Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2007, Page 16
þriðjudagur 21. ágúst 200716 Sport DV
enski boltinn
Makelele fraMlengir
Claude Makelele miðjumaður Chelsea
hefur ákveðið að lengja dvöl sína hjá
klúbbnum um eitt ár. Hann skrifaði
undir samning
við félagið í gær
og mun því
verða hjá
félaginu til ársins
2009 ef að líkum
lætur. Makelele
er þrjátíu og fjög-
urra ára og áður
en hann skrifaði
undir framleng-
ingu á samningi stóð til að samningur-
inn myndi klárast næsta vor. Hann kom
til Chelsea frá real Madrid árið 2003 og
hefur tvisvar sigrað enska meistaratitil-
inn, tvisvar enska deildarbikarinn og
einu sinni ensku bikarkeppnina.
Derby kaupir
derby keypti Eddie Lewis frá Leeds fyrir
ótilgreinda upphæð í gær. Lewis er
bandarískur kantmaður og skrifaði undir
tveggja ára
samning við
derby. Hann er
þrjátíu og þriggja
ára gamall og
spilaði hjá Prest-
on þegar Billy
davies fram-
kvæmdastjóri
derby var þar
þjálfari. davies
hefur verið hrifinn af Lewis síðan þá og
mun hann koma inn í hópinn í næstu
viku þegar derby spilar gegn Birming-
ham. Lewis kemur með mikla reynslu
inn í lið derby en hann hefur meðal
annars spilað tvívegis í heimsmeistara-
keppninni. Hann er sjötti leikmaðurinn
sem derby kaupir fyrir tímabilið.
Diouf vill fara
El Hadji diouf leikmaður Bolton gaf í
gær út þá yfirlýsingu að hann vilji fara
frá Bolton til liðs sem hefur meiri
metnað og spilar í Meistaradeild Evrópu.
Bolton er sem
stendur neðst í
deildinni og það
finnst diouf
óásættanlegt.
talið er að Bolton
vilji fá 10 milljónir
punda fyrir
framherjann.
„það eru fimm
félög á eftir mér
en ég vill ekki fara til að fara, ég vill fara
til liðs þar sem ég verð ánægður. Mig
langar að spila í Meistaradeildinni eða í
liði sem verður þar á næsta tímabili,“
segir diouf. tottenham, Celtic og Lyon
eru meðal félaga sem vilja leikmanninn.
Jol tekur gagnrýni illa
Martin jol vísar því á bug að hans sé
undir þrýstingu af hálfu stjórnarinnar að
enda í einu af fjórum efstu sætum
deildarinnar. þegar hafa komið upp
sögusagnir um
að jol sé að
missa stöðu sína
vegna slælegs
gengis í upphafi
móts, en
tottenham
svaraði fyrir sig
með því að
leggja derby af
velli 4-0 um
helgina. Hann segir að hann viti af
þessum röddum. „það eru alltaf
einhverjar raddir sem vilja mann í burtu.
Ég er útlendingur sem þarf að sanna
mig fyrir öllum í Englandi. Ég er hins
vegar líkur mörgum öðrum með það að
ég tek gagnrýni afar illa. stjórnin sagði
aldrei við mig að ég þyrfti að enda í
einum af fjórum efstu sætunum og því
er þetta tal allt komið frá fólki sem gerði
miklar væntingar til okkar fyrir
tímabilið,“ segir Martin jol.
upson var fyrirliði, ekki noble
þau mistök áttu sér í dV sport í gær að
ranglega var farið með staðreyndir í
umfjöllun um leik Birmingham og West
Ham. þar stóð að Mark Noble hafi verið
fyrirliði West
Ham í leiknum
og að hann hafi
verið að mæta
sínum gömlu
félögum í þeim
leik. Hið rétta er
að Matthew
upson var
fyrirliði West
Ham í leiknum
og var að mæta sínum fyrrverandi
samherjum. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
steRkUstU leik-
Menn kAnADA
Kanadíska landsliðið er á hraðri uppleið á FIFA-listanum. Hér má sjá þrjá öflugustu
leikmenn liðsins en íslenska landsliðið mun spila við það kanadíska á miðvikudag.
Landsliðsþjálfari Kanada, Dale
Mitchell, valdi 17 leikmenn víðs veg-
ar um Evrópu fyrir landsleik liðsins
gegn Íslandi sem fram fer á miðviku-
dag. Nokkrir sterkir leikmenn spila
með liðinu sem hefur klifið hratt
upp styrkleikalista FIFA og er nú í 52.
sæti.
paul staltieri
Spilar með Tottenham á Englandi
og er traustur bakvörður sem gerir
sjaldan mistök. Hans helsti veikleiki
er sóknarleikur og hefur hann ver-
ið inn og út úr liðinu hjá Tottenham
undanfarin ár. Hann hefur spilað 59
landsleiki fyrir þjóð sína og er 29 ára.
Hann gekk til liðs við Tottenham frá
Werder Bremen árið 2004 á frjálsri
sölu. Með Bremen í Þýskalandi vann
hann þýsku deildina einu sinni og
báðar bikarkeppnirnar árin 2003–
2004. Staltieri hefur spilað í Meist-
aradeildinni með Werder Bremen og
var í liðinu sem var slegið út af Lyon
í 16 liða úrslitum árið 2004 en hann
spilaði átta sinnum í keppninni það
ár.
Hann spilaði 35 leiki fyrir Totten-
ham tímabilið 2004–2005 en lenti í
meiðslum á síðasta tímabili auk þess
sem Pascal Chimbonda var keyptur
í bakvarðarstöðuna hjá Tottenham í
hans stað. Hann gerði eitt mark fyrir
Tottenham í 4–3 sigurleik gegn West
Ham á Upton Park í fyrra.
thomas radzinski
Vakti fyrst athygli með Anderlect
í Meistaradeild Evrópu árið 2001
þegar hann skoraði tvö mörk í sigri
Manchester United. Á sama tímabili
varð hann markahæsti leikmaður
deildarinnar þegar Anderlecht varð
Belgíumeistari. Hann fór til enska
knattspyrnuliðsins Everton fyrir 4,5
milljónir punda árið 2001 og spilaði
með liðinu til 2004.
Þá fór hann til Fulham í London
en losnaði undan samningi eftir síð-
asta tímabil og er ekki í félagi í dag.
Radzinski fæddist í Póllandi árið
1973 en flutti til Þýskalands þrett-
án ára. Þar dvaldi hann þar til hann
fór til Kanada tvítugur að aldri og
bjó þar til 1997 þegar hann fór til
Ekerane. Ári síðar fór hann til Ander-
lecht. Hann gat valið um þrjú lands-
lið til þess að spila með. Það pólska,
þýska og kanadíska sem hann valdi.
Hann er 33 ára og hefur spilað 33
landsleiki.
Julian de guzmán
Er helsta stjarna Kanada nú um
stundir. Hann spilar með Deportivo
La Coruna á Spáni. Hann vakti fyrst
athygli með Hannover 96 í þýsku
Bundeslígunni árið 2002. Þar spilaði
hann í þrjú ár. Hann hefur spilað 245
leiki fyrir Kanada og var valinn besti
leikmaður Norður-Ameríkukeppn-
innar þar sem Kanada endaði í
fjórða sæti. Hann spilaði vel fyrir De-
portivo La Coruna á síðasta tímabili
eftir að hafa verið í vandræðum með
að komast í lið tímabilið á undan.
Þar á hann í harðri samkeppni við
góða leikmenn á borð við Aldo Du-
cher sem hefur lengi verið í fremstu
röð. Julian er einungis 168 sentímetr-
ar á hæð en er afar hvikur leikmaður
sem liggur til baka á miðjunni. Hann
á yngri bróður að nafni Jonathan De
Guzmán sem spilar með Feyenord
í Hollandi og getur spilað með hol-
lenska landsliðinu sem hann hefur
verið orðaður við. vidar@dv.is
Jónas guðni sævarsson fyrirliði Keflavíkur tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu:
Fyrirliðinn hljóp 10 kílómetra
Jónas Guðni Sævarsson fyrirliði
Keflavíkur í Landsbankadeild karla
hljóp tíu kílómetra í Reykjavíkurmar-
aþoni Glitnis á laugardag. Unnusta
Jónasar vinnur hjá Glitni og hlupu
þau saman. Kristján Guðmundsson
þjálfari Keflavíkur gaf frí frá æfing-
um um helgina en fyrirliðinn sýndi
gott fordæmi og hljóp heila tíu kíló-
metra. Tíminn var reyndar ekkert til
að hrópa húrra yfir.
„Ég tók því bara rólega. Var að
hlaupa með konunni og var klukku-
tíma og tíu mínútur. Þetta var bara
endurheimt,“ sagði hinn geðþekki
Jónas. Hann sagði einnig að þrátt
fyrir gengi sinna manna væri mann-
skapurinn hress og kátur.
„Það hefur gengið skelfilega að
undanförnu hjá okkur. Við tókum
góða fríhelgi á þetta til að ná áttum
og pústa aftur.“ Keflavík á næst leik
í Landsbankadeildinni á sunnudag
gegn Val en liðið hefur ekki unnið
síðan 27. júní þegar það vann Fylki
1-0.
„Við töpuðum niður tveimur mörk-
um gegn Val í fyrri umferðinni þannig
að við vitum hvernig þeir spila. En
þeir hafa ekki verið með neitt svaka
gengi að undanförnu, eru ekki búnir
að vinna síðustu tvo leiki þannig að
við ætlum bara að bæta fyrir okkar lé-
lega gengi að undanförnu.“
Hallgrímur Jónasson og Nicolai
Jörgensen léku á ný með Keflavík á
móti HK eftir að hafa meiðst í Evr-
ópuleiknum gegn Midtjylland. Jónas
segir að það hafi verið mikill styrkur
að fá þá aftur inn í liðið en Keflvíking-
ar hafa verið óheppnir með meiðsli.
„Ég held að þetta sé svona áber-
andi hjá okkur út af því að við erum
með svo lítinn hóp. Þegar tveir eru
meiddir, þá er liðið vængbrotið og lít-
ið hægt að skipta inn á. Við erum með
unga stráka á bekknum og eins og á
móti Breiðabliki erum við ekki einu
sinni með fullmannað lið á skýrslu.
Við vorum með tvo markmenn á
bekknum. Ástæðan fyrir meiðslun-
um er kannski bara óheppni. Hall-
grímur höfuðkúpubrotnaði og Nic-
olai nefbrotnaði, það eru meiðsli
sem er ekki hægt að koma í veg fyr-
ir,“ sagði hinn smái en knái Jónas
Guðni.
benni@dv.is
Hljóp tíu kílómetra jónas guðni sævarsson hljóp í reykjavíkurmaraþoni glitnis.
paul staltieri Er traustur bakvörður sem spilar í tottenham.
thomas radzinski Hefur spilað með
Everton og Fulham í ensku deildinni.
Julian De guzman Er miðjumaður sem
spilar með deportivo La Coruna.