Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.01.2014, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 31.01.2014, Blaðsíða 12
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@ frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@ frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@ frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. K Kvenfélagið Hringurinn gerir það ekki endasleppt. Á 110 ára afmæli félagsins, síðastliðinn sunnudag, afhenti það Barnaspítala Hringsins 110 milljónir króna, eina milljón fyrir hvert ár í sögu félagsins. Þessi fjárhæð bætist við 70 milljóna króna gjöf Hrings- kvenna fyrir tveimur árum en þær hafa stutt barna- spítalann með húsnæði og tækjakaupum áratugum saman. Hið öfluga starfs kvenfélagsins Hringsins gerir það að verkum að Barnaspítali Hringsins er sambærilega búinn tækjum og bestu barnaspítalar í heiminum, að því er fram kom í þakkarávarpi Jóns Hilm- ars Friðrikssonar, framkvæmdastjóra kvenna- og barnasviðs Landspítalans, er hin rausnarlega gjöf var afhent í vikubyrjun. Ákveðið hefur verið að um það bil 10 milljónir króna verði nýttar vegna barnaskurðlækninga, vökudeild fær 35-40 milljónir og legudeild barna og bráðamóttaka barna 40-50 milljónir, auk þess sem barna- og unglingageð- deild, BUGL, fær 3-5 milljónir króna. Kvenfélagið Hringurinn var stofnað árið 1904. Til ársins 1942 áttu berklasjúkir hug Hringskvenna. Þær reistu Hressingarhælið í Kópavogi og ráku það til loka árs 1940. Árið 1942 var breytt um stefnu og bygging barnaspítala var markmiðið. Hringskonur komu að barnadeild sem var opnuð 1957, Barnaspít- ala Hringsins 1965 í sérstakri álmu, geðdeild fyrir börn við Dalbraut, vökudeild 1976 og aftur 1988. Á 90 ára afmæli félagsins lýstu stjórnvöld því yfir að þau vildu eiga samleið með Hringnum um að byggja nýjan barnaspítala. Hringskonur fóru af krafti í málið og lofuðu 100 milljónum króna á þeim tíma. Ramma- samningur var undirritaður 1994 um bygginguna en Barnaspítali Hringsins var vígður árið 2003, á 99 ára afmælisdegi Hringsins. Þetta magnaða félag vinnur af miklum metn- aði að fjáröflun í Barnaspítalasjóð Hringsins, auk þess sem mörg önnur verkefni hafa verið studd og styrkt. Þau stærstu eru uppbygging Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans og rekstur Sjónarhóls, ráðgjafamiðstöðvar barna með sér- þarfir. Í félaginu eru 335 konur á öllum aldri og byggist starfsemin fyrst og fremst á því mikla starfi sem fram fer í nefndum félagins. Fjáröflunarleiðir þess eru söfnunarbaukar sem víða eru, jólakaffi og happdrætti sem haldin eru á aðventunni ár hvert, jólabasar sem haldinn er í nóvember á hverju ári, minningarkort sem seld eru allt árið, jólakort og veitingasala í Barnaspítalanum. Það verk sem Hringurinn vinnur að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu barna, er aðdáunarvert. Hringskonur hafa alla tíð sinnt velferð barna og stutt dyggilega að aðbúnaði þeirra á barna- spítalanum sem ber, að verðleikum, nafn félagsins. Öflugt sjálfboðaliðastarf þeirra hefur skilað ótrúleg- um árangri, eins og dæmin sanna. Eins og margoft hefur komið fram í fréttum hefur þrengt mjög að Landspítalanum á undanförnum árum, þótt nú horfi skár, sem betur fer, með auknum fjárveitingum til tækjakaupa. Hringskonur hafa hins vegar séð til þess, með elju sinni og fórnfýsi, að barnaspítalinn hefur verið vel tækjum búinn – og svo verður án efa þegar til framtíðar er litið enda er starfsemi Hrings- ins í miklum blóma. Almenningur er vel meðvitaður um starf Hrings- kvenna og styður það með því að leggja framlög í söfnunarbauka félagsins, kaupa happdrættismiða og vörur sem framleiddar eru í nafni þess. „Við Hringskonur erum afar stoltar af því að geta gefið svona góða gjöf. Við vitum það að þetta fer á frá- bæran stað. Allt fyrir börnin okkar,“ sagði Valgerð- ur Einarsdóttir, formaður kvenfélagsins Hrings- ins, þegar hún afhenti barnaspítalanum gjöfina rausnarlegu 26. janúar síðastliðinn, 110 milljónir króna, fyrir hönd þess. Að sama skapi getum við hin, sem fylgjumst með starfi Hringskvenna, sagt að við séum stolt af þeim og starfi þeirra – og stutt það starf. Hvað sem líður þrengingum í samfélaginu og efnahagslegum örðugleikum, sem við höfum vissulega strítt við allt frá hruninu haustið 2008, getum við sameinast um það að gera allt fyrir börnin okkar. Öflugt starf Hringskvenna „Allt fyrir börnin okkar“ Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Audi Q5. Notadrjúgur og glæsilegur. Fullkomlega samstillt hönnun. Skilvirkni er undirstöðuþáttur í hverju einasta smáatriði. Hönnun Audi Q5 skartar rennilegum línum sem gefa útlitinu sérlega tilkomu mikinn blæ. Staðalbúnaður er m.a. rafdrifin opnun og lokun á afturhlera, skyggðar rúður, 3ja svæða loftkæling, leður áklæði, bluetooth símkerfi, bi-xenon aðalljós og díóðuljós (LED). Audi Q5 kostar frá kr. 9.040.000. Skapandi og skemmtileg Reykjavík Skapandi greinar eru atvinnugreinar sem byggja á hugviti og sköpun. Allar listgreinar, hönnun, forritun, uppfinningar og þróun í öllum öðrum atvinnugreinum geta fallið í þennan flokk. Ein er sú atvinnugrein sem hefur vaxið og þroskast mikið á Íslandi hin síðustu ár, en það er kvikmyndagerð. Sennilega eru fáar atvinnugrein- ar sem snerta eins marga fleti mannlífsins og kvikmyndagerð. Í henni koma saman fjölmargar listgreinar og iðngreinar og þörf fyrir alls konar þjónustu. Fram- leiðsla á kvikmynd er eins og lítið iðandi þjóðfélag þar sem allir vinna að sama markmiði í mjög ólíkum störfum. Bein og óbein hagræn áhrif kvikmyndagerðar hafa verið margreiknuð út og sýnt hefur verið fram á að hver króna sem lögð er til kvikmyndar skilar sér sexfalt til baka til samfélagsins í beinhörðum peningum. Þeir fjármunir koma til landsins í formi styrkja og fjárfestinga frá erlendum aðilum. Þá eru ótalin þau óbeinu áhrif sem kvikmyndir hafa í formi landkynningar sem hefur bein áhrif á ferðamanna- straum og sölu á íslenskum afurðum. Fjölbreytt atvinnulíf þar sem skapandi greinar og fyrirtæki í ferðaþjónustu blómstra er það sem ég vil sjá vaxa og dafna áfram í Reykjavík. Listamennirnir okkar sjá ekki einungis um að bæta lífsgæði okkar. Þeir flytja út list og flytja inn listunnendur og kynna Ísland í útlöndum. Þeir skapa veraldleg verðmæti í erlendum gjaldeyri á sjálfbæran og umhverfisvænan hátt og eru þá ótalin andlegu, menningarlegu og samfélagslegu verðmætin sem þessir listamenn skapa. Reykjavík á að vera vagga lista, menningar, ferðaþjónustu og skapandi greina, með blómstrandi atvinnulíf sem stuðlar að fjöl- breyttu mannlífi. Þannig atvinnulíf vil ég að standi börnum mínum og barnabörnum til boða þegar þau vaxa úr grasi. Kristín Erna Arnardóttir er kvikmyndagerðarmaður, þátttakandi í prófkjöri Sam- fylkingarinnar í Reykjavík og sækist eftir 4. sæti. 12 viðhorf Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.