Fréttatíminn - 07.02.2014, Page 58
Það eru
einhverjir
töfrar sem
liggja í
textanum
hans.
Myndlist tvær sýningar – Harro og Hildur
Finnsk og íslensk myndlist á Kjarvalsstöðum
t vær sýningar verða opnaðar í Listasafni Reykjavíkur-Kjarvalsstöðum á morg-un, laugardaginn 8. febrúar klukkan 16.
Sýning á verkum finnska listamannsins Harros
og sýning Hildar Ásgeirsdóttur Jónsson sem
ber heitið Úr iðrum jarðar. Listamennirnir verða
viðstaddir opnunina.
„Harro er mikilvægur í sögu norrænnar
myndlistar en hefur fengið minni athygli hér á
landi en hann verðskuldar,“ segir í tilkynningu
Listasafnsins. „Verk hans eru nú í fyrsta skipti
kynnt fyrir íslenskum áhorfendum í samstarfi
við Listasafnið í Turku sem móti kynnir verk
Errós fyrir Finnum. Harro og Erró hafa báðir
lagt fram mikilvægan skerf til sögu samtíma-
listarinnar. Verk þeirra vekja enn umræður og
áhuga fræðimanna og veita listamönnum og
öðrum í menningarlífinu innblástur.
Á sýningunni verður sjónum beint að popp-
listaverkum Harros frá 1968 til 1972 en þau ollu
uppnámi þegar þau voru fyrst sýnd í Finnlandi.
Þar eru m.a. verk byggð á finnska fánanum,
á vörumerkjum alþjóðlegra fyrirtækja og hin
þekkta svína-syrpa. Verkin úr þessum mynda-
seríum veita góða innsýn í hugarheim Harros.
Þau eru fengin að láni frá Listasafninu í Turku,
Wainö Aaltonen-listasafninu, Kiasma-nútíma-
listasafninu í Helsinki og frá listamanninum.“
Hildur Ásgeirsdóttir Jónsson fæddist í
Reykjavík en hefur búið í Cleveland í þrjátíu
ár. Hún hefur í rúm 15 ár sameinað málaralist
og vefnað með því að búa til málverk ofin úr
handlituðum silkiþráðum. Hildur sækir efni-
við sinn í íslenskt landslag og hefur t.d. búið til
myndraðir um Vatnajökul og Heklu. Á sýning-
unni Úr iðrum jarðar má sjá úrval af þessum
stóru málverkum sem ofin eru í þriggja metra
breiðum vefstól. Þá verða einnig sýnd fjölmörg
nýrri verk. Hildur kemur tvisvar á ári til Íslands
og tekur ljósmyndir á gönguferðum sínum
um landið. Hún vefur síðan þessar myndir á
vinnustofu sinni í Cleveland. Sýning Hildar er í
tveimur hlutum. Hinn hluti hennar var sýndur
í Tang-safninu í New York frá 17. ágúst til 29.
desember 2013.
Hildur hefur hlotið fjölda viðurkenninga og
verðlauna. Hún hefur sýnt víða, meðal annars
í Samtímalistasafninu í Cleveland, William
Busta-galleríinu í Cleveland og fjölmörgum gall-
eríum og söfnum á Íslandi. Mörg söfn eiga verk
eftir hana, m.a. Listasafnið í Cleveland, Lista-
safn Reykjavíkur, The Progressive Insurance
Collection og Cleveland Clinic-stofnunin. -jh
Í svína-syrpunni dregur Harro fram sjálfsánægju og
sinnuleysi sem jafnt á við í Finnlandi sem Íslandi.
arnMundur Ernst lEikur í Bláskjá
t yrfingur Tyrfingsson gegnir stöðu leikskálds Borgarleikhúss-ins í ár og á laugardaginn verður
Bláskjár, fyrsta verk hans í fullri lengd,
frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhúss-
ins. Tyrfingur á rætur að rekja í Kópa-
voginn, rétt eins og leikstjórinn, Vignir
Rafn Valþórsson. Það fer því vel á því að
leikurinn gerist í Kópavoginum í grennd
við Hamraborg en hermt er að hér sé um
að ræða fyrsta leikrit í heimi sem gerist
í bænum.
Arnmundur Ernst Björnsson fer með
eitt hlutverkanna í Bláskjá og kann vel
við sig í Kópavogi á sviðinu þótt leið hans
liggi sjaldan til bæjarins í raun og veru.
„Stemningin í Kópavogi er bara frá-
bær,“ segir Arnmundur. „Þetta er búið að
vera virkilega skemmtilegt ferli hingað
til og frumsýningin er mikið tilhlökkun-
arefni hjá öllum hópnum.“
Bláskjár er íslenskt gamandrama,
með súrum keim, og fjallar um einlæga
löngun tveggja systkina í Kópavogi til að
endurnýta sig og byrja lífið upp á nýtt.
Arnmundur segir texta Tyrfings töfrum
líkastan. „Hann er með svo skemmti-
legan stíl og einstakan ritstíl. Það eru
einhverjir töfrar sem liggja í textanum
hans.“
Arnmundur útskrifaðist sem leikari
frá LHÍ í fyrra og hefur farið vel af stað
og þótti fara á kostum í hlutverki sínu
á Jeppa á Fjalli fyrir skömmu. „Já, það
gekk mjög vel í Jeppa og ég er fyrst og
fremst bara fullur auðmýktar og þakk-
lætis fyrir að hafa fengið þessi tækifæri
upp í hendurnar. Og að fá að vinna með
svona góðu fólki. Ég held að Jeppi hafi
gengið svona ofboðslega vel vegna þess
að hópurinn var svo rosalega samheld-
inn og orkan í honum var svo hrikalega
góð.“
Leikarinn ungi segir Borgarleikhúsið
góðan stað að byrja á. „Já, heldur betur.
Ég held ég geti með sanni sagt að Borgó
sé einn sá besti vinnustaður sem ég hef
unnið á.“
Arnmundur deilir ekki sama ástríðu-
fulla áhuganum á Kópavogi og höfundur-
inn og leikstjórinn enda sprettur hann
upp úr öðru umhverfi. „Ég er fæddur og
uppalinn í Vesturbænum og á mjög erfitt
með að fara upp í sveit eins og Kópavog.
Ég er svo mikið borgarbarn. En þeir
tveir bera mikla ást til þessa bæjarfélags.
Og ég hugsa að það sé nú gott að búa í
Kópavogi.“
Auk Arnmundar leika þau Arndís
Hrönn Egilsdóttir og Hjörtur Jóhann
Jónsson í verkinu. Högni Egilsson semur
tónlistina og Brynja Björnsdóttir hannar
leikmynd og búninga.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Borgarbarn í Kópavogsdrama
Borgarleikhúsið frumsýnir nýtt íslenskt leikrit, Bláskjár, á Litla sviðinu á laugardagskvöld.
Tyrfingur Tyrfingsson, höfundur verksins, ber sterkar taugar til Kópavogs og hermt er að hér sé
á ferðinni fyrsta leikritið í heimi sem gerist í bænum. Arnmundur Ernst Björnsson er einn leikar-
anna í Bláskjá. Hann gerði mikla lukku í Jeppa á Fjalli og segir Borgarleikhúsið vera frábæran
stað fyrir nýútskrifaðan leikara.
Arnmundur Ernst hefur átt góðu gengi að fagna síðan hann útskrifaðist og sér fram á spennandi tíma: „Ég held bara mínu
andlega þroskaferli áfram og vonandi eiga fleiri góð tækifæri eftir að bjóðast.“
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Óskasteinar – HHHH- EGG, Fbl
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 7/2 kl. 19:00 aukas Lau 8/2 kl. 13:00 aukas Sun 9/2 kl. 13:00 lokas
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Síðustu sýningar!
Hamlet (Stóra sviðið)
Sun 9/2 kl. 20:00 Lau 15/2 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00
Fös 14/2 kl. 20:00 Fös 21/2 kl. 20:00 Fös 28/2 kl. 20:00
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet.
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Lau 8/2 kl. 20:00 aukas Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Fim 6/3 kl. 20:00 aukas
Sun 9/2 kl. 20:00 5.k Lau 22/2 kl. 20:00 13.k Fös 7/3 kl. 20:00 aukas
Þri 11/2 kl. 20:00 6.k Sun 23/2 kl. 20:00 14.k Lau 8/3 kl. 20:00 20.k
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Þri 25/2 kl. 20:00 15.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k
Fim 13/2 kl. 20:00 7.k Mið 26/2 kl. 20:00 aukas Fim 13/3 kl. 20:00
Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Fim 27/2 kl. 20:00 aukas Fös 14/3 kl. 20:00
Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Fös 28/2 kl. 20:00 16.k Lau 15/3 kl. 20:00
Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Lau 1/3 kl. 20:00 aukas Sun 16/3 kl. 20:00
Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k Mið 19/3 kl. 20:00
Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Þri 4/3 kl. 20:00 18.k Fim 20/3 kl. 20:00
Fim 20/2 kl. 20:00 aukas Mið 5/3 kl. 20:00 19.k Fös 21/3 kl. 20:00
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
Bláskjár (Litla sviðið)
Lau 8/2 kl. 20:00 frums Sun 16/2 kl. 20:00 3.k Fös 28/2 kl. 20:00
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Fim 20/2 kl. 20:00 4.k Lau 1/3 kl. 20:00
Fim 13/2 kl. 20:00 2.k Sun 23/2 kl. 20:00 5.k
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Mið 12/2 kl. 10:00 Fim 13/2 kl. 13:00 Þri 18/2 kl. 11:30
Mið 12/2 kl. 11:30 Mán 17/2 kl. 10:00 Sun 23/2 kl. 20:00
Mið 12/2 kl. 13:00 Mán 17/2 kl. 11:30 Sun 30/3 kl. 20:00
Fim 13/2 kl. 10:00 Mán 17/2 kl. 13:00
Fim 13/2 kl. 11:30 Þri 18/2 kl. 10:00
Fræðandi uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í
ÍD: Þríleikur (Stóra sviðið)
Lau 8/2 kl. 20:00 frums/2.k Sun 23/2 kl. 20:00 4.k Sun 9/3 kl. 20:00
Sun 16/2 kl. 20:00 3.k Sun 2/3 kl. 20:00 5.k
Íslenski dansflokkurinn sýnir þrjú ný verk á kvöldinu Þríleikur
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711
MIELE (16)
SÝNINGARTÍMAR Á MIDI.IS
M (16)
SUN: 20.00
Enskuskóli Erlu Ara enskafyriralla.is
Enska í Englandi fyrir 13-16 ára
Tvær vikur í Kent School of English. Íslenskir hópstjórar
með í för allan tímann. Skráning í síma 891 7576 og
erlaara@gmail.com. Tæplega 1.000 nemendur hafa komið
með frá árinu 2000. Nánari upplýisngar á enskafyriralla.is
Verð: ca. 240 þúsund; allt innifalið.
58 menning Helgin 7.-9. febrúar 2014