Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.06.1968, Qupperneq 95
UM
1967
Tímaritinu Flóru var strax í upphafi mörkuð sú stefna, að það maetti verða
samkeppnishæft á alþjóða vettvangi í grasafræðilegum efnum, enda var svo til
ætlast, að það yrði kynnt erlendum grasafræðistofnunum og þeim öðrum, sem
áhuga hefðu á íslenzkri náttúrufræði, og leitað eftir að koma á ritaskiftum við
þessar stofnanir.
Væntum við, sem að ritinu stóðum, að þannig gæti orðið til vísir að náttúru-
fræðilegu, og þá einkum grasafræðilegu bókasafni hér á staðnum og myndi okkar
verða hagnaðurinn.
Allt hefur þetta gengið svo eftir, sem efni stóðu til. Þrátt fyrir þá staðreynd,
að Flóra hefur nær eingöngu birt greinar á íslenzku, því máli, sem flestum útlend-
ingum reynist erfitt til skilnings, hefur næstum hver einasta stofnun, sem kynnzt
hefur ritinu verið fús til að koma á slíkum ritaskiftum, og sumar stofnanir láta
okkur mun meira í té, en við getum endurgoldið. Þannig hafa Pólverjar sent mik-
inn hluta af flóru Póllands (Flora Polska), og Finnar hafa sent okkur mjög mörg
rit. Þess má geta, að sumar stofnanir kjósa heldur að gerast áskrifendur að ritinu,
og höfum við auðvitað ekkert við það að athuga, og loks eru nokkrar, sem engin
sérstök bókasöfn hafa í sinni vörzlu, og geta því ekki skift. Á það einkum við um
félög, sem eru útgefendur að ritum.
Þess þarf naumast að geta, að innlendar stofnanir hafa einnig verið fúsar til
ritaskifta, og fáum við þannig flest íslenzk náttúrufræðirit. í desember 1967 voru
skiftisambönd innanlands 17, á Norðurlöndum líka 17 og í öðrum löndum Evrópu
og Ameríku 19, eða alls 53.
Enginn vafi er á því, að þessi skiftisambönd gætu verið mun fleiri, ef fleiri
stofnanir hefðu kynnzt ritinu, enda má búast við að þeim fjölgi mikið á næstu ár-
um. Eins og þegar hefur verið getið í Flóru (formálar 1962 og 1966), verða rit þau
sem fást í skiftum fyrir Flóru framvegis geymd í bókasafni Náttúrugripasafnsins á
Akureyri, enda veitir safnið Flóru nú árlegan styrk í þessum tilgngi. Er því eðli-
legast að líta á safnið sem annan aðila skiftisambandsins og eiganda þessara rita.
Hér verður nú birt skrá yfir stofnanir sem skifta á ritum við Náttúrugripa-
safnið á Akureyri, og eru titlar ritanna í svigum fyrir aftan heiti og heimilisfang
viðkomandi stofnunar.
SKRA
SKIPTISAMBÖND
NORÐURLÖND.
Noregur.
1. Tromsö Museum, Biblioteket, Tromsö, Norge. (Acta borealia, I. Scientia og Aarsberetn-
ing)-
2. Det Kongelige Norske Videnskabernes Selskab, Biblioteket, Trondheim, Norge. (Trond-
iieitn Museum Aarbok).
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAFRÆÐI - FlÓra 93