Fréttatíminn - 07.02.2014, Blaðsíða 24
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
RV skrifstofuvörutilboð
Br
éf
ab
in
di
Tú
ss
lit
ir
Re
ik
ni
vé
la
r
Ljó
sr
itu
na
rp
ap
pí
r
Kú
lu
pe
nn
ar
Ra
fh
lö
ðu
r
Verð frá
57 kr.pr. stk.
Verð frá
297 kr.pr. pk.
Verð frá
288 kr.pr. stk.
Verð frá
698 kr.pr. stk.
Verð frá
498 kr.pr. 500 bl.
Verð frá
297 kr. pr. pk.
RV - birginn þinn í skrifstofuvörum og daglegum rekstrarvörum
Jón Finnbogason
4. sæti
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins: 8. febrúar
Lögmaður og fyrrverandi formaður
Gerplu á árunum 2006 – 2013
facebook.com/jonfinnb · S: 696-1855
Stofnaði stefnumótasíðu til að finna ástina
Hólmfríði
Fróðadóttur
leist ekkert á
íslensku stefnu
móta síðurnar
þegar hún flutti
aftur til Íslands
frá London
og ákvað að
stofna eigin
stefnumótasíðu
þar sem fólk
kemur fram
undir nafni og
með mynd, auk
þess sem vinir
skrifa lýsingu á
viðkomandi.
O
kkur fannst vanta stefnumótasíðu
þar sem allt er uppi á borðum og
fólk kemur fram undir nafni, með
mynd og lýsingu frá vini sínum,“
segir Hólmfríður Fróðadóttir, einn
stofnenda stefnumótasíðunnar „Má ég kynna“ á
vefslóðinni kynna.is. Vefurinn fór í loftið þann 19.
janúar og segir Hólmfríður að viðtökurnar hafi
verið góðar. „Við erum þegar með skráða notend-
ur frá 19 ára og upp í sextugt, um allt land,“ segir
hún en farið er yfir auglýsingarnar til að tryggja
að allt innihald sé innan siðsamlegra marka.
„Ég bjó lengi í London og þegar ég flutti aftur
til Íslands var ég að kvarta yfir því við vinkonu
mína að hér væru engar stefnumótasíður sem ég
gæti hugsað mér að skrá mig á. Á flestum þess-
um síðum veit maður ekkert við hverja maður er
að eiga samskipti og sumir jafnvel bara að leita
að skyndikynnum. Í London eru allir skráðir á
stefnumótasíður ef þeir eru einhleypir – það er
ekki spurt hvort þú sért skráður heldur á hvaða
síðu þú ert,“ segir Hólmfríður sem sjálf er ein-
hleyp og í leit að ástinni. „Vinkona mín stakk því
bara upp á það við mig að ég stofnaði mína eigin
síðu. Þetta er því líka eins konar sjálfsbjargarvið-
leitni,“ segir hún hlæjandi.
Það sem aðgreinir síðuna frá öðrum íslenskum
stefnumótasíðum, auk þess að þar kemur fólk
fram undir eigin nafni og mynd, er að vinur þess
sem er skráður gefur þar lýsingu á viðkomandi og er
hugmyndin að nafninu „Má ég kynna“ dregin af því.
„Sumum finnst erfitt að lýsa sjálfum sér og myndu
kannski hika við að skrifa ýmislegt sem vinir skrifa
óhikað. Vinir eiga líka oft auðveldara með að sjá kost-
ina og skrifa fallega hluti sem manni fyndist óþægi-
legt að skrifa sjálfum,“ segir Hólmfríður. Þeir sem
vilja geta bætt við eigin lýsingu á sjálfum sér en alltaf
þarf að vera lýsing frá vini. „Vinur þinn getur líka haft
frumkvæði að því að skrá þig og þú færð þá tölvupóst
og ert beðin um að klára skráninguna. Auglýsingin
fer aldrei í loftið nema þú samþykkir það. Við eigum
öll frábæra vini sem okkur langar að hjálpa að finna
ástina og nú er kominn vettvangur þar sem við getum
komið þeim á framfæri,“ segir hún.
Hólmfríður vonar að síðan verði til þess að það hætti
að vera feimnismál að vera skráður á stefnumótasíðu.
„Þetta er ekkert til að vera feiminn við. Þetta er bara
sambærilegt við að ef þú ert að leita að vinnu þá skráir
þú þig hjá ráðningarstofu.“ Hólmfríður hefur enn ekki
fundið hinn eina rétta, enda aðeins rétt rúmar tvær
vikur frá því að síðan fór í loftið. „Nei, ekki ennþá.
Góðir hlutir gerast hægt,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Í London
eru allir
skráðir
á stefnu-
móta-
síður ef
þeir eru
einhleypir.
Hólmfríður
Fróðadóttir,
einn stofnenda
stefnumótasíð
unnar, er sjálf að
leita að ástinni
en langaði ekki
að skrá sig á þær
síður sem voru
fyrir í boði. Ljós-
mynd/Hari
24 viðtal Helgin 7.9. febrúar 2014