Fréttatíminn - 31.01.2014, Síða 8
SILFUR
50% afsláttur
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 | SPÖNGIN GRAFARVOGI - SÍMI 577 1660
Verslunin í
Spönginni
LOKAR
– allt á að seljast
GULL
30% afsláttur
ÚR
50% af
sláttur
DKNY
- Casio
- Fossi
l - Dies
el
Rakel Sölvadóttir hlaut
hvatningarverðlaun Félags
kvenna í atvinnulífinu við
hátíðlega athöfn í Hörpu í
gær. FKA viðurkenninguna
2014 fékk Liv Bergþórsdóttir,
framkvæmdastjóri Nova en
Þakkarviðurkenninguna fékk
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir,
forstjóri Actavis.
Rakel Sölvadóttir er stofn-
andi SKEMA sem er tölvu-
menntunarfyrirtæki sem
sérhæfir sig í kennslu í for-
ritun fyrir börn samkvæmt
aðferðarfræði sem studd er
nýjustu rannsóknum í sálar
og kennslufræðum. SKEMA
hefur vakið athygli hérlendis
og erlendis fyrir störf sín og
var meðal annars á lista For-
bes yfir 10 sprotafyrirtæki að
fylgjast með árið 2013.
„Börn eru svo móttækileg
fyrir því að læra ný tungumál
og forritun er ekkert annað
en tungumál. Að læra tungu-
mál er meðfæddur hæfileiki
sem byrjar að dvína um 12 ára
aldur svo það er um að gera og
nýta þann hæfileika á meðan
hann er eðlislægur. Auk þess
viljum við kenna börnunum að
vera annað en bara neytendur
tækni yfir í að vera skaparar,
svo þau matist ekki bara af
hugbúnaði sem umhverfið ýtir
í átt að þeim,“ segir Rakel.
Hún segir kennslu í forritun
ná langt út fyrir skólastofuna.
Rannsóknir á starfi SKEMU
sýna mikil áhrif á hugrænan
þroska og líðan barna. Auk
þess hefur strákum sem sótt
hafa námskeið farið mjög
hratt fram í stærðfræði. Stelp-
urnar bættu sig líka en það
var ekki jafn áberandi munur
því þær voru svo góðar til að
byrja með. SKEMA býður upp
á fjölbreytt námskeið og eitt
sérstaklega fyrir stelpur. „Við
byrjuðum með þau því strák-
arnir eru svo fljótir að skrá
sig á námskeiðin en stelpurn-
ar eru ekki jafn hvatvísar og
þurfa meiri aðlögunartíma.
Svo sýndi reynslan okkur
að stelpum hentar öðruvísi
kennsla, út frá öðrum vinkli.“
Þegar Rakel stofnaði fyrir-
tækið var hún einstæð móðir
með tvö börn í fullri vinnu,
auk þess að stunda nám í sál-
fræði. Hún segir uppbygg-
ingu fyrirtækisins vissulega
hafa verið krefjandi en miklu
frekar gefandi. „Það auðveld-
ar hlutina að hafa virkilega
ástríðu fyrir því sem maður
gerir og að trúa því að það sé
hægt að breyta heiminum.
Börnin mín voru líka innspýt-
ingin sem kom mér af stað og
ég notaði þau heilmikið sem
tilraunadýr. Á þeim prófaði ég
hvort börn gætu lært að forrita
og líka hvort þau hefðu gaman
af því. Þetta hafði þó blundað
í mér síðan ég var krakki því
ég er þessi týpíski ADHD ein-
staklingur sem passaði ekki
inn í menntakerfið. Ég var
reyndar alltaf toppnemandi en
mér leið aldrei vel því ég fékk
ekki að njóta mín fyrir mína
styrkleika. Mamma og pabbi
björguðu mér þegar þau gáfu
mér tölvu þegar ég var níu
ára. Ég byrjaði að forrita tölvu-
leiki og sá í fyrsta sinn ég að
ég gæti verið góð í einhverju
sem mér fannst líka gaman að
gera.“
Rakel horfði svo upp á son
sinn kljást við nákvæmlega
sömu vandamál í skólakerf-
inu og hún hafði glímt við,
en hann er greindur með
ADHD og lesblindu, og henni
blöskraði að ekkert hafði
breyst. „Á þessum tíma var ég
í sálfræðinni og sá þarna mjög
öfluga leið til að blanda saman
sálfræði og tölvunarfræði. Til
að mæta þörfum nútíma barna
en líka atvinnulífsins. Í okkar
starfi höfum við alltaf leik-
gleði og jákvæðni að leiðar-
ljósi og það er ótrúlegt að sjá
krakka sem aldrei hafa virkað
í skólakerfinu blómstra hjá
okkur.“
Rakel fluttist nýlega búferl-
um með börnin sín og fyrir-
tækið til Seattle. „Sú ákvörðun
var tekin því íslenskt umhverfi
er svo erfitt og bara ekki hægt
að vera hér á alþjóðlegum
markaði. Ég hefði auðvitað
viljað hafa höfuðstöðvarnar
hér heima og draumurinn
minn er að sjá Ísland sem
leiðandi land í tæknimenntun
en það er bara ekki í boði eins
og er, því miður.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Viðurkenning rakel SölVadóttir, Stofnandi SkeMa, hlaut hVatningarVerðlaunin fka 2014
Ótrúlegt að sjá krakkana blómstra
Rakel leið aldrei
vel í skóla en
fann sig í for
ritun. Hún vill
hjálpa börnum
sem passa ekki
í þröng mót
gamaldags
skólakerfis.
Liv Bergþórs
dóttir fékk FKA
viðurkenn
inguna og
Guðbjörg Edda
Eggertsdóttir
Þakkar viður
kenninguna.
Rakel Sölvadóttir
stofnandi Skema.
Ljósmynd/Hari
8 fréttir Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014