Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Page 4
þriðjuDagur 21. ágúst 20074 Fréttir DV
Fleiri skjálftar
í Upptyppingum
Skjálftavirkni við Upptyppinga
austan Öskjufjalla kemur í hrin-
um þessa dagana. Nokkuð var um
jarðskjálfta á sunnudag en rólegra
í gær. Bergþóra Þorbjarnardótt-
ir, jarðeðlisfræðingur á Veður-
stofu Íslands, segir nokkuð snarpa
skjálftahrinu hafa átt sér stað á
miðvikudag í síðustu viku.
Skjálftarnir eru sama eðlis og
fyrr, gjarnan um tveir á Richter-
skala og á um sextán kílómetra
dýpi. Jarðskjálftarnir þykja ekki
gefa vísbendingar um framhaldið,
en svæðið verður vaktað áfram.
Danskir dagar
fóru vel fram
Nokkur þúsund gestir
mættu í Stykkishólm um helg-
ina og tóku þátt í fjölskyldu-
hátíðinni Dönskum dögum,
sem haldin var um helgina.
Þetta er í fjórtánda skipti sem
hátíðin er haldin.
Að sögn lögreglunnar
í Stykkishólmi fór hátíðin
vel fram og því kom ekki til
þess að lögreglumenn þyrftu
að hafa sig mikið í frammi.
Skipulögð dagskrá var nær
alla helgina og á laugardags-
kvöldið var haldið bryggju-
ball trillukarla. Nokkur ölvun
var á ballinu án þess að nein
stórmál kæmu upp. Fanga-
geymslur lögreglunnar voru
tómar alla helgina.
Reykjavíkurborg komin í samkeppni við Gámaþjónustuna um að bjóða bláar tunnur:
Borgin sleppur við skattinn
Umhverfissvið Reykjavíkurborg-
ar hefur undanfarið boðið upp á nýj-
an kost í sorphirðu borgarbúa. Þar er
um að ræða bláar tunnur sérstaklega
ætlaðar fyrir pappírsúrgang. Guð-
mundur B. Friðriksson hjá umhverf-
issviði Reykjavíkurborgar segir þetta
lið í að uppfylla skyldur sveitarfé-
lagsins við íbúana.
Elíasi Ólafssyni, stjórnarformanni
hjá Gámaþjónustunni, þykir skjóta
skökku við að Reykjavíkurborg komi
með þessum hætti að þessari þjón-
ustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins
og telur um óeðlilega samkeppni að
ræða. Gámaþjónustan býður upp á
tunnur fyrir efni til endurvinnslu og
þær má nýta undir fleiri flokka en
bláu tunnurnar sem Reykjavíkur-
borg býður upp á. Elías Ólafsson seg-
ist ekkert hafa á móti samkeppni, en
hún verði að vera á jafnræðisgrund-
velli.
Elías setur einna helst formerki
við að enginn virðisaukaskattur er
lagður á þessa þjónustu og einnig að
innheimt er fyrir hana samhliða fast-
eignagjöldum. Starfsemi sveitarfé-
laganna er ekki virðisaukaskattskyld
að sögn Guðmundar B. Friðriksson-
ar og hann segir að í því sé á engan
hátt gengið á svig við lög þar að lút-
andi, auk þess segir hann að sveitar-
félögum sé skylt að sjá um sorphirðu.
Hvað varðar innheimtuna segir Guð-
mundur að til að spara innheimtu-
kostnað sé þessi þjónusta innheimt
samhliða fasteignagjöldum. Á álagn-
ingarseðli vegna fasteignagjalda séu
sorphirðugjöld tilgreind sérstaklega
sem sérliður og því ljóst að ekki er
verið að reyna fela þau.
Þungt haldinn
Rannsókn stendur enn yfir
á máli karlmanns sem fannst
rænulaus við söluturn í Austur-
bergi um verslunarmannahelg-
ina. Grunur leikur á að ekið hafi
verið yfir manninn. Lögregla
hefur ekki yfirheyrt manninn
sem liggur enn þungt haldinn á
sjúkrahúsi.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu hefur fjöldi vitna verið yfir-
heyrður, en niðurstöður sérfræð-
inga eru væntanlegar. Enginn
liggur undir grun.
Ekki í fyrsta sinn
Bergvin Oddsson, formaður
Ung-blind, segir það ekki eins-
dæmi að
sjóndaprir og
andlega fatl-
aðir einstakl-
ingar séu
misnotaðir af
óprúttnum
sölumönn-
um, líkt og
gerðist í máli
ungrar stúlku
sem keypti snyrtivörur í bás í
Kringlunni fyrir rúmlega hundrað
þúsund krónur um liðna helgi.
Bergvin segir blinda þó sjald-
an verða fyrir barðinu á óprúttn-
um aðilum, heldur frekar þá sem
eiga við andlega fötlun að stríða.
Bergvin bendir á að sambærilegt
mál hafi komið upp í Vestmanna-
eyjum fyrir nokkrum árum og
Blindrafélagið hafi fjallað um það.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Dóra Bryndís Ársælsdóttir og Guðlaug Magnúsdóttir, átta ára dóttir hennar, gengu
fram á sprautunálar og önnur tól til eiturlyfjaneyslu þegar þ�r voru á göngu í fjörunni
í Keflavík. Þegar hún óskaði eftir aðstoð lögreglu var hún sjálf beðin að hreinsa upp og
koma með leifarnar á lögreglustöðina. Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lög-
reglunnar á Suðurnesjum, segir það venju lögreglunnar að koma á staðinn.
LÖGGAN NEITAÐI AÐ
SÆKJA SPRAUTUNÁLAR
„Ætli löggan hafi nokkuð nennt út úr
húsi eða bara legið við Reykjanes-
brautina við hraðaeftirlit. Mér finnst
mjög skrítið að löggan hafi ekki kom-
ið til að fjarlægja leifarnar heldur ég
beðin um að koma með þetta sjálf,“
segir Dóra Bryndís Ársælsdóttir, íbúi
í Reykjanesbæ.
Dóra Bryndís var á gangi með 8
ára gamalli dóttur sinni, Guðlaugu
Magnúsdóttur, meðfram sjónum í
Keflavík er þær mæðgur gengu fram
á sprautunálar og aukahluti ætlaða
til eiturlyfjaneyslu falda undir steini
í fjörunni. Hún hringdi samstund-
is í lögregluna á Suðurnesjum til að
tilkynna fundinn og reiknaði með
því að lögreglumenn yrðu sendir á
vettvang til að fjarlægja sprauturnar.
Þess í stað var Dóra Bryndís beðin
um að tína sjálf upp dótið og koma
því á lögreglustöðina.
Nóg að gera
Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá lögreglunni á Suð-
urnesjum, segir algengt að leifar
eftir eiturlyfjaneyslu finnist víða í
bænum. Hann segir annir hjá lög-
reglunni líklegustu skýringu þess
að lögreglumenn voru ekki send-
ir á vettvang. „Það gerist alltaf öðru
hverju að okkur er bent á tól og leif-
ar eftir eiturlyfjaneyslu. Þetta finnst í
görðum og nokkuð víða. Ég man ekki
eftir því að á þessum stað hafi fund-
ist leifar áður,“ segir Skúli. „Yfirleitt
er þetta þannig að lögregla kemur á
staðinn þegar tilkynning berst. Venj-
an er að sjálfsögðu sú. Í þessu tilviki
hefur líklega verið mikið að gera hjá
okkur og við metið það þannig að
heppilegra hafi verið að hún myndi
fjarlægja þetta strax af vettvangi svo
að óvitar kæmust ekki í þetta. Þessu
er jafnan hent úr bílum og því finnst
þetta hér og þar. Ég var nú bara í golfi
á Korpuvelli fyrir helgi og á 8. braut
lá hasslón á miðri brautinni.“
Stóð ekki á sama
Aðspurð segir Dóra Bryndís þetta
slæma upplifun þar sem henni hafi
liðið illa að eiga við sprauturnar.
Henni finnst lögreglan þurfa að auka
eftirlit á svæðinu því það sé allt fljót-
andi í eiturlyfjum í bænum. „Dóttur
minni var mjög brugðið við þetta og
mér ekki síður. Þetta eru slæm tíð-
indi því það er hópur af fólki sem
labbar um þetta svæði, til dæmis
skólakrakkar, og það var virkilega
óþægilegt að finna sprauturnar. Mér
finnst í raun alveg ótrúlegt að þurfa
sjálf að hreinsa þetta upp því ég hélt
að þetta væri í verkahring lögregl-
unnar að koma á staðinn. Í staðinn
þurfti ég að ómaka mig við þennan
óþverra,“ segir Dóra Bryndís. „Mér
stóð heldur ekki á sama að þurfa
sjálf að taka sprauturnar upp og fara
með þetta á lögreglustöðina. Mér
leið mjög illa við að taka upp spraut-
urnar. Sem betur fer var ég með
poka á mér og það bjargaði mér. Fyr-
ir ómakið fékk dóttir mín svo endur-
skinsmerki.“
„Mér leið mjög illa við
að taka upp sprauturn-
ar. Sem betur fer var ég
með poka á mér og það
bjargaði mér.“
TrauSTi hafSTeiNSSoN
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Bláar tunnur reykjavíkurborg býður borgurunum bláar tunnur undir blaðapappír.
Menn hjá gámaþjónustunni eru ósáttir við ójafna samkeppni.
Guðlaug þar sem sprauturnar fundust Í
fjörunni fundu mæðgurnar guðlaug og Dóra
Bryndís notaðar sprautur, nálar og umbúðir sem
greinilega voru eftir eiturlyfjanotkun.