Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Side 43
STEINDÓR STEINDÓRSSON frd Hlöðum:
FLÓRA SNÆFELLSNESS
VIÐAUKAR.
Árið 1899 birti dr. Helgi Jónsson flórulista frá Snæfellsnesi og Döl-
um í Botanisk Tidsskrift undir nafninu: Floraen paa Snœfellsnes og
Omegn. Hafði hann þá ferðazt allvíða um þessar sveitir undanfarin
sumur, 1886—1888, aðallega 1887. Auk þess innlimaði hann í skrá sína
eldri fundarstaði plantna frá þessu svæði. Auk háplantna fjallar rit-
gerð H. }. einnig um hinar lægri plöntur, bæði fléttur og mosa. Hér-
aðsflóra þessi er næst elzta sérflóra, sem prentuð hefur verið um íslenzk-
ar byggðir. Aðeins Vatnsdalsflóra St.efáns Stefánssonar er eldri, 1894.
Svæði það sem H. J. tekur fyrir er svo stórt, að þess er naumast að
vænta, að á ekki lengri tíma en hann hafði til umráða væri unnt að
gera fullkomna flóru héraðsins, eða þá grein fyrir útbreiðslu einstakra
sjaldgæfari tegunda, sem æskilegt hefði verið. Gegnir þar meiri furðu,
hversu margt hann hefur fundið og skýrt frá.
Snæfellsnessflóra H. J. sýnir þegar, að Snæfellsnesið er merkilegt í
grasafræðilegu tilliti, þótt jarðfræði þess sé enn forvitnilegri. Þó þyk-
ist ég geta ráðið það af flóru þess, að þar muni hafa verið auð svæði á
jökultíma, eða að minnsta kosti síðasta jökulskeiðinu. Sumarið 1954
fór ég allvíða urn Snæfellsnes til gróðurrannsókna, og hefi raunar kom-
ið þar snöggvast áður og síðar og gert nokkrar athuganir í þeim efn-
um. Við samanburð á flórulistum mínum kom brátt í Ijós, að ýmsu
mátti við bæta hina eldri flóru, bæði um fundarstaði og nýfundnar
tegundir og afbrigði. Birti ég hér skrá yfir þetta. Ekki efast ég um, að
mörgu megi enn við bæta, og er það ein megin hvötin, til að láta þessa
skrá koma fyrir almennings sjónir, ef það gæti ýtt við einhverjum í því
efni. Nöfn eru hin sömu og í Flóru íslands 1947, svo er og röð ætta.
Hins vegar er tegundum innan ættanna raðað eftir stafrófsröð latnesku
heitanna. Hér er Dalasýslu algerlega sleppt:
OPHIOGLOSSACEAE. Naðurtunguætt.
1. Botrycium boreale, mánajurt. Kerlingarskarð. Ný.
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓra 41