Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Blaðsíða 63
Reykjanesskaganum og sand- eða öskufylt hraun eru á stórum svæðum
fyrir vestan Heklu og norðan. Þannig eru stór svæði kringum Skarðs-
fjall á Landi gömul hraun fyllt af sandi og ösku og t. a. m. bærinn Fells-
múli stendur á þess háttar hrauni. Af hraununum norðan við Heklu
má geta Sölvahrauns.
II. BÚÐAHRAUN.
Gróðurinn þróast ekki jafnsnemma alstaðar um hraunið, eins og
ofureðlilegt er, þegar gætt er að, hverja lögun yfirborð hraunsins hef-
ir. Þótt gróðurinn sé víða kominn á hin síðustu stig, eru stórar spildur
ekki komnar lengra en á fyrstu stigin. í gömlu hrauni má þannig glögt
deila öll gróðrarstigin, er talað var um hér á undan, og meira að segja
fjölda millibilsstiga. Til frekari skýringar set ég hér lýsingu á gróðri
í gömlu hrauni, eins og hann lítur út nú á dögum. Svo mætti ætla, að
vandi væri að velja hraun til þessarar lýsingar, en það er öðru nær;
Búðahraun er sjálfkjörið, því að það er merkilegast allra hrauna á ís-
landi að því er gróður snertir, enda hefur það um langan aldur haft
mikið orð á sér fyrir gróðursæld, að minsta kosti um Vesturland. Þar
við bætist, og að ég rannsakaði gróður þess ítarlega 1897.
Búðahraun er, eins og alkunnugt er, við Faxaflóa, á Snæfellsnesi
sunnanverðu. Það er allstórt ummáls og skagar langt út í sjó. Meginið
af Búðahrauni er helluhraun, en stórar kringlóttar spildur hafa fallið
niður og takmarkast spildur þessar umhverfis af gjám eða glufum mis-
munandi djúpum. Gjárnar eru auðvitað sár þau, er urðu þegar hraun-
spildan féll. Samfastar hellur má þó finna að minnsta kosti yfir þvert
hraunið, þar sem þjóðvegurinn liggur. Er það bezti vegur og mun vera
ævagamall, Jdví götuslóði hefur troðizt víða í bergið. Einkennilega
glymur í hellunum, er riðið er um þær, einkum ef hart er riðið, því
holt er víðast hvar undir. Þar sem hraunið skagar lengst út í sjóinn er
það alt öðruvísi útlits. Yfirborðið er jafnara, en við storknunina hef-
ur það stokkið sundur og molast niður. Líkist yfirborðið hér að nokkru
smágrýtisurðum. Sumstaðar hefur sjáfarsandur borizt í hraunið utan-
vert og var þar nokkur sandgróður.
Gígurinn, sem Búðahraun hefir runnið úr, er í miðju hrauninu og
heitir Búðaklettur; Jrar er og hinn nafnkunni Búðahellir.
Að fornu er oss mjög lítið kunnugt um Búðahraun, og eigi er þess
getið að öðru í sögum vorum, að því er mér er kunnugt, en að höfnin
var kend við það og kölluð Hraunhöfn. Líklega má telja, að hið nú-
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓra f)l