Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2007, Side 10
ÍÞRÓTTAMOLAR
Eiður fékk sénsinn
Eiður Smári Guðjohnsen kom í fyrsta
sinn á tímabilinu við sögu hjá Barcelona.
Hann kom inn á
sem varamaður
fyrir Deco þegar
um tuttugu
mínútur voru eftir.
Barcelona tapaði
fyrir Villarreal
nokkuð óvænt 1-3.
Eiður Smári
Guðjohnsen segir í
samtali við
heimasíðu Barcelona að honum líði best
á miðjunni og að hann sé reiðubúinn að
spila þar. „Það er auðvitað aldrei gott að
koma inn á vegna þess að liðsfélagi
þinn meiðist en ég er ánægður með að
hafa fengið mínar fyrstu mínútur á
tímabilinu. Það hefði reyndar verið
betra ef við hefðum unnið leikinn.“ Eiður
segir að það henti honum vel að spila á
miðjunni.
Grétar spilaði í taplEik
Grétar Rafn Steinsson lék fyrri hálf-
leikinn í viðureign AZ og Heerenveen
sem AZ tapaði 0-1. Afonso Alves skoraði
sigurmark leiksins.
AZ hefur ekki
gengið vel það sem
af er tímabilnu og
er í 12. sæti
hollensku
úrvalsdeildarinnar
með átta stig eftir
átta leiki sem er
ekki í takt við
væntingarnar.
Feyenoord er á toppnum með 21 stig,
PSV kemur næst með 20 stig og Ajax er
með átján.
EGGErt maður lEiksins
Eggert Gunnþór Jónsson lék allan
leikinn með skoska úrvalsdeildarliðinu
Hearts sem tapaði 1-3 fyrir Dundee
United á heimavelli. David Robertson,
Jordan Robertson
og Barry Robson
komu Dundee
United í 3-0 áður en
Laryea Kingston
minnkaði muninn á
lokamínútu
leiksins. Á
heimasíðu Hearts
var Eggert
Gunnþór valinn
besti maður leiksins. Hearts er í sjötta
sæti deildarinnar með fjórtán stig eftir
tíu leiki, átta stigum á eftir toppliðunum.
mÁnUDAGUR 22. oKtóBER 200710 Sport DV
Sport
í daG
07:00 WEst Ham - sundErland
Enska úrvalsdeildin
13:25 CoCa-Cola CHampionsHip
15:05 BlaCkBurn - rEadinG
Enska úrvalsdeildin
16:45 EnGlisH prEmiEr lEaGuE
Ensku mörkin
ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla
þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik
umferðarinnar eru sýnd frá öllum
mögulegum sjónarhornum.
17:45 Goals of tHE sEason
2001/2002
Öll glæsilegustu mörk hverrar leiktíðar
Úrvalsdeildarinnar frá upphafi til
dagsins í dag.
18:50 nEWCastlE - tottEnHam
Enska úrvalsdeildin
21:00 EnGlisH prEmiEr lEaGuE
Ensku mörkin
ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla
þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik
umferðarinnar eru sýnd frá öllum
mögulegum sjónarhornum.
22:00 CoCa Cola mörkin
Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í
leikjum síðustu umferðar í Coca Cola
deildinni.
22:30 nEWCastlE - tottEnHam
Enska úrvalsdeildin
Kimi Räikkönen tryggði sér sinn fyrsta heimsmeistaratitil með
sigri í Brasilíu-kappakstrinum. Fyrir mótið var Räikkönen tíu
stigum á eftir Lewis Hamilton, en sá síðarnefndi gerði mistök sem
kostuðu hann titilinn.
Räikkönen
heiMsMeisTARi
Spennan var gríðarleg fyrir loka-
keppni tímabilsins í Formúlu 1.
Lewis Hamilton var með heims-
meistaratitilinn í hendi sér fyr-
ir mótið sem fram fór í Brasilíu,
en það var að lokum Finninn Kimi
Räikkönen sem fór með sigur af
hólmi og tryggði sér sinn fyrsta
heimsmeistaratitil.
Lewis Hamilton var annar í rás-
röðinni eftir tímatökuna á laugar-
daginn, með Felipe Massa fyrir
framan sig og Kimi Räikkönen fyrir
aftan. Hamilton fór hins vegar illa
að ráði sínu og missti bæði Räikk-
önen og Fernando Alonso fram úr
sér í ræsingunni. Ekki nóg með það
heldur ók Hamilton út úr brautinni
og fór aftur í áttunda sætið.
Á 13. hring varð Hamilton fyrir
enn meira áfalli þegar hann lenti í
vandræðum með bíl sinn. Við það
fór hver ökumaðurinn á fætur öðr-
um fram úr honum og Hamilton var
skyndilega kominn í 18. sæti.
Ferrari-ökumennirnir Kimi
Räikkönen og Felipe Massa gengu
á lagið, náðu góðri forystu og héldu
Fernando Alonso fyrir aftan sig.
Hamilton reyndi þó hvað hann gat
og náði að vinna sig upp í áttunda
sæti þegar 25 hringir voru eftir.
Fram til þessa hafði Massa leitt
keppnina. Räikkönen komst hins
vegar fram úr Massa þegar átján
hringir voru eftir og heimsmeist-
aratitillinn var í augsýn. Räikkön-
en náði að halda út allt til enda og
tryggja sér heimsmeistaratitilinn í
fyrsta sinn.
Räikkönen hefur tvisvar endað
í öðru sæti í keppni ökumanna og
því óhætt að segja að allt er þeg-
ar þrennt er. Hann yfirgaf McLaren
fyrir ári síðan þegar McLaren ákvað
að gefa Lewis Hamilton tækifæri og
fékk Fernando Alonso frá Renault.
Þakkar liðinu
„Ég verð að þakka liðinu. Það
vann frábæra vinnu, ekki aðeins í dag
heldur á öllu tímabilinu. Við lentum
í smá erfiðleikum en við lögðum allt-
af hart að okkur og unnum okkur út
úr vandræðunum,“ sagði Räikkönen
eftir keppnina. Hann þakkaði líka
Felipe Massa, félaga sínum hjá Ferr-
ari, fyrir samkeppnina.
„Felipe hjálpaði líka til. Ég átti
í harðri baráttu við hann allt tíma-
bilið. Hann var óheppinn í sum-
um keppnum og átti því miður ekki
möguleika á titli. En hann hefur
hjálpað mikið til. Einnig styrktarað-
ilarnir. Liðið stendur þétt saman og
hefur bætt allt til að hjálpa okkur. Ég
er mjög ánægður,“ sagði Räikkönen.
„Ég náði mjög góðri byrjun og við
Felipe börðumst hart. Það var gott
að komast fram úr Hamilton. Hann
keyrði út úr brautinni og við vissum
að við ættum möguleika. Við tókum
því samt frekar rólega og hefðum
getað farið hraðar.
Þetta voru frábær endalok á tíma-
bilinu. Ég er mjög ánægður með
þennan frábæra dag,“ sagði heims-
meistarinn Räikkönen að lokum.
Felipe Massa var á heimavelli í
gær og var mjög ánægður með sína
frammistöðu. „Ég er mjög ánægð-
ur með liðið. Því miður hafði ég að
engu að keppa. Við höfum lent í erf-
iðleikum á tímabilinu en ég er mjög
ánægður fyrir hönd liðsins.
Það er gott að sjá Ferrari vinna
heimsmeistaratitilinn og ég er mjög
ánægður með að hjálpa liðinu í að
vinna þennan titil. Vonandi vinn ég
einn daginn en ég er ánægður fyrir
hönd Kimis,“ sagði Massa.
Ber höfuðið hátt
Fernando Alonso náði öðru sæti
í keppni ökumanna og var aðeins
stigi á eftir Räikkönen. „Fyrst af öllu
vil ég óska Kimi til hamingju. Ég hef
oft sagt að sá sem endar með flest
stig á skilið að vinna. Þetta var frá-
bær heimsmeistarakeppni og að
lokum hafði hann betur.
Ég vissi að þetta yrði erfið keppni,
ekki aðeins af því að ég þurfti að ná
í fjögur eða fimm stig. Heldur einn-
ig vegna vandræða Hamiltons, því
þá vissi ég að Ferrari væri í tveimur
efstu sætunum og það var ekki nógu
gott fyrir mig.
Ég náði góðri byrjun en náði ekki
að halda nógu vel í við Ferrari og
þurfti á því að halda að eitthvað færi
úrskeiðis hjá þeim,“ sagði Alonso
eftir keppnina.
Lewis Hamilton gerði afdrifarík
mistök sem kostuðu hann titilinn.
Hann segist þó vera hvergi bang-
inn og ætlar sér stóra hluti í fram-
tíðinni.
„Ég mun koma aftur að ári og
bera höfuðið hátt. Ég veit að við
munum gera enn betur á næsta ári
og það jafnvel enn sterkari. Ég er
nokkuð ánægður. Hverjum hefði
dottið í hug að ég myndi ná þess-
um árangri á mínu fyrsta ári í For-
múlu 1?
Við áttum erfitt uppdráttar í síð-
ustu tveimur keppnum en liðið
gerði sitt besta og hefur unnið vel
allt árið. Ég trúi því enn að við höf-
um verið með hraðskreiðasta bíl-
inn,“ sagði Hamilton, sem viður-
kenndi mistök sín.
„Ég hef ekki haft tíma til að skoða
hvað fór úrskeiðis. Ég gerði mistök í
upphafi keppninnar og ég því missti
ég af nokkrum stigum. Ég náði að
vinna mig upp en í einni beygju fór
bíllinn í hlutlausan gír og við vitum
ekki enn af hverju. Það var allt að
vinna á móti mér en ég mun koma
aftur að ári og reyna að gera betur.
Það eru 22 vikur þar til keppnin
hefst að nýju og ég mun koma aftur í
betra formi, afslappaðri, reynslunni
ríkari og ég verð á betri bíl,“ bætti
Hamilton við.
daGur svEinn daGBjartsson
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is
Hvergi banginn Lewis
Hamilton viðurkenndi
mistök sín eftir keppnina
en segist ætla aðkoma
sterkari til leiks á næsta ári.
Heimsmeistari Finninn Kimi
Räikkönen tryggði sér sinn fyrsta
heimsmeistaratitil á ferlinum
með glæsilegum sigri í Brasilíu.