Fréttatíminn - 07.02.2014, Side 43
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Nettir snagar í mismunandi stærðum. Þessir snotru snagar fara vel í eldhúsi,
baðherbergi til að hengja á skartgripi eða lykla ellegar einfaldlega sem
skraut. Mini Camouflage snagarnir fást metalsprautulakkaðir í mörgum
litum eða í ryðfríu stáli.
Blóm sem opnast til fulls er hugmyndin
að baki hönnuninni á Lulu snögunum.
Fallegir og auðveldir í notkun og fást í
mismunandi stærðum og lengdum og
hægt að nota staka eða fleiri saman.
Mismunandi stærðir gera snagana jafn
frábæra fyrir úlpur og jakka, herðatré,
regnhlífar eða töskur og þeir henta í
forstofu, fataherbergi eða svefnherber-
gi. Lulu snagar eru lakkaðir með mjúku
lakki sem ljær þeim matta og skemmti-
lega áferð.
Verk hönnunartvíeykisins Flemming Busk og Stephan B. Hertzog einkennast af hreinum og
einföldum línum sem tala skýru máli. Það er sannfæring þeirra að híbýli skuli alla jafna skreyta
með því sem jafnframt hafi notagildi. Hönnun þeirra félaga er að finna um allan heim, allt frá
alþjóðlegum flugvöllum til setustofu leikmanna Chelsea fótboltaklúbbsins. Busk+hertzog hafa
hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga og verk þeirra eiga fastan sess á Danish Museum of
Art and Design, auk þess sem ekki færri en 18 stólar eftir þá voru með í enduropnun á Museum
of Modern Art í New York 2004.
Óskabeinsborðið hæfir ótalmörgum tilefnum, til dæmis fer það vel í grennd við hinn
glæsilega Wishbone fatastand, í forstofu eða á gangi. Eins er það nett hliðarborð við sófa
eða undir fartölvu, blómavasa, kaffi- eða tebolla og jafnvel sem náttborð. Þú ákveður
einfaldlega hvar þú vilt nota það. Borðið er úr lökkuðu áli og fæst í mörgum litum.