Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Qupperneq 7
Kjötiðnaðarmenn hjá Norðlenska
ehf., þeir Grettir Frímannsson
og Jón Ágúst Knútsson, reka eig-
in kjötvinnslu í bílskúr þess fyrr-
nefnda. Um er að ræða ólöglega
svarta atvinnustarfsemi þar sem
þeir slátra fyrir bændur í nágrenn-
inu og hreindýraveiðimenn. Sam-
kvæmt heimildum DV eru þeir fé-
lagar sagðir hafa selt afurðir til
veitingahúsa á Akureyri en báðir
þvertaka fyrir slíkt.
Samkvæmt lögum er ekkert sem
bannar að kaupa kjötskrokk og
brytja hann niður í heimahúsi svo
lengi sem afurðin er ætluð til eigin
nota. Um leið og unnið er kjöt fyr-
ir aðra, hvort sem fyrir þá vinnu er
fengið greitt eður ei, líta lögin svo
á að um vinnslu og dreifingu mat-
væla sé að ræða. Þá þarf sérstakt
starfsleyfi frá heilbrigðiseftirliti og
til að fá slíkt leyfi þarf heilbrigðis-
eftirlit að taka út starfsemina. Sé
leyfi ekki til staðar er farið út fyrir
ramma laganna. Ekki hefur fengist
starfsleyfi fyrir kjötvinnslu í bílskúr
Grettis þrátt fyrir að þeir félagar
vinni kjöt fyrir aðra og fái fyrir það
greitt.
Tvísaga um samstarfið
Í samtali við blaðamann þvertók
Grettir fyrir kjötvinnslu í bílskúrnum
hjá sér. Hann sagði þar enga sérút-
búna aðstöðu til kjötvinnslu og sagð-
ist iðulega geyma bílinn sinn í skúrn-
um. Hann viðurkenndi að hafa þar
einn hníf til skurðar sem hann notaði
til að skera kjöt til eigin nota og fyrir
vini sína. Hann neitar samstarfi við
Jón Ágúst og sagði hann koma hvergi
nærri kjötskurði í bílskúrnum. „Ég hef
skorið hreindýr fyrir kunningja mína
og úrbeinað fyrir menn, það er ekkert
leyndarmál. Það er alrangt að ég reki
þarna kjötvinnslu og ég veit ekki til
þess að Jón Ágúst hafi skorið í skúrn-
um,“ segir Grettir.
Jón Ágúst staðfestir aftur á móti
samstarf þeirra félaga og sagði þá
vinna í sameiningu við kjötskurð í
bílskúrnum. Hann sagði skurðinn
fyrir þá sjálfa, vini, hreindýraveiði-
menn og bændur í nágrenninu. „Við
höfum verið að verka saman félag-
arnir og erum þarna með sameigin-
lega aðstöðu til að skera. Þetta er ekki
það skemmtilegt að maður nenni að
hanga í þessu einn. Við höfum skorið
fyrir hreindýraveiðimenn sem koma
við hjá okkur og eina og eina belju
fyrir bændur í nágrenninu. Fyrir vinn-
una tökum við hóflegt gjald. Ég held
alveg örugglega ekki að unnið hafi
verið fyrir veitingahús þó svo ég geti
ekki svarið fyrir það. Þetta er bara smá
þjónusta sem við erum með, svona
aukabúgrein,“ segir Jón Ágúst.
Lögin eru skýr
Valdimar Brynjólfsson, heilbrigð-
isfulltrúi Heilbrigðiseftirlits Norður-
lands, segir reglurnar mjög skýrar.
Hann staðfestir að umrædd aðstaða
hafi ekki hlotið starfsleyfi til kjöt-
vinnslu og því sé um lögreglumál að
ræða. „Það er í lagi að gera þetta til
eigin nota en annars ekki. Ef verið
er að vinna kjöt fyrir aðra er það tal-
ið sem vinnsla og dreifing matvæla.
Þá þurfa menn beinlínis starfsleyfi
frá okkur og um slíkt hefur ekki verið
sótt. Þessi starfsemi er því ekki með
okkar vitund og því er þetta ólög-
legt,“ segir Valdimar. „Ég tel eðlileg-
ast að lögreglan kanni þetta mál. Ef
menn eru með kjötvinnslu án leyfis
er þetta ekkert annað en lögreglu-
mál. Við lítum þetta mjög alvarleg-
um augum því brot á reglunum geta
verið hættuleg. Þar sem þetta eru
kjötiðnaðarmenn reikna ég svo sem
með því að þeir kunni að meðhöndla
kjötið en þeir eiga þá líka að kunna
lögin um þessa hluti.“
Alfreð Schiöth, dýralæknir hjá
heilbrigðiseftirliti Norðurlands, tek-
ur í sama streng. Hann segir ljóst að
félagarnir starfi utan laga ef vinnslan
er ekki aðeins til einkanota. „Fyrsta
spurningin er hvort viðkomandi sé
að vinna alfarið fyrir sjálfan sig eða
aðra. Ef viðkomandi er að vinna fyrir
aðra og kjötið fer í almenna dreifingu
þarf viðkomandi að hafa starfsleyfi.
Ef ekki liggur fyrir leyfi eru menn
utan við lög og rétt,“ segir Alfreð. „Til
að stunda kjötvinnslu þarf að huga
vel að aðbúnaði og staðháttum til að
gæta fyllsta öryggis og hreinlætis.“
DV Fréttir þriðjuagur 21. ágúst 2007 7
REKA ÓLÖGLEGA KJÖT-
VINNSLU Í BÍLSKÚRNUM
TrausTi hafsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
„Við höfum verið að
verka saman félagarn-
ir og erum þarna með
sameiginlega aðstöðu
til að skera.“
skýrar reglur Félagarnir staðfesta báðir
vinnslu kjötafurða fyrir aðra en sjálfa sig
en hafa ekki tilskilin leyfi frá heilbrigðis-
eftirliti. samkvæmt heimildum DV hafa
þeir selt afurðir á veitingastaði á akureyri
en báðir þvertaka þeir fyrir slíkt.
VEGGJAKROTSFARALDUR
Í GRAFARVOGI
ekkert heilagt undanfarið hefur
verið úðað á bíla, hús og skilti í
grafarvogi. af ummerkjum má greina
að sömu aðilar standa að baki auknu
veggjakroti í hverfinu.
ur allt verið hreint og fínt og skyndi-
lega þurfum við að hafa áhyggjur
af þessu. Fyrst og fremst finnst mér
þetta sorglegt því þetta er orðið dá-
lítið gróft. Ég vona að þetta sé bara
einhver bóla og treysti því að brúsinn
fari að klárast,“ segir Aðalheiður.
Landsbankinn við Gullinbrú úðað
hefur verið á nokkrar hliðar útibús
Landbankans við gullinbrú. á öllum
veggjum og skiltum í nágrenninu má sjá
svipuð ummerki.
Tveir félagar á Akureyri reka svarta atvinnustarfsemi heima hjá öðrum þeirra. Þar skera
þeir kjötskrokka fyrir veiðimenn og bændur í nágrenninu gegn gjaldi. Valdimar Brynj-
ólfsson, heilbrigðisfulltrúi Heilbrigðiseftirlits Norðurlands, segir þetta skýrt lögbrot.
Kjötskrokkar
Félagarnir hafa komið sér
upp sameiginlegri
aðstöðu í bílskúrnum þar
sem þeir vinna kjötið.