Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Side 64

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Side 64
verandi nafn stafi frá búðum, er reistar hafi verið við höfnina, enda var þar kaupstefna í fornöld, eins og lesa má í Eyrbyggju. Hinn fyrsti, er fræðir oss um gróðurinn í Búðahrauni, er vor nafn- frægi landi Eggerl Ólafsson. Hann rannsakaði hraunið 1757 og ritar um það í hinni alkunnu ferðabók sinni. Lýsing hans á gróðri hrauns- ins er stutt en þó sést á henni, að þar hefur verið kjarr, eins og fyr er ritað, og lynggróður og jurtastóð í glufum og hraunbollum. Þorvaldur Thoroddsen rannsakaði hraunið 1890 og skýrir frá því yfirleitt frá jarð- fræðislegu sjónarmiði, en þó er bersýnilegt af lýsingu hans, að hann hefir haft vakandi auga á hinum merkilega gróðri hraunsins. Árið 1897 ferðaðist ég um Snæfellsness- og Dalasýslu til gróðrarrannsókna og athugaði þá ítarlega gróðurinn í Búðahrauni, eins og fyrr er getið. Þá snúum vér oss að gróðri Búðahrauns, og tökum gróðrarstigin í eðlilegri röð. Þá er fyrst að geta þess, að á hinum efstu nibbum og hraunsnösum er gróður, sem í öllum aðalatriðum svarar til hins fyrsta gróðrarstigs, sem lýst er hér á undan. Er sá gróður yfirleitt samsettur af fléttutegundum og smáum mosaþúfum. Á einstaka stað í hraun- snösunum liefir þó safnazt svo mikið jarðryk í smáholurnar, að ein- staka blómsturplanta, t. a. m. fjalladúnurt, liefir náð að festa þar ræt- ur. Víða gefur gróður þessi klettunum einkennilegan blæ, því að grá- ar, gular og grænar fléttur vaxa þar á ruglingi innan um breytilegar smáþúfur af mosategundum. Þannig er gróðurinn á hinum hæstu hraunklettum. Nokkru lægra kemur mosaþemban, sem fyr var talað um, er leggur sig yfir hraunið eins og dúnþak. Jafnvel í gjánum má sjá mosahengjur af mismunandi stærð, er teygjast lengra og lengra nið- ur á við, og liafa alla viðleitni á að klæða nakið bergið. Óðara fetar lyngið í spor mosans og birkið og reynirinn og víðirinn kemur á eftir og gægist niður í glufurnar, finst gott að vera þar í skjólinu, og tekur sér þar fastan bústað. Lyngið fylkir sér og óðum um hinar lægri mosa- breiður og berin blána þar „börnum og hröfnum að leik“, en birkið og reynirinn og víðirinn koma á hælana á því og birkið hreykir sér hátt og þykist hafa þar einveldi, og svo mundi og vera ef það hefði ekki verið tætt upp undir pottinn eða í árefti. Sem stendur er aðeins ofurlítið smákjarr í hrauninu, og einstakar reynihríslur má sjá hér og Iivar í gjánum, en efalaust hefir þar verið miklu meiri skógur fyrrurn. Það er hvorki mosinn né lyngið og ekki heldur kjanið, sem frægð Búðahrauns hefir við að styðjast, en það er jurtastóðið. Allar hinar grynnri gjár eru fullar af burknastóði, er vex mjög þétt og er yfir 3 fet á hæð. Þar er stórburkni, dílaburkni og fjöllaufungur hvað innan nm annað, og fjórlaufasmárinn skipar sér milli þeirra og gerir burkna- 62 Flóra - tímarit um íslenzka grasafræði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði
https://timarit.is/publication/1052

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.