Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Page 10
þriðjuagur 21. ágúst 200710 Fréttir DV Einar Hermannsson skipaverkfræðingur segir orð Kristjáns Möllers samgönguráðherra, um að ráðgjöf Ein- ars hafi verið upphafið að þeim ógöngum sem mál Grímseyjarferju rataði í, hafa skapað fyrirtæki hans mik- inn vanda. Einar sagði í fyrstu skýrslu sinni að írska skipið sem keypt var hafi verið í hörmulegu ástandi. Ekki hafi verið farið að þeim ráðleggingum sem hann gaf. Hann ritar nú fjárlaganefnd bréf um málið. BANNAR VEGAGERÐINNI AÐ EIGA VIÐSKIPTI VIÐ MIG Einar Hermannsson skipaverkfræð- ingur ritar nú bréf til fjárlaganefnd- ar þar sem hann útskýrir aðkomu sína að endurnýjun Grímseyjarferju. „Þetta er einn af þeim fáu möguleik- um sem ég hef til þess að kynna mína hlið á málinu,“ segir Einar. Fjárlaga- nefnd fundar um málið á fimmtudag. Einar segir að yfirlýsing Kristjáns Möllers samgönguráðherra, um að hann væri ábyrgur fyrir þeim ógöng- um sem menn hefðu ratað í við end- yrnýjun ferjunnar, hafi haft mik- il áhrif á rekstur sinn. „Það segir sig sjálft. Ég hef mikið unnið fyrir Vega- gerðina og því hefur þetta sín áhrif. Sem betur fer hafa mínir núverandi viðskiptavinir lýst yfir stuðningi við mig og forundran á þessari fram- komu ráðherrans,“ segir Einar. Hörmulegt ástand skipsins Einar fór út til Írlands ásamt starfs- manni Samskipa, sem er rekstraraðili ferjunnar, og gerði á henni úttekt. „Í þeirri skýrslu sem við skiluðum inn drógum við enga dul á stöðu mála og kölluðum ástand skipsins hörmulegt,“ segir Einar. Í sömu skýrslu sagði Ein- ar að ferjan gæti hentað til siglinga til Grímseyjar að uppfylltum fjórum skil- yrðum. „Sú fyrsta var að skipið uppfyllti ákveðnar reglur, sem það vissulega gerði. Í öðru lagi að skipið fengist keypt fyrir helmingi lægra verð en farið var fram á í upphafi. Þriðja skilyrðið var að skipið yrði gert upp án þess að því yrði breytt og að lokum að skipið yrði gert upp í viðgerðarstöð í Austur-Evrópu, á því verði sem þar gildir,“ segir hann. Fóru ekki að ráðleggingum Einar segir að af þessum fjórum skilyrðum hafi embættismenn og ráðherrar kollsteypt öllum nema því fyrsta. Farið hafi verið út í breytingar á skipinu sem aldrei hafi verið talin þörf fyrir. „Þetta eru breytingar fyrir tvö hundruð milljónir sem enginn kannast við að hafa fyrirskipað. Þetta eru hins vegar ákvarðanir embættismanna og stjórn- málamanna,“ segir hann. Einari þykir súrt í broti að Kristján Möller skuli kenna honum um ákvarðanir sem teknar voru af embættis- og stjórnmálamönnum. „Ég get hins vegar ekki sest í dómara- sætið. Ég hef fengið nóg af því að vera dæmdur sjálfur. Svona er þetta þegar veist er að einkaaðila sem ekki hefur marga möguleika til þess að bera hönd fyrir höfuð sér.“ Ráðherra fann ráðgjafa Kristján Möller samgöngu- ráðherra sagði með skýrum hætti að Einar Hermannsson bæri ábyrgð á því hvernig kom- ið væri fyrir nýju Grímseyjar- ferjunni, eftir að hann kynnti svarta skýrslu Ríkisendurskoð- unar fyrir ríkisstjórn á þriðju- daginn í síðustu viku. „Ég hef gefið Vegagerðinni fyrirmæli um það, í tilefni af þessari svörtu skýrslu, að hún skipti um ráðgjafa hvað þetta varðar,“ sagði Kristján Möller í viðtali við DV við það tækifæri. „Ég les það út að ráðgjöfin hafi verið slæm. Ráðgjafinn heitir Einar Hermannsson og er skipa- verkfræðingur. Hann hefur verið sjálfstætt starfandi verkfræðing- ur og unnið fyrir Vegagerðina við þetta verk. Þar er byrjunin,“ sagði Kristján Möller. „Hann hreinlega bannaði Vegagerðinni berum orðum í fjölmiðlum að eiga frekari sam- skipti við mig,“ segir Einar. „Sem betur fer hafa mínir núverandi við- skiptavinir lýst yfir stuðningi við mig og forundran á þessari framkomu ráðherr- ans.“ SigtRygguR ARi jóHAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is D V m yn di r s te fá n / K ar l unnið að frágangi Nú er unnið að frágangi á innrétting- um í stjórnklefum og vistarverum grímseyj- arferjunnar nýju. Einar Hermannsson skipaverkfræðingur ráðlagði í upphafi að engar breytingar yrðu gerðar á skipinu. Engu að síður var lagt út í gagngerar breytingar sem kostuðu mikið fé. Samgönguráðherra Kristján Möller sagði Einar Hermannsson hafa gefið Vegagerðinni vonda ráðgjöf. Blaða·maður KK • starfsmaður blaðs, sá sem hefur atvinnu af að skrifa í blöð - Íslensk orðabók „Ég heiti Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Mér finnst skipta máli að vinna á fjölmiðli sem þorir að sigla á móti straumnum og taka á mál- efnum sem samfélaginu er nauðsynlegt að fjallað sé um. DV er fjölmiðill sem veitir nauðsynlegt aðhald. Ég tala þínu máli.“ Talar þínu máli F í t o n / S Í A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.