Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.01.2014, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 31.01.2014, Blaðsíða 10
Þ að er verið að toga í sjóðinn frá mis­munandi áttum. Það er ætlast til þess að hann gegni félagslegu hlutverki, að hann sé sjálfbær sem og að hann starfi eins og fjármálstofnun. Öll þessi hlutverk geta samrýmst en breyta þarf ákveðnum verkferlum til að svo geti orðið,“ segir Ingi­ björg Ólöf Vilhjálmsdóttir, stjórnarformaður Íbúðalánasjóðs. Ingibjörg Ólöf segir að nefnd um fram­ tíðarskipan húsnæðismála sé að skoða hús­ næðisvandann frá öllum hliðum. „Nefndin er enn að störfum og við vitum ekki hvað kemur út úr henni. Við sjáum hvað setur og höldum okkar striki. Íbúðalánasjóður verður að halda áfram sínu daglegu starfi þangað til að við vitum hver niðurstaða stjórn valda verður í rauninni en nefndin á að skila sínu áliti á næstu mánuðum. Verkefni nefndarinnar er umfangsmikið og hún mun m.a. koma með tillögur um hvaða hlutverki Íbúða lánasjóður eigi að gegna inn í fram­ tíðina. Það breytir því ekki að við erum með lagaumhverfi sem segir hvernig sjóðurinn eigi að starfa í dag og við fylgjum þeim lögum eftir,“ segir hún. Ingibjörg Ólöf segir að stefna stjórnar­ innar sé skýr, að koma jafnvægi á rekstur sjóðsins. „Það er okkar stóra hlutverk að Íbúðalánasjóður verði sjálfbær en við hrunið varð sjóðurinn fyrir miklu áfalli og sá for­ tíðarvandi er óleystur,“ segir Ingibjörg Ólöf. „Allar þær ákvarðanir sem við tökum í dag stuðla að því að sjóðurinn verði sjálfbær þannig að við erum ekki að auka á vandann heldur erum við að greiða úr vandanum. Í rauninni er sjóðurinn ekki rekinn með halla, hann er rekinn með hagnaði fyrir afskriftir en út af því að við þurf­ um að leggja til hliðar í varúðaraf­ skriftarsjóð og eftir að búið er að taka þær afskriftir frá þá verður rekstrarniðurstaðan taprekstur. Fortíðarvandinn er eitthvað sem stjórnvöld eru að vinna að lausn að,“ segir hún. Þarf að leysa fortíðarvandann Ingibjörg Ólöf segir að stjórnin vinni skipulega að því að draga úr rekstrarkostnaði sjóðsins og að hann taki mjög varfærnislega á afskriftum. „Það eru stórar ákvarðanir sem hafa verið teknar og munu verða teknar en verða tilkynntar þegar að þeim kemur,“ segir hún. „Við erum að koma jafnvægi á reksturinn eins og staðan er í dag. Framtíðin er okkar og framtíðin er sjálfbær og við þurfum að koma þessu lausa fé sem sjóðurinn á í vinnu og við þurfum líka að losna við fullnustueignir, við þurfum að koma þeim í leigu og/eða að selja þær. Það eru gríðarlegir fjármunir sem liggja í þeim í vaxtamun á lausu fé. Það er ýmislegt sem er í farveginum,“ segir Ingi­ björg Ólöf. „Niðurfærslur hús­ næðislánanna munu hjálpa til við að draga úr vanskilin sem minnkar þörf á afskriftum,“ segir hún. Ingibjörg Ólöf segir að oft gleymist í umræðunni að sjóður­ inn hafi félagslegu hlutverki að gegna samkvæmt lögum sem og gagnvart öllum landsmönnum. Það gleymist að skilja það hlut­ verk frá og þegar lánað er út á vöxtum sem ekki eru sjálfbærir þá skapist beinlínis tap. „Það sem við segjum í dag er að ef stjórnvöld vilja veita þannig lán þá verður sjóðurinn að fá vilyrði fyrir því að vaxtamunurinn sé greiddur inn í sjóðinn,“ segir Ingibjörg Ólöf. Hún segir að eigi sjóðurinn að starfa eins og hver önnur fjármálastofnun þurfi að skil­ greina hlutverk hans að vissu leyti upp á nýtt. „Sjóðurinn mun aldrei geta farið undan lögum um fjármálastofnanir vegna þess að hann er að gefa út skuldabréf og er á markaði og því verður hann að upp­ fylla ákveðin skilyrði. Fjármálaeftirlitið hefur eftirlitshlutverki að gegna gagn­ vart Íbúðalánasjóði og síðan hefur Alþingi ákveðnu hlutverki að gegna þar sem um ríkisábyrgð er að ræða þannig að það er áhugavert flækjustig á sjóðnum sem oft er erfitt að fást við,“ segir Ingibjörg Ólöf. Mismunandi sjónarmið mikilvæg Stjórn Íbúðalánasjóðs er mjög „dýnamísk“, að mati Ingibjargar Ólafar en margir hafa þurft að segja sig frá stjórnarsetu á stuttum tíma og nýir hafa komið í staðinn. „Þetta eru allt einstaklingar með mikla reynslu og mjög víðtækan bakgrunn. Mér finnst alltaf best að vinna í hópi þar sem fólk er ólíkt og með víðtæka reynslu því þannig fær maður oftast fram sem flest sjónarmið og þannig er hægt að taka bestu upplýstu ákvarðanir í hverju tilviki fyrir sig,“ segir Ingibjörg Ólöf. Segir hún að fólk sitji ekki í stjórn Íbúða lánasjóðs vegna launanna heldur séu í stjórn inni ein­ staklingar með reynslu sem eru tilbúnir að taka að sér þetta erfiða verkefni og að gríðarleg vinna fylgi stjórnarsetunni. „Það er mikilvægt að gera miklar kröfur til þeirra aðila sem sitja í stjórn, ákvæði laga um hæfi stjórnarmanna eru ströng, í dag uppfylla að mínu mati allir þær kröfur. Fjármáleftirlitið metur hæfi stjórnenda sjóðsins og stjórnar­ menn þurfa að standa skil á þeim lögum og reglugerðum sem Íbúðalánasjóður heyrir undir,“ segir Ingibjörg Ólöf. Öryggisnet hjá Íbúðalánasjóði Margir viðskiptabankar veita húsnæðislán með þeim fyrirvara að þeir geti endurskoð­ að vextina eftir ákveðinn tíma en hjá Íbúða­ lánasjóði eru vextirnir fastir út lánstímabil­ ið. „Það er ákveðið öryggi í fyrirsjáanleika á vöxtum á verðtryggðum lánum og það er gríðarlega mikilvægt að hafa þann fyrirsjá­ anleika. Flestir vilja vita hvað þeir eru að borga í vexti næstu 25 eða 40 ár,“ segir Ingi­ björg Ólöf og vonar að það hjálpi ákveðnum hópum við að ákveða að skipta við Íbúðal­ ánasjóð. „Að mínu mati á Íbúðalánasjóður ekki að vera í beinni samkeppni um hús­ næðislán heldur að hafa ákveðna sérstöðu á markaði. Það á að vera til staðar ákveðið öryggisnet hjá Íbúðalánasjóði, tryggja þarf öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum ekki síst þeirra sem búa á landsbyggðinni, fyrir þá sem eru á leigumarkaði og þeirra sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð,“ segir Ingi­ björg Ólöf. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is Það er okkar stóra hlutverk að Íbúðalána- sjóður verði sjálfbær en við hrunið varð sjóðurinn fyrir miklu áfalli og sá fortíðarvandi er óleystur, Íbúðalánasjóður verði sjálfbær í framtíðinni Stjórn sjóðsins stefnir á að gera hann sjálfbæran og hefur unnið skipulega til þess að ná þeim markmiðum. Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir stjórnarformaður segir að stjórnvöld vinni nú að lausn fortíðarvandans. Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir bíður eftir að sjá lausnina á fortíðarvandanum. Ljósmynd/Hari 10 fréttaviðtal Helgin 31. janúar–2. febrúar 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.