafirði vestra og á Ak-
ureyri, og skömmu síðar (1902) á Möðruvöllum af Ólafi Davíðssyni.
Eru öll þessi eintök varðveitt í Kaupmannahöfn, en þau eru talin
32 Flóra - tímarit um íslknzka grasafræði
]. mynd. Helvella lacunosa. Risavaxið eintak
(16 sm á h.), tekið í Laufásskógi við Eyjafjörð,
18. júlí 1961 (3022). Foto: H. Kr.