Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.01.2014, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 31.01.2014, Blaðsíða 30
komi inn. Við lögðum enga áherslu á að fá erlenda fjárfestingu heldur á að flytja út fé, til fjárfestingar annarsstaðar. Fjárfestingarnar eru í rauninni „trophy fjárfestingar“ eða verðlaunagripir, sem menn sækja sér.“ Þú segir útrásina í Danmörku aldrei hafa verið viðskiptalegs eðlis heldur beina afleiðingu af þessu sambandi við fyrrverandi nýlenduherra okkar. „Það er engin skynsamleg skýring á fjárfestingunum önnur en sú að þetta væri yfirlýsing um að Ísland væri ekki lengur eftir­ bátur Danmerkur. Það er engin efnahagsleg skýring á því að menn séu að kaupa upp fasteignir í Kaupmannahöfn á sama tíma og öll dönsk blöð eru uppfull af fregnum um að þar sé myljandi fasteigna­ bóla. Þessi sjálfsmynd sem ég legg til grund­ vallar í bókinni skýrir ekki bara útrásina heldur líka stuðninginn við hana hérna innanlands meðal íslenskra stjórnvalda en einnig almennings.“ Því stjórnvöld tóku fullan þátt í orðræðunni, ekki satt? „Jú, og forsetinn gekk lengst. Hann mærði þessa þjóðarsjálfsmynd í ræðum sínum, bæði fyrir og eftir hrun, og líka í hruninu. Þegar varnarorðin byrja að koma 2006, þá er ekki til dæmi um stjórnmála­ mann í fremstu röð sem leit þannig á að nú væri ástæða til að endurskoða efnahagslífið. Það var alltaf litið á þetta sem árás erlendra aðila í Ísland og verkefnið væri að bregðast til varna. Fremur var farið í almannatengslaherferðir erlendis en að athuga hvort það gæti hugsan­ lega eitthvað verið til í gagnrýn­ inni. Orðræðan í kringum Icesave er alveg samskonar orðræða og í útrásinni. Það er bara aðeins önnur birtingarmynd á sama grundvelli.“ Þú segir eitt það áhugaverðasta við hrunið á Íslandi vera viðbrögðin við krísunni, þ.e. að bjarga ekki bönk- unum, sem var á öndverðum meiði við viðleitni alþjóðasamfélagsins. En var þetta ekki okkar eina leið út úr ógöngunum? „Jú, þetta var svona lán í óláni. Það var aldrei meðvituð stefna íslenskra stjórnvald að bjarga ekki banka­ kerfinu. Menn gleyma því nú orðið að það voru sendisveitir út um allan heim að reyna að finna peninga ein­ hversstaðar til þess að bjarga kerf­ inu, það vildi bara þannig til að það var enginn tilbúinn til að lána okkur á þessum tímapunkti og það er eftir á að hyggja lukka Íslands.“ Þú segir hörkuna sem Bretar sýndu Íslending- um, meðal annars með beitingu hryðjuverkalag- anna, skýrast að hluta til vegna viðbragða stjórnvalda við krísunni, þ.e. að bjarga ekki bönk- unum. Voru þetta eðlileg viðbrögð? „Ég skil viðbrögð Breta og hvaðan þau koma, en þau eru ekki ásættanleg. Þau eru dæmi um það hvernig heimsveldi hagar sér í alþjóðakerfinu. Nú erum við komin í ríkja­ kerfi sem byggir ekki lengur á mætti hins sterka eins og þegar breska pólitíska sjálfs­ myndin var að þróast. En í þessu krísuástandi gátu Bretar vikið sér undan hömlum hins alþjóðavædda kerfis og ráðist með hernaðarlegum hætti að Íslandi. Mér finnst alveg með ólíkindum hvernig íslensk stjór­ nvöld hafa látið þessa framkomu yfir sig ganga. En hér sjáum við hvernig bresk pólitísk sjálfsmynd „kikkar“ inn. Grundvöllur í breskri pólitík er heimsveldið og í krísu bregðast Bretar við sem hernaðar­ veldi. Ísland lá mjög vel við höggi og Bretar gátu mjög auðveldlega farið í sína hefðbundnu stöðu og beitt okkur hernaðarlegri árás, sem þeir gátu aftur á móti ekki gert gagnvart bandalagsþjóðum sínum.“ Þú segir nauðsynlegt að hafa hraða þróun íslensks efnahagslífs á síðustu öld og átök milli einangrunar og alþjóðlegrar opnunar í huga þegar kemur að því að skilja hversvegna varnarorð í aðdraganda hrunsins voru hunsuð. Hvers vegna? Þessi partur af sjálfsmynd þjóðar­ innar, sem er bæði til góðs og felur í sér hættur, gerði það að verkum að Íslendingar voru að flýta sér til nútímavæðingar umfram alla aðra. Það felur í sér að manni hættir til að keyra of hratt og að gæta ekki að öryggisatriðum. Alvarlegust er sú staðreynd að allir þeir gallar sem leiddu af sér hrunið eru ennþá til staðar. Það er ennþá undirliggj­ andi kerfisgalli í íslensku efna­ hagslífi sem mun alveg örugglega leiða til áframhaldandi kollsteypa ef ekkert verður að gert. Einfald­ asta lýsingin er sú að það er ekki hægt að vera inni á fimm hundruð milljón manna samræmdum fjár­ málamarkaði með þrjú hundruð þúsund manna gjaldmiðil. Hann verður alltaf óstöðugur því sveifl­ urnar eru bara allt of miklar. En ef menn ætla sér að gera það þá verða þeir að gera annað af tvennu: hafa viðvarandi gjaldeyrishöft eða rígbinda fjármálakerfið heima fyrir og banna því að taka þátt á alþjóða­ markaði. Vandinn er bara sá að enginn stjórnmálaflokkur hefur þá stefnu. Annaðhvort þurfum við að fara út af alþjóðlegum fjármála­ markaði eða taka upp nýjan gjald­ miðil.“ Er ný bóla framundan? „Já. Hún er farin af stað nú þegar. Hagkerfi í höftum skekkist alltaf, og því meira því lengur sem þau eru í höftum. Hér er farin af stað þróun á ósjálfbæru hagkerfi og ósjálfbær hagkefi leiðrétta sig alltaf á endan­ um. Þannig að „here we go again!““ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Það er ekki hægt að vera inni á fimm hundruð milljón manna samræmdum fjármála- markaði með þrjú hundruð þúsund manna gjald- miðil.159kr.stk. Verð áður 229 kr. stk. Pepsi max, 2 l v 2 lítrar – fyrst og fre mst – fyrst og fre mst ódýr! Hámark 16 flöskurá mann meðan birgðir endast! PEPSI MAX 30%afslátturBOMBA E iríkur Bergmann er pró­fessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst auk þess að vera stundakennari við erlenda háskóla. Hann er forstöðumaður Evrópufræðaseturs og átti sæti í stjórnlagaráði. Ný bók hans er hluti af ritröðinni International Political Economy sem Alþjóðlega útgáfufé­ lagið Palgrave Macmillan gefur út, en það er eitt virtasta fræðibóka­ forlag heims. Í bókinni setur þú fram nýja kenn- ingu um íslensk stjórnmál; að þau grundvallist enn á pólitískri sjálfs- mynd þjóðarinnar sem mótaðist í sjáfstæðisbaráttunni. „Já, það er oft þannig með ríki að það er eitthvað í sköpunarsögu þeirra sem býr til grundavallarhug­ mynd sem að stjórnmálin ganga eftir. Í Bandaríkjunum er það hug­ myndin um frelsið, í Frakklandi er það samheldni valds í París, dreif­ ræði í Þýskalandi, á Íslandi er það áherslan á fullveldið.“ Og þessi sjálfsmynd hefur skipt sköpum fyrir efnahagslífið? „Já, því sjálfstæðisbaráttan var ekki bara fullveldisbarátta heldur líka barátta fyrir nútímavæðingu og því að Ísland yrði álitið á pari við önnur vestræn velmegunarríki en ekki sem svona hálfvanþróað ríki eins og það var á nítjándu öldinni. Þessi grunnur, sem við getum kallað póli­ tíska sjálfsmynd þjóðarinnar, felur í sér innbyrðis togstreitu, á milli formlegs sjálfstæðis og nútímavæð­ ingu. Þetta gerir það að verkum að stefnan sem hér er keyrð, er keyrð mjög hart áfram og er bólumynd­ andi í eðli sínu. Og til þess að geta rekið bólumyndandi efnahags­ stefnu þá þarftu varnir í alþjóða­ kerfinu, en vegna áherslunnar á hið formlega fullveldi þá höfum við látið undir höfuð leggjast að æskja slíks skjóls, en erum eigi að síður fullgildir þáttakendur. Þess vegna einkennist íslenskt efnahagslíf af stöðugu risi, falli og svo endurreisn á nýjum grunni, en alltaf í sambandi við alþjóðasamfélagið.“ Þú rekur einmitt þessa sögu í bók- inni, geturðu rifjað hana upp í stuttu máli? „Erlent fé geystist inn í landið með stofnun gamla Íslandsbanka árið 1904 sem var þá í danskri eigu, og þeir fengu seðlabankaútgáfu. Svo tók við þjóðerniskenndin og Íslandsbanki var keyrður í þrot og seðlaútgáfan var færð til hins inn­ lenda Landsbanka, gjaldeyrishöft eru sett á og aftur förum við í niður­ sveiflu. Svo koma peningar aftur í landið eftir seinni heimsstyrjöld, hagkerfið fer á fleygiferð en endar í kreppu á áttunda áratugnum. Svo opnast allt aftur um miðjan tíunda áratuginn og þá keyra menn hverja bólumyndandi efnahagsstefnuna á fætur annarri, allt er keyrt í botn en það eru engar varnir í kerfinu. Eina vörnin er stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans en hún er bitlaus út af verðbólgunni og verður því ekki til neins nema hækka gengið og við það sogast erlent fé inn í landið, snjóhengjan mikla sem nú hangir yfir okkur. Ég held því fram að út af þessari pólitísku sjálfsmynd þjóðarinnar hafi myndast kerfis­ galli í efnahagslífinu sem er ennþá viðvarandi.“ Í inngangi bókarinnar rekur þú sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar frá upp- hafi til okkar daga og bendir á áhrif hennar á sjálfsmynd okkar og vekur athygli á víkingaorðræðunni sem blandast inn í þessa sjálfsmynd. „Já, orðræðan er gríðarlega kapp­ söm og „masculin“, gengur mikið út á árás og baráttu. Það verður til dæmis keppikefli að kaupa fyrir­ tæki erlendis sem er samt aldrei mjög gott fyrir efnahagslíf, að peningar fari út úr hagkerfinu, það hefur alltaf verið betra að þeir Ný bóla er þegar farin að myndast Í nýútkominni bók sinni, Iceland and the International Financial Crisis, Boom, Bust and Recovery, setur Eiríkur Bergmann fram heildstæða mynd af hruninu sem byggir á efnahagslegri, stjórn­ málalegri og sögulegri rannsókn á efnahagshruninu haustið 2008. Í bókinni rekur hann aðdraganda og eftirmála hrunsins og kafar í sálfræðilegar afleiðingar þess ekki síður en pólitískar. Hann hrekur goðsagnir um hrunið sem lifa enn góður lífi og bendir okkur á langvarandi lögmál sem leynast í þjóðarsjálfinu sem móta enn alla okkar stjórnmálaumræðu, íslensk stjórnmál séu mótuð af sjálfsmynd okkar sem fyrrverandi nýlenduþjóðar. Allir þeir gallar sem leiddu af sér hrunið eru ennþá til staðar, segir Eiríkur Bergmann prófessor. Ljósmynd/Hari 30 viðtal Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.