Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.01.2014, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 31.01.2014, Blaðsíða 60
 Í takt við tÍmann RÍkhaRð ÓskaR Guðnason Konan mín kallar sig golfekkju Ríkharð Óskar Guðnason er 28 ára og hefur vakið athygli fyrir lýsingar sínar á enska boltanum í vetur. Rikki G, eins og hann er jafnan kallaður, starfar sem ráðgjafi í Sporthúsinu, útvarpsmaður og plötu- snúður auk þess sem hann lýsir golfi. Hann fitnar reglulega vegna pítusuáts. „Ég er með íþróttasýki á alvar- legu stigi og það hefur tekið mikið á mína yndislegu konu. Ef það er bolti í því, þá horfi ég á það,“ segir Rikki sem byrjaði að horfa á fótbolta þegar hann var sex ára. Þá var heilög stund heima hjá afa hans þegar Gullit, van Basten og félagar voru að keppa með AC Milan. „Ég æfði nánast allar íþróttir sem ég komst í á yngri árum. Þegar ég var tíu ára vantaði mig orðið mínútur í sólarhringinn og þurfti að velja tvær íþróttir til að stunda. Ég valdi fótbolta og körfubolta. Á unglingsár- unum fór ég að hafa áhuga á því að verða plötusnúður og átján ára gamall hengdi ég mig á hurðarhúninn hjá Þresti 3000, dagskrárstjóra FM957. Hann sá eitthvað við mig og gaf mér tækifæri á partívöktunum. Eftir það varð ekki aftur snúið.“ Staðalbúnaður Ég er rosalega mikið fyrir kósí klæðnað og einhver myndi líklega segja að ég væri stundum full kósí. Mér líður best í jogg- ingfötum. Í gegnum tíðina hef ég átt nokkur tískuslys en konan mín reynir að klæða mig upp og ég er að skána. Eitt tískuslysið var þegar ég var að djamma með Vigni Frey Andersen. Ég var í flottum buxum og jakkafata- jakka við og hélt að ég væri með allt á hreinu. Þegar við settumst niður sá Vignir hins vegar að ég var í hvítum sokkum við. Ég hélt að maðurinn myndi froðufella af hneykslan. Eftir að ég byrjaði að lýsa sportinu er ég orðinn vanari því að vera í fínni fötum, það má segja að ég sé að þroskast. Hugbúnaður Ég verð að viðurkenna að ég er orðinn gríðarlega lélegur að fara út að skemmta mér. Sérstaklega eftir að ég komst að því að ég er að verða faðir nú í apríl. Fyrir það fannst mér það voða gaman. Það var alls ekki leiðinlegt að detta í einn kaldan til Ásgeirs Kolbeins á Austur. Þar er góð tónlist og góð stemning. Ég er ekki mikið fyrir að fara á dans- gólfið en mér finnst þægilegt að geta sest niður í góðra vina hópi og spjallað. Ég er samt alls eng- inn kaffihúsatrefill. Svo finnst mér líka gaman að fara á sport- bar þegar það er góður leikur og upplifa stemninguna. Ég er yfir höfuð mikil félagsvera. Vélbúnaður Ég er pínulítil risaeðla í tækni- málunum. Ég var lengi með venjulegan Nokia samlokusíma en í ágúst fékk ég mér iPhone. Nú er ég farinn að átta mig al- mennilega hvað öpp eru en áður kinkaði ég bara kolli þegar fólk var að tala um þau, þó ég væri ekki alveg með á nótunum. Ég er hins vegar mjög duglegur á samfélagsmiðlunum, Facebook og Twitter. Þeir nýtast mjög vel í íþróttalýsingum og í útvarpi. Rikki G hefur starfað sem útvarpsmaður á FM957 í áratug en í vetur hefur hann vakið athygli sem lýsandi í enska boltanum. Ljósmynd/Hari Aukabúnaður Ég væri sennilega að ljúga ef ég segði ekki að pítsa væri í uppáhaldi hjá mér. Flestir vita að ég er veikur fyrir pítsum og það hefur stundum haft áhrif á holdafar mitt. Svo toppar fátt lasagnað hennar mömmu. Ég er núna í mínu 45. átaki og það gengur ágætlega enda er ég kominn í mjög skemmtilegan lyftingahóp. Ég hef gaman af að elda sjálfur og líka að baka, það sést stundum á mér. Ég myndi til dæmis segja að ég geri bestu pönnukökur á landinu. Á sumrin fæ ég útrás fyrir golfdelluna og þar reynir mikið á þolinmæði konunnar minnar. Þetta er svo slæmt að hún kallar sig golfekkju. Ég er farinn að teljast keppnisfær, for- gjöfin er um það bil 5,5 til 6 ef ég á að giska. Ég hef ekki farið til útlanda síðan 2007 enda er ég gríðarlega flughræddur. Síð- asta flug gekk ekki vel og það hefur setið í mér síðan. Mér finnst hins vegar mjög gaman að ferðast um landið okkar og nýt þess að keyra á skemmti- lega staði. Við Heiðar Aust- mann höfum verið að skemmta saman úti á landi og ég á marg- ar skemmtilegar minningar frá þeim „road trippum“. ANTIKÚTSALA 20-50% AFSLÁTTUR30-50% af húsgögnum 50% af bókum 20% af smáhlutum HAFNARFIRÐI 552 8222 - 867 5117 antikbud@gmail.com 60 dægurmál Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.