Fréttatíminn - 31.01.2014, Blaðsíða 28
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Toppaðu öræ
fatindana
Alla leið!
Skráðu þig in
n – drífðu þig
út
Alla leið! Toppaðu öræfatindana með FÍ
Ferðafélag Íslands býður nú upp á metnaðarfulla æfingaráætlun
sem byrjar í febrúar og endar á því að ganga á Hvannadalshnúk
eða Hrútsfjallstinda í lok maí eða byrjun júní.
Akrafjall, Móskarðahnjúkar, Hekla, Fimmvörðuháls,
Hvannadalshnjúkur eða Hrútfjallstindar og átta önnur fjöll.
Tólf fjallgöngur, sex æfingatímar í Elliðaárdalnum og ganga á
annaðhvort Hvannadalshnjúk eða Hrútsfjallstinda.
Tveir mögulegir tindar í lokin og tvær helgar til að velja til að toppa.
Kynningarfundur í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6
kl. 20.00, 3. febrúar n.k.
Sjá nánar um „Alla leið“ á www.fi.is
TILBOÐ
fyrir FÍ félaga
Gildir til 01.03.14
S Björn Blöndal hefur verið lúsiðinn bak við tjöldin sem aðstoðarmaður Jóns Gnarr, borgarstjóra, í hart nær fjögur ár. Jón ætl-
ar að láta sig hverfa úr borgarpólitíkinni í lok
kjörtímabilsins en Björn ætlar að halda ótrauður
áfram, taka sæti Jóns á framboðslista Bjartrar
framtíðar í Reykjavík og halda áfram að geðbæta
pólitíkina í ráðhúsinu. Brandarinn er semsagt
ekki búinn þótt hann sé ef til vill orðinn öllu al-
varlegri.
„Við höfum nú verið að grínast með að okkur
vanti nýtt slagorð: Árangur áfram -ekkert djók.
Eitthvað sem þeir skilja sem þurfa,“ segir Björn
afslappaður á skrifstofu sinni í ráðhúsinu þar
sem hjálmur hin alræmda Svarthöfða úr Stjörnu-
stríði stendur uppi í hillu og hefur augu með öllu.
Augljós vísbending um að hér starfar ekki hefð-
bundinn embættismaður.
„Ég pældi alveg í því hvort þetta væri komið
gott en sannleikurinn er sá að ég er búinn að vera
S. Björn Blöndal
hefur verið að-
stoðarmaður Jóns
Gnarr borgar-
stjóra í þau tæpu
fjögur ár sem
Jón hefur gengt
embættinu. Jón
ætlar að hætta í
borgarmálunum í
vor en Björn telur
brandarann, sem
Besti flokkurinn
var í byrjun, ekki
búinn og hefur
tekið við odd-
vitasætinu á lista
Bjartrar framtíðar
fyrir kosningarnar
í vor. Hann segist
einfaldlega hafa
horfst í augu
við að sér þyki
borgarpólitíkin
skemmtileg og
að verki Besta
flokksins sé ekki
lokið. Þessi gamli
rokkhundur úr
Ham fer óhræddur
í kosningabarátt-
una og segist
ekki vera með
neinar gamlar
beinagrindur með
í för.
hérna í næstum fjögur ár og það tók mig smá tíma að við-
urkenna fyrir sjálfum mér að ég hefði gaman að þessu.“
Björn segir atið og annríkið hafa verið svo mikið að
framan af að hann hafi ekki haft mikið rými til að velta
því fyrir sér hvort þetta væri leiðinlegt eða skemmtilegt.
Heldur hafi einfaldlega þurft að ganga í verkin. „Ég hef
síðan smám saman haft meira og meira gaman af þessu.
Ég þurfti síðan að gera upp við mig hvort ég væri tilbú-
inn til að vera hluti af einhverju stjórnmálafyrirbæri. Að
verða í raun stjórnmálamaður sem er ekkert sjálfgefið
vegna þess að það hefur náttúrlega ekki verið mjög hátt
skrifað. Þetta er kannski spurning um að hafa hugrekki
til að vera hluti af lausninni en ekki vera alltaf bara sami
parturinn af vandamálinu. Ég fann það alveg að ég væri
til í það, í fullri alvöru.“
Enginn ísbjörn
Björn segist bera fulla virðingu fyrir þeim félögum sín-
um úr Besta flokknum, til dæmis Jóni Gnarr og Einari
Erni Benediktssyni, sem ætla að láta gott heita. „Ég skil
það sjónarmið alveg en ég er var ekki tilbúinn að láta
þetta bara vera svona einsdæmi.“ Og skoðanakannanir
benda til þess að brotthvarf Jóns kosti Bjarta framtíð í
borginni ekki mjög mikið fylgi. Ekki enn sem komið er í
það minnsta. „Við höfum gert flotta hluti og stemningin
er áfram sú sama þótt einhverjar mannabreytingar verði
núna. Ég held að Björt framtíð í Reykjavík sé ánægjulegt
framtak sem fólk á ekkert erfitt með að gleypa.
Það er kannski ekki ísbjörn í Húsdýragarðinn en samt
eru sömu gildi og grunnþættir á bak við. Ég held að fólk
finni og treysti þeim heiðarleika sem ríkir hér.“
Björn bendir á að nú hafi þau líka afrekaskrá til að
tefla fram í stað ísbjarnarnins. „Við erum mjög stolt af
verkum okkar og mörgum hefur líkað vel það sem við
erum að gera.
Fær ekki móðursýkisköst
Samkvæmt skoðanakönnun sem birt var fyrr í vikunni
vilja 50% borgarbúa fá Dag B. Eggertsson sem borgar-
stjóra að loknum kosningum en 10% nefndu Björn. Fékk
frambjóðandinn móðusýkiskast þegar hann sá þessar
tölur?
„Nei, ég fæ nú sjaldan móðursýkisköst. Ég er bara
mjög ánægður með að Dagur skuli vera fá viðurkenn-
ingu. Mér hefur ekki alltaf fundist hann hafa notið sann-
mælis sem stjórnmálamaður og oft vegið ómaklega að
honum. Meirihlutaflokkarnir hafa átt afskaplega gott
samstarf og Dagur á sinn þátt í því.
Við Dagur höfum unnið mjög náið saman og með Jóni
þannig að ég lít nú líka á þetta sem ákveðna viðurkenn-
ingu á störfum meirihlutans. Ég verð ekkert súr þó að
honum gangi vel. Vegna þess að þetta er líka viðurkenn-
ing á því að það sem ég er búinn að vera að eyða minni
orku í hefur haft eitthvað að segja.
Mér finnst fínt að 10% þeirra sem þarna eru spurðir
skuli nefna mitt nafn. Ég er búinn að vera bak við tjöldin.
Mitt hlutverk hefur ekki verið að trana mér fram og það
hefði verið hallærislegt ef ég hefði eytt síðustu fjórum
árum í það.“
Passar vel í kjól
Jón Gnarr hefur verið uppátækjasamur og vægast sagt
skrautlegur borgarstjóri ef horft er til forvera hans og
samstarf þeirra Björns hefur verið náið og gott.
„Ég hef ekkert þurft að halda aftur af Jóni og það
hefur verið góð dýnamík í okkar samvinnu. Við erum
eins og dúett þar sem annar er með fæturna á jörðinni og
hinn með höfuðið ofar skýjum og í því tilfelli var ég nátt-
úrlega fæturnar á jörðinni. Við vinnum vel saman. Hann
er óþrjótandi uppspretta hugmynda en ég hef hjálpað
honum að vinsa úr það besta og koma því í framkvæmd.“
En yrði Björn Blöndal borgarstjóri sem væri líklegur
til að skella sér í dragg við hátíðleg tækifæri?
„Ég hef nú alveg farið í kvennmannsföt og þau fóru
mér meira að segja ágætlega. Það er alveg inni í mynd-
inni.
Ég mun að minnsta kosti halda áfram að styðja mann-
réttindabaráttu samkynhneigðra, minnihlutahópa og
annara þeirra sem minna mega sín. Hvort sem ég geri
það í draggi, bleikum jakkafötum eða bara í vesti með
bindi.“
Engar beinagrindur í felum
Björn er bassaleikari hinnar fornfrægu og dáðu þunga-
rokkshljómsveitar Ham og þar sem hann er nú á leið í
framboð í fyrsta sinn liggur beint við að spyrja hann
hvort hann burðist með einhverjar rokkarabeinagrind-
ur í farteskinu. Eitthvað sem andstæðingar hans eiga
eftir að hrista framan í hann þegar kosningabaráttan
harðnar?
„Ég held að ég sé búinn að gera upp við mínar beina-
grindur í gegnum tíðina. Ég lifi nú bara frekar fábrotnu
lífi og hverja lausa stund sem ég á eyði ég með fjölskyld-
unni minni. Ég á tvo stráka sem eru tíu og fimmtán ára
og er búinn að vera með konunni minni í sautján ár. Það
er nú gaman að því.
En ég var náttúrlega í rokkhljómsveit. Og er enn,“
segir Björn og hlær. „Ham er enn starfandi en ég held að
þær beinagrindur sem þar urðu til hafi verið auglýstar
all rækilega í gegnum tíðina.“
Góð samskipti breyta öllu
Sem stjórnmálamaður segist Björn helst vilja berjast
áfram fyrir áframhaldandi pólitískum stöðugleika í
borginni, ábyrgri fjármálastjórnun og bættum sam-
skiptum.
„Ég hef nú verið dálítið upptekinn að því að tala um
þessi samskipti fólks og hvað þau eru í rauninni pólitískt
mál og skipta miklu máli í samfélaginu. Samskipti stjór-
nmálamanna, bara sem fyrirmynd fyrir aðra, eru eitt-
hvað sem ég held að fólk verði aðeins að fara að hugsa
um.
Ég held að við séum búin að sýna, alveg ótrúlega
skýrt, hvað það skiptir miklu máli að vera bara almenni-
legur í mannlegum samskiptum. Að taka ekki þátt í
þessu karpi en vera þó fastur á sínu. Ef horft er á síð-
asta kjörtímabil hér í Reykjavík og það rugl sem þar
var í gangi og svo núna. Þá er eina breytingin að Besti
flokkurinn kom inn og ég held að við höfum haft gríðar-
lega góð áhrif á þetta andrúmsloft. Hæfni í mannlegum
samskiptum er grunnurinn að þessum stöðugleika og
þetta skilar sér líka út til borgarbúa,“ segir rokkarinn
sem varð aðstoðarmaður borgarstjóra í hálfgerðu flippi
en er nú harður á því að brandarinn sé ekki búinn.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Ég hef nú
alveg farið í
kvenmanns-
föt og þau
fóru mér
ágætlega.
S. Björn Blöndal hefur
unnið hörðum höndum að
tjaldabaki sem aðstoðarmaður
Jóns Gnarr borgarstjóra en
stígur nú fram fyrir skjöldu og
leiðir lista Bjartrar framtíðar í
Reykjavík. Ljósmynd/Hari.
Engar rokkaðar
beinagrindur í
farteskinu
28 viðtal Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014