Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Blaðsíða 6
Útsmognir veggjakrotarar hafa geng-
ið berserksgang í Grafarvogi undan-
farið og úðað á nánast allt sem fyrir
þeim verður. Úðað hefur verið á um-
ferðarskilti, mannvirki Reykjavíkur-
borgar, húsnæði einkafyrirtækja og
bifreiðar í hverfinu. Þannig hefur til
dæmis verið úðað á bensínstöð Olís
við Gullinbrú og útibú Landsbank-
ans þar við hliðina á. Ljóst er af um-
merkjum að sömu aðilarnir hafa
staðið að baki ódæðunum.
Grafarholtsbúar hafa ekki held-
ur farið varhluta af veggjakroti. Jón
Pétursson, eigandi Grillhallarinn-
ar, hefur tvívegis orðið fyrir barðinu
á veggjakroturum og stefnir á að-
gerðir. „Það var á föstudagskvöld-
inu fyrir rúmri viku sem hvítur bíll
keyrði fram hjá húsinu. Eftir stutta
stund kom hann til baka og út stukku
nokkrir grímuklæddir menn sem
úðuðu alla framhliðina. Að svo búnu
flýttu þeir sér inn í bílinn og óku á
brott. Viku síðar gerðist nákvæmlega
það sama aftur,“ segir Jón. „Þetta er
alveg ótrúleg skemmdarfýsn. Ég er
að vinna í því að koma fyrir mynda-
vélum utan á húsinu og á bílaplan-
inu svo þeir munu ekki komast upp
með þetta lengi.“
Ekkert heilagt lengur
Gísli Friðjónsson, rekstrarfulltrúi
hverfamiðstöðvar Grafarvogs, segir
að aukin harka sé farin að færast í þá
aðila sem stundi veggjakrot í hverf-
inu. Hann bendir á að fjöldi starfs-
manna frá borginni starfi við það
eitt að fjarlægja veggjakrot. „Það hef-
ur verið sprengja hjá okkur. Við höf-
um fundið fyrir gífurlegri aukningu
síðustu daga og það er hörmung að
horfa upp á þetta. Þetta er ekkert
heilagt lengur því undanfarið hefur
verið úðað á umferðarskilti, hús og
bíla í miklum mæli. Þetta eru algjör-
ir gangsterar sem svífast einskis. Þeir
eru komnir í hefndaraðgerðir gegn
flokknum sem hreinsar upp eftir þá.
Um daginn var brotist inn á lokað
svæði hjá okkur og vinnubíll flokks-
ins allur úðaður,“ segir Gísli.
Aðalheiði Óladóttur, íbúa í Graf-
arvogi og stöðvarstjóra Olís við Gull-
inbrú, finnst sorglegt að horfa upp á
mikla aukningu veggjakrots í hverf-
inu. Hún vonast til að ástandið sé
ekki varanlegt. „Við erum ákaflega
sorgmædd yfir þessu. Það er búið að
úða hér úti um allt og þessi þróun er
alveg ný fyrir okkur. Við höfum ekki
þurft að kljást við veggjakrot fram til
þessa og bara núna á síðustu dög-
um sem sprautað hefur verið á sjálft
húsið. Í fyrrinótt var meira að segja
úðaður bíll frá Húsasmiðjunni sem
stóð á planinu hjá okkur,“ segir Að-
alheiður.
Vonandi er brúsinn búinn
Gísla blöskrar tíminn og pening-
arnir sem fara í að fjarlægja veggja-
krotið. Honum finnst kominn tími á
róttækar aðgerðir. „Þetta er orðinn
harður bransi. Það sem ég skil ekki
er hvar fá þessi gangsterar alla þessa
málningu sem til þarf. Það þarf að
stoppa þetta og setja einhver bönn á
þetta. Úðinn er til í massavís í hillum
verslana og aðgengið er allt of auð-
velt. Ég held að það þurfi að koma
upp skráningarkerfi í þessu og beita
almennilegum sektum,“ segir Gísli.
„Ég hef heyrt að lögreglan viti hverjir
þetta eru og ég get ekki skilið hvers
vegna aðilarnir eru ekki stoppað-
ir af. Mér finnst ólíðandi að starfa
í þessu umhverfi og ómögulegt að
þetta skuli líðast. Staðan er orðin það
skelfileg að nú þarf að beita róttæk-
um aðgerðum gegn þessu.“
Aðspurð vonast Aðalheiður til
þess að þetta sé einhver bóla en ekki
varandlegt ástand. Hún vill ekki trúa
því að sú þróun geti átt sér stað í
Grafarvogi.
„Það er svo gott fólk sem býr í
Grafarvoginum og ég trúi því ekki
að þetta verði varanlegt. Við skiljum
ekki alveg hvað er að gerast. Hér hef-
þriðjuagur 21. ágúst 20076 Fréttir DV
„Þeir eru komnir í
hefndaraðgerðir gegn
flokknum sem hreinsar
upp eftir þá. Um daginn
var brotist inn á lokað
svæði hjá okkur og
vinnubíll flokksins allur
úðaður.“
VEGGJAKROTSFARALDUR
Í GRAFARVOGI
TrausTi hafsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Síðustu daga hefur veggjakrot orðið mjög áberandi í
Grafarvogi þar sem úðað hefur verið á skilti, hús og bíla
í hverfinu. Vandinn er það mikill að settur hefur verið á
laggirnar sérstakur hópur sem starfar alla daga við að
fjarlægja veggjakrot. Gísli friðjónsson, rekstrarfulltrúi
hverfamiðstöðvar Grafarvogs, kallar eftir sértækum
aðgerðum til að útrýma veggjakroti.
Vel merktur þessi póstkassi hefur ekki
sloppið við krotarana. Heill flokkur
starfsmanna vinnur við það allan
daginn að hreinsa veggjakrot í borginni.
allt úðað Bensínstöð Olís
við gullinbrú er eitt þeirra
mörgu húsa í grafarvogin-
um sem hafa orðið fyrir
barðinu á veggjakroti
undanfarna daga. stöðvar-
stjórinn er sorgmæddur yfir
þessum nýlega vanda sem
blasir við.
Á veggi og bíla Veggjakrotararnir nota
hvern flöt til að úða á og má sjá
ummerkin mjög víða í grafarvoginum.
úðað var á bíl Húsasmiðjunnar sem stóð
á bílaplani bensínstöðvar.